Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Blaðsíða 44
44 DV. ÞRIÐJUDAGUR18. JONI1985. Sjúkrahúsið Patreksfirði Sjúkrahúsið Patreksfirði óskar að ráða hjúkrunarfræðing og sjúkraliða til starfa sem fyrst eöa eftir samkomulagi, einnig vantar hjúkrunarfræðinga og Ijósmóður til sumar- afleysinga. Gott húsnæði fyrir hendi. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Karlsdóttir hjúkrunarforstjóri í síma 94-1110 eða 94-1386. SVEITARSTJÓRI Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps óskar eftir að ráða sveit- arstjóra til starfa frá 1. september 1985. Nánari upplýsing- ar gefa sveitarstjóri í síma 95-3193 og Karl Loftsson odd- viti í síma 95-3128. Umsóknir skulu sendast til skrifstofu Hólmavíkurhrepps, Hafnarbraut 25, Hólmavík, fyrir 10. júlí 1985. Hreppsnefnd Hólmavíkurhrepps. Frá menntamálaráðuneytinu: Lausar stöður við f ram haldsskóla Umsóknarfrestur til 1. júlf Við framhaldsskólann í Vestmannaeyjum: kennarastöður í tölvufræði, stærðfræði, þýsku og verklegum greinum í grunndeild rafiðna. Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki: Staða aðstoðar- skólameistara, kennarastöður í dönsku og íþróttum og staða raungreinakennara, kennslugreinar: stærðfræði, eðlisfræði og tölvufræði. Framlengdur er til sama tíma umsóknarfrestur um áður auglýstar stöður við Menntaskólann á Ísafirði í íslensku, íþróttum, stærðfræði og tölvufræði og hálfar kennara- stöður í dönsku og frönsku. Einnig eru lausar til um- sóknar 1/2 staða húsmóður og 1/2 staða húsbónda á heimavist. Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist mennta- málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík. Menntamðlaróðuneytifl. 12. júní 1985 TÓNLISTARFÓLK Til Vestmannaeyja vantar áhugasamt tónlistarfólk 1. Kennsla í grunnskólum bæjarins: Barnaskóli Vestmannaeyja: Almenn tónmenntakennsla og kórstarf. Upplýsingar: Eiríkur Guðnason, sími 98-1944 eða 1973. Hamarsskóli: Almenn tónmenntakennsla og kórstarf. Upplýsingar: Halldóra Magnúsdóttir, sími 98-2644 eða 2265. 2. Tónlistarskóli Vestmannaeyja: Strengjakennsla og söngkennsla. Upplýsingar: Guð- mundur H. Guðjónsson, símar 98-1841 eða 2551. Húsnæði, barnaheimilispláss og fleira í boði. Skólanefnd. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 19., 30. og 34. tölublaöi Lögbirtingablaösins 1985 á eigninni Blátúni 2, Bessastaðahreppi, þingl. eign Trausta Finnboga- sonar, fer fram eftir kröfu Baldvins Jónssonar hrl., innheimtu rikissjóös, Tryggingastofnunar ríkisins, lönlánasjóös, Ólafs Ragnarssonar hrl. og Valgarðs Sigurössonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 21. júni 1985 kl. 16.30. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 19., 30. og 34. tölublaöi Lögbirtingablaösins 1985 á eigninni Vesturbraut 2, Hafnarfirði, þingl. eign Snjólaugar Bene- diktsdóttur, fer fram eftir kröfu Hrafnkels Ásgeirssonar hrl., Ásgeirsl Thoroddsen hdl., Veödeildar Landsbanka islands, Bjarna Ásgeirssonar hdl., Péturs Guðmundssonar hdl. og Guöjóns Steingrímssonar hrl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 20. júni 1985 kl. 15.45. i Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Sviösljósið Sviðsljósið Hin „raunverulega” Ellíaftur í Dallas Þetta er pelinn Hún var látin hætta, Donna Reed Howard í hlutverki Elliar msð Clayton Farlow. verk mömmu. Barbaravarð að hætta í mai 1984 vegna veikinda, en í stað hennar var fengin leikkonan Donna Reed Howard. J.R. varaði strax við aÐeiðingunum og ekki stóð á viðbrögðum áhorfenda sem sendu inn kvörtunarbréf í stríðum straumum. Larry og Linda Gray hafa haldið sambandi við Barböru síðan hún hætti og beðið hana að koma aftur. Nú hefur dæmið gengið upp hjá þeim, Donnu Reed hefur verið sagt upp og Barbara tekur við hlutverki Ellíar þegar næsta syrpa verður tekin upp. J.R. er eðlilega ánægður og segir „Þegar raunverulega mamma er komin aftur á Southfork þá sláum við Dynasty rækilega við. ” Þar sem íslenskir Dallas-aðdáendur bíða væntanlega í ofvæni eftir skammtinum sinum sem áaðbyrja að sýna í júlí í íslenska sjónvarpinu, er rétt að flytja hér stuttar fréttir af Dallas liðinu. Fyrst ber að nefna að Dynasty var komið í fyrsta sæti hjá bandarískum sjónvarpsáhorfendum í febrúar. Það er slæmt og það fannst Larry Hagman líka og krafðist að hin raunverulega Ellí, eða réttara sagt Barbara Bel Geddes, kæmi aftur í hlut- minn Hún kamur aftur, Barbara Bel Geddes er og verflur mamman á Southfork, þafl virflast áhorfendur og J.R. sammála um. Kady, dóttir Piu Zadoru leikkonu, er ekki alls kostar ánægð með að mamma hennar sé að stelast til að drekka úr pelanum hennar. Kady er aðeins rúm- lega þriggja mánaða gömul og kann ekki önnur ráð en að gráta yfir þessum ósköpum. Við skulum vona að Pia hafi bara verið að stilla sér upp til mynda- töku og að Kady haf i fengið pelann sinn fljótlega aftur. Þó að Peggy Ashcroft hafi fengið óskarsverðlaunin fyrir besta leik í aukahlutverki í myndinni Ferð til Indlands vissu aðeins 15,5% viðmæl- enda i skoöanakönnun sem blaðiö Enquirer gerði í Bandarikjunum hver hún er. Nefnd voru nöfn eins og Indira Gandhi, Elisabet Englands- drottning og Eleanor Roosevelt. Könnunin var gerð skömmu eftir að verðlaunin voru afhent og var fólki sýnd mynd af leikkonunnL Murray Abraham vann líka óskar og voru viðmælendur blaðsins lfka spurðir um hver hann væri. Utkoman hjá honum var jafinvel örlítið verri eöa 15,2% gátu sagt til um hver hann er. Blaðiö spyr: Eru þau fræg en óþekkt? Niðurstaða könnunarinnar 'virðist benda til þess.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.