Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Blaðsíða 43
DV. ÞRIÐJUDAGUR18. JUNI1985. 43 randinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tfðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn „Vorum stöðugt að flytja” „Menn verða að prófa sjálfir” Boginn hans Snorra Hrafnkelssonar er engin smásmíði. Hér býr Snorri sig undir að hitta i miðju skotskH unnar. DV-mynd S „Eg byrjaði að æfa bogfimi 1980 hjá lömuðum og fötluðum. Þeir voru með einu aðstööuna sem stóð bogfimimönn- um til boða á þessum tíma.” Snorri Hrafnkelsson er einn þeirra sem æfa hjá bogfimiklúbbnum á Smiðjuvegin- um. „Þrem árum seinna, eða 1983, varð ég að hætta æfingum þar. Æfingatím- inn var mjög þröngur, frá hálffjögur til hálfsjö, og bauð ekki upp á neinn sveig janleika. Eg gat þetta einfaldlega ekkivegna vinnu. Hér í bogfimiklúbbnum gegnir alit öðru máli. Maður getur komið þegar maöur vill seinni part dags og verið fram á k völd. Það hentar mér mun bet- ur.” Skemmtileg íþrótt fyrir alla „Maður getur verið ákaflega mis- upplagður á æfingum. Stundum kemur það fyrir aö maður hittir illa og þá pakka ég saman og fer heim. En það er ekki bara íþróttin sem sl£k sem gefur manni mikið. Það er ekki síst félags- skapurinn i kringum þetta sem er skemmtilegur.” — Hefur þú tekið þátt i mótum? „Já, ég hef verið þátttakandi i mót- um sem haldin hafa verið á vegum fatlaðra og gengiö ágætlega. Eg lít hins vegar á bogfimina eingöngu sem tómstundagaman og stefni ekki að því aögera þetta aðkeppnisíþrótt.” öðru máli gegnir um Arnar Frey. „Eg stefni að þvi að ná sem bestum árangri i bogfimi. Meistaratitill er tak- markið. — Hvað hef ur þú æft lengi? „Eg hef æft nokkuð óreglulega sl. 3— 4 ár. Það er í fyrsta skipti núna sem maður er farinn að geta æft reglulega. Þessi aðstaöa hérna hefur gjörbreytt öllu fyrir okkur bogmenn. Þaö eina sem vantar núna er betri bogi. Það er hins vegar ekki hlaupiö að því að skipta um þvi þá þarf maður aö læra allt upp á nýtt. Maöur verður að aöiaga sig boganum,” sagði Amar Freyr. Og Snorri bætti við: „Eg held að það sé ástæðulaust fyrir okkur að vera að segja frá bogfiminni. Menn verða bara að koma sjálfir og prófa til að sjá hversu skemmtileg íþrótt þetta er.” -ÞJV Guðmundur Pótursson var í sínum fyrsta tima. Hór spennir hann bogann undir loiðsögn Elisabetar. „Er fæddur í bog- mannsmerkinu” „Eg hef alltaf haft dáiæti á þessari iþrótt. Þetta er jafnvægiskúnst og ekki siöur hugræn en líkamleg. Eg er ánægöur ef ég kynnist heimspeki bogans.” Guðmundur Pétursson læknanemi var i sinum fyrsta tíma. Eins og öllum byrjendum var honum gert aö hefja æfingar meö plastboga. A þann hátt tekst byr jendum betur að til- einka sér réttar hreyfingar, auk þess sem Elisabet á auðveldara meö aö leið- beina þeim. En Guðmundur var að sögn Elísabetar óþolinmóður og vildi ólmur fá aö skjóta af alvöru boga. — Getur þú hugsaö þér að fara að æfa bogfimi? „Já, ég gæti vel trúað því að ég myndi koma hér aftur. Bogfimi er skemmtileg íþrótt.” „Og ekki síst nauðsynleg fyrir þig,” skýtur Elísabet inn í. „Þú ert náms- maður og situr þ.a.l. mikið. Þú hefur þörf fyrir að stunda íþrótt eins og bog- fimi, auk þess sem hún þjálfar einbeit- inguna.” Guðmundur kinkar kolli til sam- þykkis. „Það er mikiö til í því. Reyndar er ég bogmaður, þó að mér hafi gengið brösuglega í þessum fyrsta tíma. Eg er nefnilega fæddur bog- mannsmerkinu.” T -ÞJV. „Eg byrjaði að æfa bogfimi 1974 þegar íþróttafélag fatlaöra var stofnað. Eg er sá eini sem hefur verið með frá upphafi,” sagði Jón Eiríksson, aðspurður hvenær hann hefði byrjað aðstundaíþróttina. „Það sem hefur háð okkur bogmönn- um mikið er aðstöðuleysL Það er fyrst núna sem við erum komnir i viðunandi aöstööu. Hér áður fyrr vorum við ýmist í anddyri Laugardalshallarinn- ar eða í Baldurshaga. Þar var okkur naumt skammtaður tíim, auk þess sem við þurftum alltaf að flytja dótið okkar til fyrir og eftir æfingar. Hérna getum við gengið beint að öllu.” —Hefur þú keppt í bogfimi? „Já, ég hef keppt á Islandsmóti, Reykjavíkurmóti og svo auðvitaö á innanfélagsmótum. Einnig hef ég tvivegis tekið þátt í alþjóðamótum. Eg keppti fyrst 1981 og gekk þá nokkuð veL Hins vegar gekk mér ekki eins vel á Norðurlandamótinu sem fram fór á dögunum.” — Ofatlaöir hafa fengið að keppa á mótum h já ykkur, er það ekki? „Jú, þeir hafa fengið aö keppa á Reykjavíkur- og innanfélagsmótum en í sérstökum flokkL Reglurnar eru í raun þannig að þeir mega ekki taka þátt í mótum hjá okkur. Aftur á móti er okkur heimilt aö keppa á mótum hjá þeim.” — Finnst þér æskilegt að fatlaðir jafnt sem ófatlaöir keppi saman? „Iþróttagreinin sem slík býður í rauninni upp á það. Það sitja flestir við sama borð hvort sem þeir eru fatlaöir eða ekki. Það hefur verið rætt um að taka upp sérstakar flokkanir eftir fötl- un en það hefur ekki enn verið gert, a.m.k. ekki hér á landL Persónulega finnst mér slíkt ekki æskilegt.” — Nú ert þú búinn að stunda bogfini í rúm 10 ár. Hvað erþað semheillar? „Eg veit það satt að segja ekki. Þaö er einfaldlega gaman að þessu. Þetta er íþrótt sem allir geta stundað og ég hvet sem flesta til að koma og vera með.” -ÞJV. Einbeitingin skin úr andliti Jóns Eirikssonar þar sem hann býr sig undir aö skjóta. Jón var einn af þeim fyrstu sem hófu afl œfa bogfimi hér é landi, byrjaði fyrir rúmum 10 érum. „Fyrirtaks líkamsrækt” „Eg kynntist bogfiminni í janúar sl. á Reykjalundi. I mars kom ég hingað í Hátún 10 og hef síðan æft tvisvar í viku.” Sigríður Vilhjálmsdóttir er önnur konan sem æfir bogfimi, hin er leiðbeinandinn, Elisabet Vilhjálmsson. „Það er gaman að skjóta. Bogfimin er líka fyrirtaks likamsrækt, styrkir bæði axliroghendur.” — Áttu boga sjálf? „Nei, að vísu ekki. Það fæst ekki bogi af þeim styrkleika sem ég þarf hér á landi. En það rætist vonandi úr því fljótlega og þá kaupi ég mér örugglega boga.” — Ætlar þú aö halda áfram æfingum? „Já, alveg örugglega. Þetta er mjög skemmtileg íþrótt.” — Og fá kannski fleiri konur í hóp- inn? „Já, ég hef verið að hvetja vinkonur mínar til að koma. Það ætlaði reyndar ein að koma í þennan tíma en hún hefur líklega ekki komist núna. Hún kemur þá bara næst.” -ÞJV. Það eru ekki margar konur sem leggja stund é bogfimi á íslandi. Hér sést önnur þeirra, Sigríður Vilhjálms- dóttir, spenna bogann og búa sig undir að skjóta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.