Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Blaðsíða 2
2 DV. ÞRIÐJUDAGUR18. JUNI1985. „Hæ, hó, það er kominn 17. júnf’ —blöörur, ýlur, rellur, lúörar, fánar, sól, ræöur og rígning var allt á sínum stað Já, allt var þetta á sínum vísa staö í gær er þjóöin kom saman, skemmti sér og fagnaöi fullveldisdeginum. I Reykjavík safnaöist fólk saman í miöbænum í þokkalegu veðri. Það var hætt að rigna, eftir vætusamt hádegi. Og ekki bar á ööru en pabbar, mömm- ur og börn á háhesti nytu dagsins. „Hér hefur verið einstakt veður, sannkölluö hitamolla, glampandi sól og blankalogn,” sagöi lögreglumaöur á Isafirði í gær. Hefðbundin hátíðahöld og meðal annars bragðað á karamell- um sem dreift var úr flugvél. Á Akureyri var einnig hitamolla í gær, hitinn fór upp í rúmlega 16 gráður. Hátíðahöldin fóru fram á íþróttavellinum. Það var svo gamla góða Ráðhústorgið í gærkvöldi. „Guðriður var afhjúpuð í grenjandi rigningu,” sagði lögreglumaður í Vest- mannaeyjum í gær. Þar átti hann auð- vitað við höggmyndina af Guðríði Símonardóttur, öðru nafni Tyrkja- Guddu. Það var Sigurbjörn Einarsson Blöðrur, ýlur, lúðrar, fánar, rellur, álblöðrur, ræður, skrúðgöngur, rign- ing, sól, pylsur, hattar, og auðvitað ....Það er kominn 17. júní. ” * 'MM"' Selfossi skemmtu menn sór við og í sundlauginni. Bankastarfsmenn syntu til dæmis eftir peningum í lauginni. Við sjáum hór Stefán Garðarsson, bankastjóra Iðnaðar- bankans, en hann krækti sór i 118 krónur. Skrúðgöngur eru nauðsynlegur hluti 17. júní hótíðahalda. DV-myndir GVA, JBH og EJ biskup sem afhjúpaði styttuna af Guð- Sem sé, hátíðlegur lýðveldisdagur, ríðl Þrátt fyrir úrhellið var margt þar sem landinn var bæði sólar- og manna samankomið. En hátiðahöldin i rigningarmegin í tilverunni. Eyjumvoruþómestinnandyra. -JGH Hamingjusöm þjóð í hótiðarskapi þar sem smáfólkið lót sig ekki muna um að „lyfta sór upp" 6 háhest. Alls 12 þúsund manns I miðbænum i gær. Færeyjan íslendingur rekinn úr landi Frá Eðvarð T. Jónssynl, fréttaritara DVíFæreyjum: Færeysk yfirvöld vísuðu íslenskum ríkisborgara úr landi i síö- ustu viku og er það í annað skiptið sem þessum manni er vísað úr landi í Færeyjum. Maðurinn komst fyrst i tæri við færeysku lögregluna áriö 1981 þegar hann var ákæröur fyrir að hafa stolið úr einkahúsi, stungið af frá hótel- reikningi, og svikiö út miða með skipi til Danmerkur. Hann var fund- inn sekur, dæmdur í 60 daga fangelsi og jafnframt visað úr landi. I síðustu viku kom maðurinn síðan aftur til Færeyja sem háseti um borð í færeyskum fiskibáti. Lögreglan tók á móti honum strax við komuna og daginn eftir fékk hann áminningu frá dómara fyrir að hafa brotiö gegn brottvísuninni frá 1981 en hún gildir í fimm ár. Maöurinn var síðan sendur heim til Islands með færeysku ferj- unniNorrænu. EA Norræn íþróttaráðstefna Gervigras efstábaugi Yfirgripsmikii rannsókn Norö- manna á 17 mismunandi efnum í gervigrasvelli var það sem mesta at- hygli vakti á nýafstaöinni norrænni ráðstefnu um byggingu og rekstur íþróttamannvirkja sem lauk í gær, föstudag. Ráðstefna' þessi fór fram á Laugarvatni og var hún liður í reglu- bundnu samstarfi norrænna ráðu- neyta, sveitarstjórna og íþróttasam- banda á þessu sviðl Sóttu ráö- stefnuna 18 fulltrúar alls staðar af Norðurlöndum. Fyrmefndri rannsókn Norðmanna er ekki aö fullu lokið. Þ6 töldu þeir aö reynsla af þeim efnum á gervigras- veHi, sem sandur er borinn á, væri mjög slæm og ekki sé ráðlegt aö leggja gerviefni beint á eldri malar- velli. Athygli hefur vakið að Þjóö- verjar gera nú tilraunir í MUnchen með að leggja gerviefiii á malarveUi en þó meö þvi að leggja fyrst sér- stakt undirlag úr gúmmíi. önnur helstu umræðuefni ráðstefn- unnar voru nýting iþróttamann- virkja, raki í gólfum íþróttahúsa, nýting varma frá kælivatni véla í skautahöllum, skráning íþrótta- mannvirkja, endurbætur á sundhöll- um, upphitaöir íþróttavellir og samanburður á gerð mismunandi íþróttahúsa. -KÞ Fiskiðjan Freyja á Suðureyri Enginn vill framkvæmda- stjórastólinn Enn hefur enginn framkvæmda- stjóri verið ráðinn að Fiskiðjunni Freyju á Suðureyri samkvæmt upp- lýsingumDV. Eins og kunnugt er á fyrirtækíð i miklum rekstrarörðugleikum og skuidar milljónir. Fyrir skömmu var haldinn aðalfundur Freyju þar sem þrír stjómarmenn af fimm gáfu ekki kost á sér til endurkjörs vegna óánægju og samstarfsörðugleika inn- byrðís og við aöra stjómarmenn svo og aðaleiganda fyrirtækisins sem er Sambandiö. Þá hefur núverandi framkvæmdastjóri, Bjami Elíasson, einnig sagt upp störfum af sömu ástæðum. Ekki mun Ijóst hvenær Bjami hættir en hann mun viija hætta sem fyrst. Leitaö hefur verið logandi ljósi að eftirmanni hans en enginn hefurfundist. -KÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.