Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Side 6
6
DV. ÞRIÐJUDAGUR18. JUNI1985.
KENNARAR
Neytendur Neytendur Neytendur
Þrjá kennara vantar að Héraðsskólanum í Reykjanesi við
Ísafjarðardjúp. Meðal kennslugreina eru enska, danska
og íslenska. Gott og ódýrt húsnæði í boði. Upplýsingar í
símum 94-4841 og 94-4840.
Héraðsskólinn Reykjanasi.
3ja skúffa furukommóða, kr. 2.708,-
4ra skúffa furukommóða, kr. 3.098,-
5 skúffa furukommóða. kr. 3.729,-
6 skúffa furukommóða, kr. 4.338,-
8 skúffafurukommóða. kr. 3.855,-
EFNI: fura, tekk og hvítt.
BREIDD: 80 cm, dýpt 40 cm,
hæð 56—101 cm.
SUíffiRHIÍSffi
Háteigsvegi 20 - Sími 12811
FLESTIR HAFA AÐEINS
TVÆR HENDUR . . .
HF-10 PT er takkasími meötíu númera
minni fyrir skífu- eða tónval.
Tækiö er með innbyggðum hljóðnema sem
hægt er að tala í án þess að lyfta símtólinu
og styrkleikastilli fyrir hátalara og símtól
Hægt er að læsa fyrir hringingu út, þannig
að aðeins er mögulegt að svara.
Verð kr. 6.900.-
Tækið er samþykkt af Pósti og Síma
OOECinn ct
l\l II )-ll iu _</
Síðumúla 4, 2. hæð.
Opið virka daga 09:00-18:00.
Laugardaga 10:00-12:00.
Sendum í póstkröfu. - Sími 91-687870
f
Þrfr af ofnaverkfrreðingunum sem unnu afl nýju málningunni eru þama mefl tveimur framkvœmdastjór-
um fyrirtœkisins. F.v. Jón Bjarnason, Óskar Maríusson, Ásta Guflmundsdóttir, Valdimar Bergstað og
Stefán Gufljohnsen.
Bylting í utanhússmálningu:
Vatnsheld málning sem hleypir
í gegnum sig raka
Málning hf. kynnir STEINVARA 2000 sem er
ný íslensk uppf inning
Steinvari 2000 er ný tegund af utan-
hússmálningu sem Málning hf. hefur
framleitt og sett á markaö.
Þessi málning er árangur af rann-
sóknum sem fram hafa farið á rann-
sóknarstofu Málningar hf. Hún sam-
einar þá tvo eiginleika sem
nauðsynlegir eru í fullkominni utan-
hússmálningu en hefur ekki verið talið
hægt aö sameina áöur: Vatnsheldni og
hleypir jafnframt í gegnum sig raka í
loftkenndu ástandi.
Málningin stenst lemjandi regn i sjö
vindstigum, þ.e. hún hleypir ekki regn-
inu í gegnum sig en veggurinn getur
andað eftir sem áöur. Steinvarinn gæti
því ráðið úrslitum í vöm steinsteyptra
mannvirkja hér á landi.
„Vatn er afgerandi þáttur steypu-
skemmda hér á landi, hvort sem um er
aö ræða alkalískemmdir, frostþiðu-
skemmdir, karbónatiseringu eða
skemmdlr af súru regni,” sagði Oskar
Maríusson, tæknilegur framkvæmda-
stjóri Málningar hf., er hann kynnti
nýju málninguna fyrir blaðamönnum.
Nýjasta undrifl i mólningarheimin-
um, STEINVARI 2000.
DV-myndir Bj. Bj.
„Við hér á Islandi erum tiu árum á
undan öðrum þjóðum i rannsóknum á
t.d. alkalískemmdum á steinsteypu.
i Það var fyrst hér á landi sem vart varð
við slíkar skemmdir í mannvirkjum
sem voru ofanjarðar. Erlendis var
þetta einungis þekkt í mannvirkjum
sem voru undir vatni eins og í sund-
laugum, stíflum o.s.frv.
Nýja málningin getur stöðvað alkalí-
skemmdir. Hún getur ekki „læknað”
húsið en komið í veg fyrir slíkar
skemmdir i framtíðinni.
Málning hf. hefur þegar tryggt sér
einkaleyfi á þessari málningu í Dan-
mörifu.
„Þegar sótt er um einkaleyfi verður
viðkomandi framleiðsla að fara í gegn-
um svokallaða nýnæmisrannsókn. Að-
eins 3% þeirra sem sækja um einka-
leyfið fá það. En steinvarinn okkar
flaug í gegn,” sagði Oskar.
Þessi nýja málning er um 2,4 sinnum
dýrari í innkaupi en hefðbundin máln-
ing. Erfitt er þó að verðleggja slíka
málningu ef hún kemur í veg fyrir að
regnvatn skemmi húsið þegar fram
líöa stundir.
Nú þegar hafa margar byggingar á
vegum Reykjavíkurborgar verið mál-
aðar meö þessari málningu og einnig
hafa verið seldir tugir og þúsundir lítra
á almennum markaði.
Málning hf. er með nokkur hús í mæl-
ingu á hæfileikum steinvarans en tal-
ið er að þurrka megi útveggi húss á
einum til þremur árum eftir því hve
blautur veggurinner.
Steinvarinn bætist við þá f ramleiðslu
sem Málning hf. hefur verið með hing-
aðtfl.
„Við höfum áfram heföbundin máln-
ingarefni fyrir heilbrigð hús þar sem
úrkoma er ekki eins mikil, t.d. á
suðvestur-homi landsins,” sagði
Oskar.
Þeir sem unnu að uppfinningu stein-
varans eru Oskar Maríusson, efna-
verkfræðingur og tæknilegur fram-
kvæmdastjóri, Jón Bjarnason, efna-
verkfræðingur og yfirmaður rann-
Óskar Mariusson sýnir viðstöddum
steinstayptan stein sam nýja móln-
ingin hefur verifl prófufl ó.
sóknarstofunnar, Gísli Guðmundsson
efnaverkfræðingur, framleiðslustjóri,
Asta Guðmundsdóttir efnaverkfræð-
ingur og Sigrún Hrafnsdóttir
rannsóknarmaður.
Hjá Málningu hf. í Kópavogi vinna
45—50 manns. Sex manns vinna á
rannsóknarstofunni og þar af eru þrir
efnaverkfræðingar. Er það einstakt
hjá ekki stærra fyrirtæki aö hafa svo
vel búna rannsóknarstofu. Mikillar ná-
kvæmni er gætt viö framleiöslu allrar
málningar hjá Málningu hf. Starfs-
menn fá í hendur sérstaka uwjskrift
sem kvitta veröur fyrir á rannsóknar-
stofunni. Sérhver máiningarbianda er
merkt með númeri. Ef eitthvað kemur
upp, er á augabragði hægt að sjá
hvemig hvert númer var blandað.
„Við bindum miklar vonir við þessa
nýju málningartegund. Hún er hvorki
meira né minna en bylting i málun
steinsteyptra mannvirkja. Þar sem
hún hefiir verið kynnt erlendis hefur
hún vakið mikla athygli í fagheiminum
og við höfum þegar fengið samstarfs-
aðila í Danmöricu,” sagði Oskar
Mariusson.
Nýja málningin er með mattri áferð
ogframleiddítíustaðallitum. A.Bj.