Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1985, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1985, Side 6
DV. MHMKUDAGUR 7. ÁGUST1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Ofsarok, flóð, skriður og snjór í suðurhluta Evrópu Margir björguðust á hlaupum undan stórbrimi við Miðjarðarhafsströndina Ein f jölfarnasta landleiöin í Evrópu, Brennerskaröiö, lokaöist af skriöu- föllum og tugir fjallgöngugarpa sitja fastir í svissnesku ölpunum vegna hvassviöris í Miö- og Suður-Evrópu. Orlofsgestir viö Miöjarðarhafs- strönd Frakklands hafa flúið tjald- og hjólhýsastæöin vegna mikils brims af völdum sama veðurs. Brennerskaröiö lokaöist þegar aur- skriða féll yfir allar fjórar akreinar vegarins og járnbrautarlínuna frá Italíu til Innsbruck. Um Brennerskarð fara daglega tugir flutningabíla aö jafnaði. Tvö dauösföll urðu í Austurríki og víöa hlaust af mikiö tjón vegna hvass- viörisins. Áin Inn flæddi yfir bakka sína og varð lögreglan aö loka hverfum í miðborg Innsbruck vegna flóösins. I Salzburg, þar sem krökkt er af að- komufólki þessa dagana vegna sumar- tónleikanna þykir hætta á að áin Salazach flæöi einnig yfir bakka sína. Sami stormurinn hefur geisað yfir Noröur-Italíu og-valdiö tjóni á húsum auk truflana í vegasamgöngum. I Zermatt í Sviss hafa björgunar- sveitir haft ærinn starfa viö að bjarga fjallgöngufólki en þar hafa úrhellis- rigningar og jafnvel snjókoma (sem er óvenjulegt á þessum tíma árs) fylgt KJARNORKUVOPNALAUST SVÆÐI í SUÐUR-KYRRAHAFI Astralía, Nýja-Sjáland og ellefu önnur sjálfstæð ríki í Suður-Kyrrahafi lýstu í gær yfir kjarnorkuvopnalausu svæði á Suður-Kyrrahafi. Á fundi er1 viðkomandi ríki héldu í Rarotonga,1 höfuöstaö Cook eyja, var skrifaö undir samning þar sem þátttökuríkin skuld- bundu sig til aö banna aila meðhöndlun og geymslu slíkra vopna á svæðinu auk þess sem öll notkun þeirra var bönnuö. Þátttökuríki lögðu einnig mikla áherslu á aö berjast gegn því aö kasta geislavirkum úrgangsefnum í haf- svæði Suður-Kyrrahafs en nokkur brögö hafa verið að slíku á liðnum árum. Forsætisráöherra Nýja- Sjálands, David Lange, var í forsæti á ráðstefnunni og opinberaði niöur- stöður og samþykktir aö ráöstefnu lok- inni. Arangursríkri ferð skutlunnar lokið Bandaríska geimskutlan Challenger lenti í gær á Edwards flugstööinni í Kaliforníu eftir átta daga sögulega ferð í geimnum. „Þessi ferð geimskutl- unnar er án efa mikilvægasta ferð í þágu geimrannsókna er nokkru sinni hefur verið farin,” sagöi háttsettur fulltrúi bandarísku geimferða- stofnunarinnar aö aflokinni feröinni. Ferðin byrjaði ekki vel því við flug- tak frá Caraveralhöfða stöövaöist annar aðalhreyfill geimskutlunnar auk fleiri bilana í tækjabúnaöi. Að sögn Dr. Umsjón: Guðmundur Pétursson og Hannes Heimisson Burton Edelson, er yfirumsjón hafði meö vísindarannsóknum geimskutl- unnar í þetta sinn, tókust yfir 80 prósent þeirra rannsókna er voru á verkefnaskrá áhafnarinnar á eins full- kominn hátt og mögulegt var. Tæknimenn eru þegar farnir aö undirbúa næsta flug geimskutlunnar er áætiað er innan þriggja vikna. Búist er við hugsanlegum töfum á þeirri ferð vegna bilana þeirra er komu fram í síöasta flugtaki og vísindamenn keppast nú við að rannsaka. Mikilvægasta ferðin til þessa, segja vísindamenn um nýaf- staðna ferð Challenger. hvassviðrinu. Einn hópurinn, 13 Spán- verjar, 4 Austurríkismenn, 2 Bretar og 1 V-Þjóðverji, hírist í litlu sæluhúsi rétt neðan við 4.777 metra háan tind Matterhoms. Tíu voru hætt komnir og 19 ára stúlka drukknaði í einni orlofsparadís Frakka við Miðjarðarhafið þar sem brimöldurnar komust yfir tvo metra á hæð. Margir urðu að skilja eftir bíla sína, tjöld og hjólhýsi og áttu fótum fjöraðlauna. Um leið hafa skógareldar kviknað að nýju í Suður-Frakklandi og á Korsíku og ræðst ekkert við eldana í rokinu. Sex slökkviliðsmenn hafa farist í viðureignum við skógarelda siöustu viku. Veðrin, sem stundum ganga yfir Suður-Frakkland með flóðum og öðru, geta gert mikinn usla eins og þessi mynd ber með sór. Gamlir nasistará varöbergi Nú er taliö fullsannað að bein þau er fundust við uppgröft í Brasiliu fyrr í sumar og talin voru líkamsleifar stríösglæpamannsins Jósef Mengele voru það í raun og veru. Rúmum 40 árum eftir aö stríðinu lauk í Evrópu virðast suður-amerísk yfirvöld enn lita með tortryggni á hluta þeirra þúsunda þýsku innflytjenda er flúðu Þýskaland í striðslok. Nú er uppi allsherjaráætlun yfirvalda í Argen- tínu, Chile, Paraguay, Bólivíu og Urugay um að komast í eitt skipti fyrir öll að raunverulegum uppruna þeirra Þjóðverja er settust að í löndum þeirra eftir stríðslok. Búist er við að rann- sóknin verði gerð i samvinnu við vest- ur-þýsk yfirvöld og standi í nokkur ár. Útsending- arBBC stöðvaðar ídag BBC-útvarpið breska þaggaði niður í öllum fréttasendingum sínum, sem beinast út fyrir landsteinana, og er þaö í fyrsta skipti á 53 ára löngum ferli sem þetta gerist. Fréttamenn BBC seg ja að það sé gert í mótmælaskyni við ritskoð- unartilburði bresku ríkisstjórnarinn- ar. Þarna er um að ræða fréttaútsend- ingar á 37 tungumálum, sem stöðvast í heilan sólarhring. Er það liður í mót- mælavinnustöövun vegna bannsins við því að BBC-sjónvarpið sýndi kvik- mynd með viðtali við einn helsta for- ingja Irska lýðveldishersins. Þessar fréttaútsendingar BBC eru taldar ná til um 100 milljóna hlustenda viðs vegar um heim. — En í dag verður einungis send út tónlist. 1 mótmælunum er stjóm BBC gagn- rýnd fyrir þýlyndi við ríkisstjórnina sem hafði mælst til þess að hætt yrði við að sýna viðtalið við Martin McGuinness. Fréttamennimir segja að það álit, sem BBC hafi notið fyrir hlutleysi í fréttaflutningi, hafi mjög spillstaf þessu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.