Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Blaðsíða 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR18. JUNI1985. 3 Lok aðalfundar Sambands fslenskra samvinnufélaga: Guðjónforstjóri ogkonaístjóm Undir bk aðalfundar SlS ó föstu- daginn vartilkynntaðGuðjónB. Olafs- son hefði fallist á að taka við starfi for- stjóra Sambandsins. Hann tekur form- lega við 1. janúar 1987. Þá var Val- gerður Sverrisdóttir á Lómatjöm í Eyjafirði kosin fyrst kvenna í stjóm SIS. Tvær konur náðu kjöri í vara- stjóm. Aðalfundurinn samþykkti ályktun um að SIS hefði forgöngu um viðræð- ur milli samvinnuhreyfingarinnar, verkalýðshreyfingarinnar, samtaka bænda og fleiri um samstarf á sviði fjölmiðlunar. A fundinum var talsvert rætt um nauðsyn þess að styrkj a stöðu samvinnuhreyfingarinnar í almennri umræðu. HERB Guðmar Guðjónsson, formaður Framsóknarfélags Árnessýslu: ÞÖRF Á NYJU STJÓRN- MALAAFLIMEÐAL BÆNDA „Frá sjónarmiði bænda er frum- varpið algjörlega óverjandi, enda finnur þú engan bónda sem er ánægður með það,” sagði Guðmar Guðjónsson, kartöflubóndi á Stóra- Hofi í Gnúpverjahreppi, í gær um framleiösluráðsfrumvarpið. Guðmar er formaður framsóknar- félaganna í Ámessýslu. Á fundi á Flúðum, á fimmtudagskvöld, sem kartöflubændur víðs vegar af Suður- landi sóttu, lét Guðmar mjög tii sin taka. „Það em kartöflubændur, rófu- bændur og gróðurhúsabændur sem em langmest á móti frumvarpinu,” sagöi Guömar. „Akvæðið um að bændur megi selja beint í verslanir er algjörlega ótækt, það er aðeins verið að etja bændum saman í harðvítugt markaðsstríð og um enga fram- leiðslustjórnun verður að ræða í þessum búgreinum. Það vita líka allir að bændur hafa ekki óskað eftir þessu frumvarpi, enda tryggir það hag bænda ekki á neinnhátt.” Guömar sagði að ef frumvarpið yrði samþykkt óbreytt yrði staða bænda svona svipuð og verkamanna þar sem kauptaxtar hefðu verið afnumdir. „Verkamennirnir verða þá að semja við atvinnurekendur beint.” — Nú erað þlð bændur óénægðir með frumvarpið og fleiri hafa sýnt óánægju sína með það eins og Neytendasamtökin. — Hvers vegna telur þú að Sjálfstæðisflokkurinn leggi svona mikla áherslu á fram- varpið? „Því er fljótsvarað, það er ekkert annað en vald kaupmanna sem knýr á, þeir vilja hirða bæði smásölu- álagninguna og heildsöluálagning- una. Nú á að ákveða verðið í búöar- dyrumkaupmanna.” — Nú hefur heyrst að menn hafi verið að ræða um nýjan flokk, Dreif- býlisflokk, verði frumvarpið sam- þykkt? „Hvoragur flokkanna mun standa heill á eftir verði frumvarpið sam- þykkt og menn ræða það því sín á milli að hér sé um lokauppgjör þétt- býlisins gagnvart dreifbýlinu að ræða. — Ætlar þú að standa fyrir stofn- un nýs flokks, Dreif býlisflokksins? „Nei, það ætla ég ekki að gera, en hitt sýnist ljóst að það virðist þörf á nýju sameiginlegu stjórnmálaafli á meðalbænda.” -JGH Jeppinn sem valt í Svínahrauni. DV-mynd: S. TVÖ BANASLYS Tvö banaslys urðu í umferðinni um helgina, annað í Svínadal i Dalasýslu, hitt í Svínahrauni í Arnessýslu. I Svínadal óku tvær bifreiðir af Mazda-gerð framan á hvora aðra skammt frá svonefndum Jónsvaðli um klukkan 23 á laugardagskvöld. Far- þegi í öðrum bilnum lést samstundis. Hann hét Hallgrímur Sæmundsson og bjó á Tungu í Hörðudalshreppi í Dala- sýslu. Hallgrímur var 16 ára gamall. ökumenn bifreiðanna siösuðust einnig mikið. Þeir voru fluttir strax um nótt- ina með þyrlu frá Varnarliðinu í Kefla- vfk á slysadeild Borgarspitaians í Reykjavík. Með þeim fóru einnig kona og lítið bam er hlotið höfðu skrámur og mar. Tveir farþegar, sem voru í bíln- um með Hallgrími, sluppu lítið meidd- ir. Þá lést einn maður og tveir slösuðust lífshættulega er Range Rover jeppi valt aðfaranótt sunnudags í brekkunni fyrir ofan Litlu kaffi- stofuna í Svínahrauni. I bíinum voru einnig tveir aðrir farþegar, hlutu þeir lítil meiðsi. EA FYRSTU TÖLUR ÚR NOKKRUM VEIÐIÁM Veiðin er að komast á fulla ferð og veiðimenn hafa bæði misst laxa og fengið. Um helgina hófst veiði í nokkr- um ám og höfðum við samband við veiðihúsin í gærdag. „Það komu 3 lax- ar á land, sá stærati var 11 punda, og veiddust þeir neðarlega í ánni,” sagði Brynjólfur Markússon, leigjandi Vatnsdaisár. „Það sást töluvert af laxi en þetta fer rólega af stað en veður er mjög gott og menn n jóta þess.” „Það var eitthvað af fiski að ganga í morgun og veiöst hafa 19 laxar og hann er 14,5 punda, sá stærsti. Maðkurinn hefur gefið best en þó hafa menn fengið 5 laxa á flugu,” sagði Olafur veiði- vörður í veiðihúsinu við Laxá í Leirár- sveit. „Þetta er allt í lagi en það vantar tilfinnanlega rigningu. Veitt er á 5 stangireins oger.” Víðidalsáin gaf 4 laxa og er sá stærsti 10 punda. Eitthvað sást af laxi í ánni. Miðfjarðaráin var opnuð seinni- partinn í gær og höfðu sést iaxar í Kistunum og Hlíðarfossi í Vesturánni. Kannski hafa þeir fengið lax í Mið- firðinumígær? Sæmilegt start var í Langá á Mýr- um og veiddust 8 laxar fyrsta daginn, þar af 5 laxar á neðsta svæðinu á Breiðunni og hafa veiðimenn séð tölu- vert af laxi í ánni. Hann er 10 punda, sá stærsti, og vora komnir 15 laxar á hádegi í gær. G.Bender. Laxé i Kjós hefur gefió 50 laxa og hefur lax veiflst um alla ó; fyrsti lax- inn kom úr Þórufossi um helgina. Á myndinni heldur Sigurflur Sigur- jónsson ó stærsta iaxinum úr Laxó í Kjós f sumar, 17 punda fiski, veidd- um ó maflk. DV-mynd G. Bender. Ekki allt á hreinu í Laugardalslaugunum: Hreinsikerfið lamað „Síumar í hreinsikerfinu eru orðnar 16 ára gamlar og tími til kominn að endumýja þær. Gallinn er bara sá að fyrirtækið sem ætlaöi að gera það brann til grunna,” sagði Ragnar Stein- grímsson, sundlaugarstjóri í Laugar- dalnum. Síumar í hreinsikerfinu I Laugar- dalslaugunum eru úr næloni og eftir 16 ára notkun er svo komið að nælon- dúkurinn er farinn að rifna. „Það sest kísill á þetta, hann harönar og þá er hætta á aö dúkurinn rifni,” sagði Ragnar. „Yfirvöld hafa þó eftirlit með vatninu i lauginni og við yrðum stopp- aöir af ef vatniö værí ekki nógu hreint.” Sundlaugarvatnið í Laugardalnum fer sex sinnum á sólarhring í gegnum hreinsikerfið og þar með síumar. Þar sem síumar era rifnar hreinsast vatn- ið að sjálfsögðu ekkert og streymir því jafnskítugt út í laugina og það var fyrir. -eir. Grindavík: Grýttu lögreglustöðina Hópur ungiinga í Grindavík grýtti lögreglustööina á staönum siöastliöið laugardagskvöid eftir aö félagi þeirra hafði verið færður í gæslu fyrir ölvun. Brotnuðu rúöur í bæjarskrifstofunni á hæðinni fyrir ofan og útihurð stöðvar- innar skemmdist talsvert, en eftir að kallað hafði veriö á liðsauka frá lög- reglunni í Keflavík tókst að yfirbuga óeiröaseggina og komst þá á friður. Fengu fimm úr hópi unglinganna að gista fangageymslur lögreglunnar um nóttina. EA Færeyskir alkóhólistar í meðferð á íslandi: Frábærárangur Frá Eðvarð Jónssyni, Færeyjum: Fjörutíu færeyskir alkóhólistar hafa farið í meðferð fyrir áfengis- sjúklinga á heimilinu Von í Reykjavík. Arangurinn er framúr- skarandi, að því er færeysk blöö greina frá í síðustu viku. Nú er kominn biðlisti hjá SAR í Þórshöfn eftir að komast í meðferð til Islands. SAR eru samtök í Færeyjum samsvarandi SAA á Islandi. Þau voru stofnuð fyrr á þessu ári, að tilhlutan forystumanna Vonar í Reykjavík. Hefur framtak Islendinganna vakið mikia athygli i Færeyjum þar sem áfengissýki er mjög alvarlegt vandamál eins og víðar á Norðurlöndum. Alkóhól- istarnir hafa átt i fá hús aö venda með vandamál sin og litill skilningur hefur verið á þörfumþeirra. Færeyska sjúkratryggingin greiðir allan kostnað viðr ferðir og dvöl þeirra sem fara til Islands. Er heildarkostnaður um 23.000 krónur danskar fyrir hvern mann. Á árunum 1965 til 1975 var FIAT í forystu í framleiöslu á litlum bílum til almenningsnota. FIAT bílar hlutu titilinn ,,bíll ársins í Evrópu" þrisvar sinnum á sex árum. Nú er FIAT aftur kominn í forystusœtiö meö framleiöslu FIAT UNO, sem kjörinn hefurver- iö bíll ársins 1984. Óhemjufé, tíma og fyrirhöfn var eytt í undir- búning og hönnun áöur en framleiösla hófst á þessum frá- bœra bíl. FIAT verksmiöjurnar lögöu 700 milljónir dollara í þetta verkefni og hafa augljóslega variö því fé skynsamlega því útkoman, sjálfur UNO bíllinn, er einstaklega vel hannaöur og er af sérfrœöingum talinn vera e.t.v. besti smábíll sem nokkru sinni hefur veriö smíöaöur (' 'possibly the best small car ever made"). i EGILL VJLHJÁLMSSON HF. Smidjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.