Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1985, Side 42
42
DV. ÞRIÐJUDAGUR18. JUNI1985.
Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tfðarandinn Tíðarandinn Tfðai
Allir spenna
bogann
jafnhátt
—fatlaðir sem ófatlaðír
Þaö er kannski einkennandi fyrir
íþróttagreinina aö æfingasalurinn er
hálffalinn í kjallara Hátúns lOa. Bog-
fimi er ekki útbreidd íþrótt hér á landi.
Þaö var Iþróttafélag fatlaöra sem
fyrst tók þessa íþróttagrein upp á
arma sína og nokkrir einstaklingar í
félaginu fóru aö æfa 1974. Fæstir urðu
iðkendur 2 en á síöustu árum hafa æ
fleiri byrjað að æfa þessa skemmtilegu
íþrótt. Nú stunda yfir 30 manns bog-
fimi á vegum Iþróttafélags fatlaöra,
þar af er helmingurinn ófatlaö fólk.
w Húsmóðir, bifvéla-
virki, smiður
Aöstööuleysi stóð lengi vel bogfim-
inni fyrir þrifum. Það hefur hins vegar
breyst til betri vegar því 24. jan. sL var
tekin í notkun æfingaaöstaöa í Hátúni
lOa. Þar geta bogmenn skotiö aö marki
óáreittir.
Sú sem sér um að kenna nýliðum
undirstöðuatriðin er Elísabet Vil-
hjálmsson. Hún varö sem kunnugt er í
ööru sæti á Noröurlandamóti fatlaðra í
bogfimi sem haldiö var fyrir skömmu.
„Ég vil ekki láta kalla mig þjálfara.
Eg er fyrst og fremst leiðbeinandi
vegna þess aö ég keppi líka sjálf. En ég
er nú hætt í bili a.m.k. Ég setti mér þaö
markmið að vinna til verðlauna á
Noröuriandamótinu og þaö tókst. Ætli
ég láti þaö ekki gott heita.
Hópurinn sem æfir hér er mjög
blandaður. Hér er alls konar fólk, hús-
móðir, bifvélavirki, smiður og
tannlæknanemi. Húsmóöirin er reynd-
ar eina konan hér á landi sem æfir bog-
fimi, auk mín. En þaö munu víst fleiri
konur ætla sér aö byrja í þessu. Þetta
er ekkert frekar íþrótt fyrir karla en
konur.”
Sagan bak við bogann
— Hvenær byrjaðir þú að æfa bog-
fimi?
„Ég fékk nasasjón af þessu veturinn
1977—78. En fljótlega eftir þaö slas-
aðist ég og hélt þá aö ég yrði að gefa
allt upp á bátinn. En ég náöi mér aö
nokkru leyti og gat byrjaö aö æfa aftur
1980. Sama ár vann ég gull í keppni og
þaö gaf mér byr undir báöa vængi.
Samhliða æfingunum fór ég aö lesa
mér til um bogann. Boginn á sér langa
sögu enda hefur hann fylgt manninum
í mörg þúsund ár. Nýlega fundust t.d.
50.000 ára gamlir örvaroddar sem
sanna að forfeður okkar voru vel
kunnugir boganum.
Þaö var svo 1981 sem ég fer út til
Þýskalands á námskeið í bogfimi. Ég
lærði mikið þarna úti og hef síðustu ár
verið aö vinna úr þessum fróðleik
ásamt þeim sem æfa hér.
Þaö sem ég legg mesta áherslu á viö
„Ertu orðinn vitlaus, Gunnar," kallaði Elísabet þegar Ijósmyndarinn settist á hækjur sór fyrir framan bog-
mennina og bjóst til þess að taka þessa mynd. En þeir Þröstur, Bjöm og Helgi eru vanar skyttur og þeim
varð ekki skotaskuld úr þvi að hafa bogana spennta meðan Ijósmyndarinn smellti af. DV-myndir GVA.
byrjendur er aö þeir læri réttu hand-
tökin áður en þeir skjóta af alvöru-
boga. Þaö er aftur á móti oft erfitt þvi
menn eru óþolinmóðir. En ég hef notað
þá aðferð aö láta byrjendur spenna létt
rafmagnsrör. Þaö er mun auðveldara
fyrir þá og ekki síst mig. Ég á miklu
auðveldara með að segja þeim til.
Þessa aðferö fann ég upp sjálf en þaö
hafa víst fleiri uppgötvað hana,” segir
Elisabet og hlær.
Handalaus bogmaður
En hvers vegna hefur bogfimi náö
jafnlitilli útbreiöslu hér á landi og raun
ber vitni? Þessi spuming var lögö fyrir
viöstadda.
„Þaö fer ekki á miili mála aö
aöstöðuleysið hefur þar haft sitt aö
segja. Það er til fjöldinn allur af
bogum í landinu. Samkvæmt skránni
hjá Utilífi eru þeir um 300. En hvar er
allt þetta fólk?” Og einn bætti við:
„Þaö vantar frumkvæði. Það vantar
að einhverjir taki sig saman og kynni
þessa íþrótt fyrir fólki. Hvaö
aðstöðuna varðar þá hefur þessi
aðstaöa okkar hér bætt mikið úr
skák.”
Elísabet hafði þetta að segja: „Ég er
bjartsýn á að bogfimin nái fótfestu hér
á landi, svo framarlega sem okkur er
ekki haldið niðri af borgaryfirvöldum.
Okkur stendur til boða núna allstórt
svæði uppi á Ártúnshöfða en það
stendur á borginni að samþykkja það.
Bogfimi er skemmtileg íþrótt sem
allir geta stundað, burtséð frá því
hvort viðkomandi er fatlaður eða ófatl-
aður.” Og eftir að hafa séð mynd uppi
á vegg af sænskum handalausum
dreng sem er að skjóta af boga, er ljóst
að bogfimi er íþróttagrein þar sem
allir sitja við sama borð. Markmiðið er
að skjóta ör í mark. Hvernig það er
gert skiptir minna máli.
-ÞJV.
Bogfimiklúbburinn
,,Aðstöðuleysi hefur alltaf staöiö
bogmönnum hérlendis fyrir þrifum.
Við tókum þvi nokkrir höndum saman
15. mars sl. og leigðum þetta húsnæði
hér á Smiðjuveginum. Jafnframt
höfum við stofnað félagsskap áhuga-
manna um bogfimi sem hefur það að
markmiði að hef ja íþróttina til vegs og
virðingar hérlendis.” Svo farast
Gunnari Páli, einum aðstandenda bog-
fimiklúbbsins, orð um þennan ný-
stofnaða félagsskap.
„Bogfimi er íþrótt sem allir geta
stundað. Það er því skrýtið hversu
lítilli útbreiðslu hún hefur náð á Is-
landi.”
— Hvað eruð þið margir í bogfimi-
klúbbnum?
„Við erum ca 25 sem æfum hér
reglulega, þetta 2-3 í viku. Það er hins
vegar langt frá því að aöstaðan sé full-
nýtt. Okkur vantar því tilfinnanlega
fólk í klúbbinn til að nýta aðstöðuna og
ekki síst til að styrkja bogfimina sem
íþróttagrein. Við hjálpum byrjendum
aö komast af stað, lánum þeim boga og
kennum undirstöðuatriðin. Það er sem
sagt allt til reiðu. Okkur vantar bara
fólkið.”
„Fólk þarf að uppgötva
bogfimina”
„Það er til mikið af bogum á Is-
landi, sérstaklega úti á landsbyggð-
inni. Það er alveg nauðsynlegt að
koma einhverri reglu á þetta og kenna
mönnum að fara með boga. Þá er hægt
að fara að keppa í þessu fyrir alvöru.
Iþróttafélag fatlaðra hefur sýnt
þeím mönnum sem staðið hafa í þessu
á undanfömum árum mikinn skilning.
Við höfum fengið að æfa með þeim og
'taka þátt i mótum á þeirra vegum. En
Nokkrir félagar i bogfimiklúbbnum mefl boga sina.
DV-myndir S
það vantar að geta haldiö keppni
oftar.”
Hvar stöndum við Islendingar í bog-
fimi miöaö við aðrar þjóðir?
„Viö erum vitaskuld töluvert á eftir,
ekki síst vegna þess að við æfum ekki
að skjóta af 25 metra færi eins og gert
er á mótum erlendis. Þó höfum við náð
ágætum árangri í bogfimi fatlaðra. En
ég er viss um að með æfingu og eflingu
íþróttarinnar tekst okkur aö standa
jafnfætis erlendum þjóðum í framtið-
inni. Spuming er bara hvort fólk gerir
sér grein fyrir hversu skemmtileg og
fjölbreytt íþrótt bogfimin er,” sagði
Gunnar PáU, einn af félögum hins ís-
lenska bogfimiklúbbs.
-ÞJV.
Arnar Freyr (t.h.) sést hór losa örvar sinar úr skotskífunni. Þær gaymir
hann í sérstöku hylki sem haft er um mittifl.