Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Qupperneq 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR18. JONI1985.
5
„Gæti leitt
til skamm-
tímasamn-
ings”
— segirKristján
Thorlacius
„Eg tel aö þessi s ka mmtímas amn-
ingur ASI og VSI geti greitt fyrir samn-
ingum milli BSRB og ríkisins og orðið
til þess að ekki verði samið til langs
tíma,” sagði Kristján Thorlacius, for-
maöur BSRB, um áhrif nýgerðra
kjarasamninga á samningaviðræður
sínsfélagsvið ríkið.
Kristján sagöi að viðræðum um
aðalk jarasamning hefði verið frestað á
fimmtudaginn en þráðurinn yrði tek-
inn n>p í þessari viku. Jafnframt
hefði verið ákveðiö aö einstök félög
innan BSRB héldu áfram samninga-
viðræöumumsérkjarasamning. ás
„Stein-
hissa á
linkind
ASÍ”
— segirStefán
Benediktsson
„Eg er steinhissa á linkind verka-
lýðsforystunnar,” sagði Stefán Bene-
diktsson, þingmaður Bandalags
jafnaðarmanna.
,,Eg fæ ekki meö nokkru móti séð
hvað réttlætir þessa samninga af
hennar hálfu, miðað við hvað kaup-
máttur hefur rýrnað mikið og hvað
hann hefði þurft að aukast tn að kjör
þessa fólk gætu kallast mannsæmandi.
Þaö er enn verið að tala um aö hækka
laun, sem eru 15 þúsund, um 12-15% á
hálfu ári, sem þýðir að laun þessa fólks
halda áfram að vera engin laun,”
sagöiStefán. ás
„Skammtímasamning-
ur skynsamlegur”
— segir Jón Baldvin Hannibalsson
„Eg vil í fyrsta lagi segja að það var
skynsamlegt að ganga til kjarasamn-
inga nú,” sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson, formaður Alþýðuflokksins.
„Launahækkunin síðasta haust,
24%, var runnin út í sandinn og fyrir-
sjáanlegt að framundan væri veruleg
kaupskerðing.
Af okkar hálfu hafði Verkalýðs-
málaráö lagt til þessa leið með yfirlýs-
ingu fyrir fyrsta maí undir kjörorðinu
.JCjarabætur án kollsteypu”. Það er
ekkert leyndarmál að þrátt fyrir
tregðu alþýöubandalagsmanna tókst
okkar mönnum i verkalýðshreyfing-
unni að fá fram að viðræður yrðu
teknaruppaftur.
Hvað gildi samninganna viðvíkur
veltur útkoman að venju mestan part á
ríkisstjóminni.
„Vitaskuld er ekki ástæða til bjart-
sýni hvað það varðar því mikil
verðbólguundiralda er í þjóðfélaginu.
Það er mikiil halli á fjárlögum, inn-
streymi erlends iánsfjár, dúndrandi
viðskiptahalli og erfiðleikum sjávarút-
vegsins er mætt með hröðu gengissigi
sem hefur í för með sér verðhækkun.
Af þessum ástæðum var skynsamlegt
að ganga til skammtímasamninga og
hafa verðlagsviðmiðanir i þeim.”
— Almennt var talið að erfiðleikar í
kjarasamningum gætu hugsanlega
leitt til stjómarslita, kosninga og sigurs.
Alþýðuflokksins. Nú hefur verið sam-
ið. Hefur ríkisstjórnin ekki styrkst í
sessi?
„Við höfum heyrt þetta kaffibollatal
eins og aðrir. Tilvera ríkisstjóma á
ekki að ráöast i kjarasamningum. Það
er ekki hlutverk verkalýðshreyfingar-
innar að koma á eða fella ríkisstjórnir.
Kjarasamningar eiga að fjalla um kjör
og það skiptir ekki máli aö lif rikis-
stjórnarinnar sé framlengt ef kjörin
batna. Það má vissulega leiða rök að
því að það væri kjarabót að koma ríkis-
stjóminni frá. En það verður að ráöast
annars staðar. Forysta Sjálfstæðis-
flokksins ræöur þvi hversu lengi hún
ætlar að vera bandingi Framsóknar,”
sagði JónBaldvinHannibalsson. ás
Magnús Gunnarsson, fram-
kvœmdastjóri Vinnuveitendasam-
bandsins, og Guömundur J.
Guömundsson, formaður Verka-
mannasambandsins, Ijúka skyndi-
átökunum. Karl Steinar Guðnason,
varaformaður VMSÍ, missir ekki af
neinu, enda tillögumaður að fram-
haldi samningaviðrœðna.
C. EK1044 eldavöl m. blöstursofni og klukku.
D. B01050 blöstursofn m. klukku o. fl.
A. UK1034 blöstursofn
Litur Magn Verð Afsláttarverð
brúnn 1 stk. 22.995,- 18.396,-
hvítur 1 stk. 22.995,- 18.396,-
rauður 1 stk. 22.995,- 18.396,-
grænn 1 stk. 22.995,- 15.995,-
B. B01030 blástursofn.
Litur Magn Verð Afsláttarverö
brúnn 1 stk. 17.850,- 14.280,-
rauður 2 stk. 17.850,- 14.280,-
hvítur 1 stk. 17.850,- 14.280,-
grænn 2 stk. 17.850,- 12.495,-
Litur 1 Magn Verð Afsláttarverð
hvítur 1 stk. 28.280,- 21.950,-
rauður 1 stk. 28.280,- 21.950,-
brúnn 2 stk. 28.280,- 21.950,-
EK 1024 eldavöl, venjulegur ofn.
Litur Magn Verð Afsláttarverð
hvítur 3 stk. 17.450,- 12.900,-
gul 2 stk. 17.450,- 12.900,-
Að auki bjóðum við áhugaverð
kjör, 1 /3 út, eftirstöðvar á 6 mán.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF. 2 ára ábyrgð,
Bergstaðastræti 10 A Sími 16995 tðlctU ©ftÍT þvi!
Litur Magn Verö Afsláttarverð
grænn 2 stk. 26.860,- 19.800,-
hvítur 2 stk. 26.860,- 19.800,-
STÓRÚTSALA
20-30% AFSLÁTTUR
Á ÚTSTILLINGARTÆKJUM FRÁ Blombera
Við rýmum fyrir nýjum tækjum í ný sýningareldhús og seljum eftirtalin
tæki með 20—30% afslætti. Tækin eru ógölluð.
Þetta er kjarabót fyrir húsbyggjendur