Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Blaðsíða 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR18. JUNI1985. 11 Svanhildur Bjarnadóttir, sem starfar ð Faranda, stendur þarna A glænýuppgerðum tröppum gamals og virðulegs húss Einars Benedikts- sonar. DV-mynd GVA Alþýðublaðið ritstjóralaust: „Skrifa aðeins leiðarana” — segir Bjarni Pálsson, kennari úr Garðabæ „Ég er nú ekki ritstjóri blaösins heldur tók ég að mér að skrifa leið- ara þess í nokkrar vikur,” sagði Bjami Pálsson í samtali við DV. Bjarni hefur skrifað leiöara Alþýðublaðsins frá siðustu mánaða- mótum eöa síöan Guömundur Arni Stefánsson lét af störfum sem rit- stjóri. „Eg kem þarna á morgnana og skrifa leiðarana. Að öðru leyti skipti ég mér ekki af ritstjóminni, enda hef ég aldrei nálægt blaðamennsku kom- ið. Annar blaöamanna blaðsins er ábyrgðarmaöur þess. Þaðerþvíeng- inn ritstjóri.á blaðinu til þess að gera.” Bjarni er kennari og kennir við Fjölbrautaskóla Garðabæjar. Myndirðu taka að þér ritstjóra- starfið ef það byðist? „Ég veit það ekki. Það er komin fulllítil reynsla á þetta. Það er bölv- að streð að skrifa svona á hverjum degi en ég kann því ágætlega á meöan málstaðurinn er góður og stjómarliðar sjá mér fyrir nægu efni. En þetta kemur allt í ljós,” sagði Bjami Pálsson. -KÞ Farandi með ferðir innan- lands og utan Ferðaskrifstofan Farandi hefur flutt um set, hefur komið sér fyrir í nýupp- gerðu húsi að Vesturgötu 5. Hús þetta byggði Einar skáld Benediktsson árið 1896 en það hefur verið lítið notað í mörg ár. Hús þetta var kallað Aberdeen. Ferðaskrifstofan Farandi er rúmL fjögurra ára gömul. Arlega stendur Farandi m.a. fyrir skipulögðum hóp- ferðum til Vínarborgar á tónlistar- hátíðina þar. Um áramót hefur skrif- stofan efnt til hópferða til Austurlanda fjær. Farandi hefur söluumboð fyrir Fritidsrejser í Kaupmannahöfn og auk þess gamalgrónar ferðaskrifstofur í London. Nú hefur Farandi fengið um- boösmann í Grikklandi. Farandi sér einnig um móttöku erlendra ferða- manna og skipuleggur ferðir innan- lands og annast auk þess skipulagðar hópferðir Islendinga innanlands. A.Bj. Bjórkrá án bjórs Fró Ingibjörgu Magnúsdóttur, Húsa- vík: Auk fleira fólks búa á Húsavík tveir ungir, hressir náungar sem ásamt öör- um störfum hafa séð um rekstur Húsa- víkurbíós undanfarið. En þeir nenna fleiru. Þeir sáu það sem allir vissu að i bæinn vantaði lítinn, notalegan, ódýr- an veitingastaö þar sem fólk gæti spjallaö saman yfir kaffibolla eða léttri máltíö. Og þeir gerðu eitthvað í málinu. Síðastliðnar vikur hafa þeir lagt nótt við dag viö aö innrétta þannig staö i miöbænum. Staöinn nefna þeir Bakkann og var hann opnaður fyrir skömmu. Ungu mennirnir, sem heita Albert Arnarson og Leifur Grimsson, spurðust fyrir um möguleika á þvi að veita létt vín og bjórlíki á staðnum hjá dómsmálaróðu- neytinu, þar fengu þeir þau svör að nú á tímum mætti ekki bera ó borð slíkar veitingar nema úr stóru eldhúsi frá lærðum matreiðslumeistara, af lærð- umþjóni. Hugmyndin um bjórkrá er því geymd þó ekki hafi hún gleymst. Bakkinn verður opinn fró kl 9.30 til kl. 11.30, þar verða á boðstólum ýmsar nýjungar, skyndiréttir, samlokur, kaffi og kökur og áhersla lögð á fiskrétti. Verð sem þeir félagar nefna á veit- ingum er svo ótrúlega lágt að það þori ég ekki að hafa eftir. „Við teljum að ef við stöndum okkur vel ætti reksturinn að geta gengið. Þetta er ekki sjoppa heldur klassastaö- ur sem ætti að geta höföaö til fólks og það gengið að þvi vísu að fá góðar veit- ingar og þjónustu,” sagöi Leifur. A Bakkanum eru sæti fyrir 24 gesti en hægt er að koma tæplega 40 manns þar fýrir. Hægt verður að fá staöinn leigðan fyrir einkasamkvæmi. Trésmiðjan Borg sá um breytingar á húsnæðinu, Erlendur Salómonsson hannaði innréttingar en Guðný Kristjánsdóttir annaðist skreytingar. -EH LÍTTU um leið og þú p lítur í bæinn VIÐ AUSTURSTRÆTIÍO SIMI 27211 Sumartiskan frá Italiu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.