Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Blaðsíða 8
HREINT LOFT
Loftrœstðcerfi, stór og smé, fyrlr reykherbergi,
kafftetofur, vinnuaaH, ekfiiúa o.fl.
Ennfremur fremieiðum við:
sprautunarklefa fyrir bflasprautun, sprautunarskápa fyrir
smærri hluti, t.d. húsgögn, huröir og fl.
LDvmaKvetí
Skeljabrekka 4 - 200 Kópavogi - Simar: 44040-44100
Stórkostleg nýjung
Nú þarf aldrei að bóna aftur
MASTER GLAZE
lakkvernd
Fyrír bíla og hvaða farartæki sem er
MASTER GLAZE
vemdar gegn:
A. Ryði
B. Salti
C. Sterkri sól
D. Frosti
E. Steinkasti
MASTER GLAZE
gefur djúpa og fallega
áferð sem heldur fletinum
gljáandi í 12 - 18 mánuði.
Með MASTER GLAZE
lakkvemd þarftu aldrei
að bóna aftur.
MASTER GLAZE er steinefni sem slípað er ofan í lakkið. Pantið tíllia.
MASTER GLAZE safnar ekki í sig ryki, sýnir ekki fingraför,
fitubletti eða vatnsbletti.
MASTER GLAZE gefur bílnum varanlega vemd.
Ryóvarnarskálinn
Sigtúni 5 - Sími 19400
i
POWERFAB 360
grafa nú til afgreiðslu
strax
belGo sf
Síðumúla 37, R.
S. 687390 - 84363.
DV. ÞRIÐJUDAGUR18. JUNI1985.
jórdönsku farþegaþotu ALTA flugfélagsins er flugræningjar sprengdu upp á Beirútflugvelli.
EKKERT VITAÐ
UM GÍSLANA
— Amalmenn segjast hafa flutt þá á leynistað í Beirút, aðrir telja þá enn
veraíTWA-vélinni
Amal-skæruliöahreyfing sliíta-
múslima segist enn halda gíslunum úr
TWA vélinni í Beirút en ekki í vélinni
sjálfri. Þeir hafi fariö meö þá á leyni-
legan stað til að koma í veg fyrir
erlenda björgunaraðgerð.
Bandaríski flotinn hefur, að sögn,
mikinn viðbúnað undan ströndum
Líbanon. Þar er meðal annarra skipa
flugmóðurskipið Nimitz, um borð er
sérþjáifuö vikingasveit.
Yfirmaður Amal-hreyfingarinnar,
dómsmálaráðherra Líbanon, Nabih
Berri, sagði í gær að hann hefði séð til
þess að gíslamir y rðu fluttir úr vélinni.
Hann hefði géfið flugræningjunum lof-
orð um aö láta gíslana ekki lausa nema
Israel léti að kröfum þeirra og
slepptu lausum 700 föngum shíta sem
þeir haida.
Hann sagðist einnig hafa lofaö því
að gíslunum yrði ekkert mein gert.
Aðeins eru um 30 gíslar eftir. Upp-
haflega voru þeir 153 farþegar auk
áhafnar. Vélinni var rænt þegar hún
var á leiö f rá Aþenu til Rómar.
Berri sagði að ef Israelar létu ekki
undan kröfum flugræningjanna myndi
hann láta flugræningjana aftur fá gísl-
ana.
Sjónvarpíham
Bandarísku sjónvarps-
stöðvarnar hafa sent heri sjón-
varpsmanna á vettvang til að
fylgjast með gíslamálinu í Beirút.
Fréttamenn og tæknimenn hafa
þotið í leiguvélum til Miðaustur-
landa. ökumenn bruna með mynd-
bönd frá Beirút til Damaskus,
þaöan sem hægt er að senda
myndir til Lundúna í gegnum
gervihnött.
Sjónvarpsstöðvarnar hafa leigt
símaiínur sem eru opnar allan
sólarhringinn. Um leið og eitthvað
gerist í Beirút er sagt frá því í
Bandaríkjunum.
Vilja sniðganga
Aþenuflugvöll
Samtök flugfarþega víða um heim
lögðu á fundi sínum í gær á það áherslu
að farþegar i millilandaflugi notuöu
ekki flugvöllinn í Aþenu og þrjá aðra
flugvelli vegna skorts á öryggisgæslu
ogtíðraflugrána.
Hans Krakauer, varaforseti
alþjóðasamtaka flugfarþega, IAPA,
sagöi að meira en hundrað þúsund
félagsmönnum í 170 löndum hefði verið
ráðlagt að nota ekki flugvöllinn við
Aþenu vegna „óviðunandi skorts á
öryggisráðstöfunum” og tíðra flug-
rána undanfarið en flugvöllurinn í
Aþenu var sem kunnugt er brottfarar-
staður þeirra flugræningja er rændu
flugvél bandaríska flugfélagsins TWA
og halda nú gíslum í Beirút.
Flugmenn hafa löngum bent á slæ-
lega öryggisvörslu á Aþenuflugvelli
með tilliti til flugrána.
Samtök breskra atvinnuflugmanna
sendu í gær frá sér yfirlýsingu þar sem
lagt er til að bannað verði allt farþega-
flug til Aþenu þar til bætt verði stór-
lega úr öryggiseftirliti á flugvellinum.
Alþjóðasamtök flugmanna, IFAPA,
hafa að undanförnu þrýst á ríkis-
stjómir að beita sér fyrir auknu
öryggiseftirliti á alþjóðaflugvöllum
þannig að í eitt skipti fyrir öll takist að
koma í veg fyrir flugrán í framtíðinni.
Bandaríska skutlan:
Með hnöttfyrirPLO
18. ferð bandarísku geimskutl-
unnar Discovery gengur samkvæmt
áætlun. Geimskutlunni var skotiðá loft
frá Canaveralhöfða í Florida i gær. I
áhöfninni eru m.a. prins frá Saudi
Arabíu, franskur flugmaður auk fimm
Bandaríkjamanna. Mikiö ber á
erlendmn tæknibúnaöi i frakt geim-
skutlunnar. Fullkomnum mexi-
könskum gervihnetti var komið á spor-
baug um jörðu i nótt og gekk vel að
koma honum úr lest skutlunnar. Mun
gervihnötturinn koma til með valda
byltingu í öllum f jarskiptum Modkana
og fylgdust þarlendar sjónvarps-
stöðvar með mikilli athygli með því
þegar gervihnettinum var komið á
sporbraut.
I dag er ætlunin að koma fyrir full-
komnum gervihnetti, ARABSAT, sem
21 arabariki auk frdsissamtaka Palest-
ínu eiga og er megintilgangur hans
bætt fjarskipta- og símakerfi fyrir
botni Miðjarðarhafs. AbduLAzis, saudi-
aratáski prinsinn um borð, kemur í dag
til með að fylgjast sérstaklega með því
þegar arabíski gervihnötturinn verður
losaður frá geimskutlunni enda sér-
stakur fulltrúi þeirra arabaríkja sem
standa að gervihnettinum.
Israelar hafa sagt að þár muni ihuga
að láta fangana 700 lausa komi beiðni
um það frá Bandaríkjunum. Banda-
ríkjastjórn segist hins vegar ekki
munu láta undan flugræningjunum.
Flugræningjarnir vilja einnig að
tveir ákærðir morðingjar á Spáni verði
látnir lausir. Stjórn Spánar sagði upp-
haflega að slíkt kæmi ekki til greina en
hefur nú sagt að sú ákvörðun kunni aö
breytast.
Mikil óvissa ríkir um hvort glslarnir
hafa raunverulega verið fluttir úr vél-
inni. Enginn í Beirút virðist hafa séð
það og fréttamenn komast ekki nálægt
flugvellinum.
Maðurinn sem var skotinn til bana
og hent út úr vélinni á laugardag var
bandarískur sjóhermaður, 23 ára
gamall.
Shítarsemja við
Palestínumenn
Mikilvægt skref til friðar í
Líbanon var stigið í nótt er
líbanskir shítar í Amal-hreyfing-
unni og samtök palestinumanna,
svonefnd Þjóðfylking, sem höfuð-
stöðvar hefur í Sýrlandi, komu sér
saman um friðarskilmála til að
enda 27 daga blóðuga bardaga fylk-
ingannaíBeirút.
Samningaumleitanir hafa staðið
í marga daga og var um tíma mjög
svo tvísýnt um að samningar næð-
ust. Samningurinn var undirrit-
aður í Damaskus í Sýrlandi í nótt
og gerir ráð fyrir að herir viðkom-
andi aðila dragi sig i hlé á róstu-
svæðunum auk þess sem skorað er
á sveitir í libanska hemum að
halda sig frá þeim flóttamanna-
búðum þar sem barist hefur verið
undanfarinn mánuð.
ÓsættiíOttawa
Sex vikna ráðstefnu þeirra rikja
er undirrituðu mannréttindasátt-
málann í Helsinki lauk með alls-
herjarósætti um helgina í Ottawa er
austantjaldsríki lögðust gegn til-
lögu vestantjaldsrikja um að hitt-
ast reglulega. Þrátt fyrir fáar sam-
þykktir á ráðstef nunni í Kanada og
mikinn ágreining eru stjómar-
erindrekar almennt sammála um
að aðeins það aö hittast, tíu árum
eftir að Helsinkisáttmáiinn var
undirritaður, hafi verið töluverður
árangur.
Umsjón:
ÞórirGuðmundsson
og Hannes Heimissonar