Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Síða 26
26
DV. ÞRIÐJUDAGUR18. JUNI1985.
fótboltaskómir
fyrir gras. St, —46.
Verðkr. 990-2.190,-
Fyrir möl. Stærðir: 32— 46»
Verð kr. 990-1.990,-
Fyrir gervigras. Stærðir:
5-10 1/2.
Verð kr. 1.990,-
w
® nsíuno ®
SPORTVORUVERSLUN
Háaleitisbraut 68 Austurver
Simi 8-42-40
• (Jr lelk KR og Vikings á laugardag.
íþróttir íþróttir
„Fó ri iað reyna kýli ingar
ef ti rVí kingsn narl lið”
— sagði Gordon Lee, þjálfari KR, sem var ekki að öllu leyti sáttur
við sína menn þrátt fyrir sigur á Víkingi, 2:1
„Ég er mjög ánægður með leik
minna manna í fyrri hálfleik og
framan af þelm seinni. Hins vegar var
ég mjög óánægður með það hvemig
lelkmennimlr bmgðust við Víkings-
marklnu, þeir hættu að spila en fóm
þess í stað að reyna kýlingar,” sagði
Gordon Lee, þjálfari KR, eftir að liðið
hafði sigrað Viking á KR-velllnum á
laugardaglnn, 2—1.
Leikurinn var fyrsti vinningssigur
KR-liðsins ef undanskilinn er „Jóns-
leikurínn” gegn Þrótti sem tapaðist á
kæm. Þrír leikir KR-inga af fimm hafa
endað með jafntefU en þeir hafa verið
óopinberir meistarar í jafhteflum und-
anfarin ár. Víkingsliðið hefur ekki
borið sitt barr eftir meistaraárin 1981
og ’82 og Uðiö stendur nú mjög höUum
fæti. Sigur í fyrsta leik en tap í f jórum
síöustu.
KR var mun sterkari aðilinn
framan af en tókst þó ekki að gera
meira en eitt ógdt mark. Ágúst Már
Jónsson tók þá horn og WiUum Þórsson
og ögmundur Kristinsson áttust við,
WUlum stjakaði við ögmundi og inn fór
boltinn. Gunnar Gíslason og Július
Guðmundsson voru síðan báðir nálægt
því að skora en hálfleikurinn var án
gildra marica.
I seinni hálfleiknum komust Víking-
ar meira inn í leikinn og voru nálægt
því að ná forystunni eftir fimm
minútna leik. Þórður Marelsson fékk
upplagt færi á markteig en skotið var
laust og Stefán Jóhannsson átti ekki í
miklum erfiöleikum með að ver ja. Það
var á 19. mínútu að vesturbæingarnir
náðu forystunni. Aukaspyrna frá
hægri kanti sem Hálfdán örlygsson
tók, hann sendi boltann inn í mark-
teiginn þar sem Jósteinn Einarsson
var einn og óvaldaður og átti ekki í
erfiðleikum meö að skalla í markið
framhjá sofandi Víkingum. Fimm
mínútum seinna bættu KR-ingar við
öðru marki. Sæbjöm Guðmundsson
náði þá boltanum eftir slæm mistök
eins leikmanns Víkinga og brunaði inn
í vítateiginn þar sem hann skaut föstu
skoti framhjá ögmundi Víkingsmark-
manni og í markið, 2—0. Víkingar sóttu
í sig veðrið eftir markið og náðu að
skora tíu mínútum fyrir leikslok.
Aðalsteinn Aðalsteinsson og Þórður
Marelsson léku boltanum þá saman á
hægri kantinum, Þórður gaf sendingu
inn í vítateiginn þar sem Andri
Marteinsson sneri laglega á KR-
vörnina og sendi boltann fram hjá
Stefáni Jóhannssyni, markverði KR.
Nokkur spenna komst í leikinn en
Víkingarnir náðu ekki að skapa sér
nein umtalsverð færi j)ann tíma sem
eftir lifði. KR-ingar hins vegar eitt. Ás-
björn Björnsson átti skalla í stöng.
Gunnar Gíslason, Sæbjörn
Guðmundsson og Hálfdán örlygsson
stóðu allir mjög vel í þessum leik. Þeir
Gunnar og Hálfdán léku sem bakverðir
en tóku báöir mikinn þátt í sóknar-
leiknum og sköpuöu þá hvað eftir
annaðmikla hættu.
Hjá Víking var Andri Marteinsson
frískur en hefur þó oft leikið betur.
Jóhann Holton og Einar Einarsson
geröu góða hluti er þeir komu inn á
sem varamenn.
Þá virðist sem framherjarnir
Amundi og Atli séu ekki nógu fundvísir
á mark andstæöinganna. Hafa aðeins
gert eitt mark í fimm leikjum.
Lið KR: Stefán Jóhannsson, Gunnar
Gíslason, Hálfdán örlygsson, Hannes
Jóhannesson, Jósteinn Einarsson,
Willum Þórsson, Ágúst Már Jónsson
(Jakob Pétursson), Ásbjörn Björns-
son, Björn Rafnsson, Sæbjöm
Guðmundsson. Július Guðmundsson
(JónG.Bjamason).
Dómari var Friðjón Eðvarðsson.
Maður leiksins: Gunnar Gíslason.
-Fros.
RENNDU VÐ EÐA HAFÐU SAMBAND
Hér hefði
FÚAVÖRN
komið að gagni.
Hjá JL-Byggingavörum eru til allar tegundir af fúavarnarefnum
(Woodex, Pinotex, Solignum og Arcitectural).
Fáið ráðleggingar afgreiðslumanna okkar á vali á bestu efnunum
og hvernig best er að verjast fúaskemmdum.
Við minnum á 5-20% afslátt á málningu.
FTl BYGGIMG flVÖRBR
MÁLNINGARVÖRUDEILD, HRINGBRAUT 120.