Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1985, Page 1
DAGBLAÐIЗVÍSIR
176. TBL. -75. og 11. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985.
VIÐ HÖFUM EKKIÁÐUR
FENGIÐ SVONA ÓGNUN
— segir forstjóri Flugleiða um flug People Express milli Briissel og New York
Bandarískt flugfélag, People Ex-
press, ógnar flugi Flugleiöa milli
Lúxemborgar og New York. I byrjun
september næstkomandi byrjar
People Express daglegt flug milli
Briissel í Belgíu og New York. Odýr-
asta fargjaldið verður til að byrja
með helmingi lægra en ódýrasta far-
gjaldFlugleiða.
„Þetta þýðir mjög aukna sam-
keppni við okkur því að Briissel er
mjög nálægt Lúxemborg,” sagði Sig-
urður Helgason, forstjóri Flugleiða.
„Við erum ekki búnir að taka end-
anlega ákvörðun um hvernig við
bregðumst við. Við erum að bíða og
sjá hvað önnur flugfélög gera. Viö
tökum mið af ákvörðunum þeirra.
Við sjáum innan nokkurra vikna
hvað við gerum.”
— Er ástæða til að óttast að Flug-
leiðir missi mikil viðskipti til People
Express?
„Við vitum það ekki ennþá. Við
höfum miklar áhyggjur af þessu.
Það er þó ekki víst að þeir taki far-
þega frá okkur. Þaö gæti veriö aö
þeir nái í nýja farþega — farþega
sem annars hefðu ekki flogið.”
— Hafið þið fengið aðra eins ógnun
eins og þetta flugfélag í gegnum ár-
in?
„Við höfum ekki fengið svona ógn-
un inn á meginlandið. Laker og eins
People Express hafa flogið inn á
London. En inn á meginlandið held
ég að það sé óhætt að segja að það
hafi ekki komiö aðilar í áætlunar-
flugiö með fargjöld svona langtum
lægri en við.
Leiguflugfélög hafa undanfarin ár
verið með fargjöld þó nokkuð mikið
lægri en við en þó aðallega bara yfir
sumartímann,” sagöi Sigurður.
Lægsta fargjald Flugleiða milli
New York og Lúxemborgar og til
baka er 399 dollarar. Lægsta far-
gjald People Express báðar leiöir
milli Briissel og New York verður 198
dollarar en hækkar 1. október upp í
298 dollara.
Til flugsins notar People Express
eingöngu Boeing 747 breiðþotur.
-KMU.
Slökkviliðinu tókst fljótlega að ráða niður-
lögum eldsins en mesta mildi var að ekki
fór verr. DV-mynd S.
Kveikt í hjá Málningu
1 Rannsóknarlögreglan kannar málið
Nærri lá við stórslysi þegar eldur
kom upp hjá fyrirtækinu Málningu hf. í
* Kópavogi síðdegis í gær. Þykir sýnt aö
urh íkveikju hafi verið að ræða og
JÉ kannar nú Rannsóknarlögreglan
niálið.
Það var upp úr klukkan 18 í gær að
slökkviliðinu barst tilkynning um að
eldur logaði upp úr þaki á húsi sem til-
heyrir fyrirtækinu. Er hús þetta notað
við blöndun á þynni. Tókst fljótlega að
ráða niðurlögum eldsins þannig að
hann breiddist ekki út. Skemmdir urðu
þó á húsinu.
Að sögn Rannsóknarlögreglunnar
var mesta mildi að ekki fór verr. Mun
hafa veriö kveikt í pappakössum í einu
horni hússins. Enginn var inni í húsinu
þegar eldurinn kom upp.
-KÞ.
Flugogbíll
áf'ógnm
sumardegi
— bls.2
Friðun'
Paradís?
Þórir Guðmundsson
skrifarfrá Indlandi
- bls. 10
Ostakaka
Oddnýjar
Tilraunaeldhús DV
- bls. 9
„Mérlístekki
illaátilboö
Birkis”
— bls. 4
Skemmtiferð
a/draðraí
Langholtssókn
íSviðsljósi bls. 28
„Myndihugsa
migvelum
áðurenég
tæki tilboðr
— segir Þorgrímur
Þráinsson í Val
— íþróttir bls. 17