Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1985, Qupperneq 10
10
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. ÁG0ST1985.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Utlönd
Af tamflum og sinnhölum á Sri Lanka:
Fríður
Parádís?
Þórir Guðmundsson skrifar f rá Indlandi
■■■*& mamm ■
Paradísareyjan Sri Lanka er friö-
sæl þessa dagana. Þaöan berast ekki
fréttir af fjöldamorðum, hermenn
halda sig aö mestu í bækistöðvum
sínum og skæruliðar tamila bíða óró-
legir eftir fréttum frá Bhútan. Því
þaö er í Bhútan sem fulltrúar skæru-
liða, Sri Lanka-stjórnar og Indlands-
stjórnar funda um framtíð friðar á
þessari indælu eyju undan suðurodda
Indlands.
Miklar vonir
Hér í Nýju-Delhí binda menn mikl-
ar vonir við fundina í Bhútan. Hin
nýja stjórn sem Rajiv Gandhi mynd-
aði eftir þingkosningarnar í fyrra
hefur látið tamílavandamálið á Sri
Lanka mjög til sín taka. Stjórn hans
hefur þegar reynst miklu viljugri til
að beita tamilaskæruliða þrýstingi
heldur en stjórn móður hans, Indiru
Gandhi. Leiðtogar tamíla kvarta yfir
því að leiðtogar indversku leyniþjón-
ustunnar hafi skipað þeim að færa
bækistöðvar hryðjuverkahópa sinna
lengra inn í land, þaðan sem erfiðara
er aö ráöast y f ir sundiö til Sri Lanka.
Og það var þrýstingur Indlands-
stjórnar er fékk skæruliðana til að
taka þátt í viðræöunum í Bhútan.
Utlitið fyrir frið á Sri Lanka er
betra nú en nokkru sinni áöur eftir að
deilur hófust á milli hinna tveggja
þjóðarbrota á eyjunni er Sri Lanka
fékk sjálfstæði árið 1948. Stjórn
Júníusar Jaywardane segist vera
reiðubúin tii að auka mjög sjálfstæði
tamila í eigin málum, ef hægt er að
gera það án þess að breyta stjórnar-
skránni, og ef tamílskir skæruliðar
hætta hryðjuverkum sínum og
skæruhernaði.
Óbreyttir fyrir
barðinu
Það er ekki eintóm góðvild er ligg-
ur þar að baki. Nú undanfarið hafa
skæruliöar tamila ráðist á óbreytta
sinnhalíska borgara, en áöur beindu
þeir aðgerðum sínum aðallega gegn
hemum. Öbreyttir sinnhalar hafa í
staðinn beint reiði sinni að stjórninni
en ekki að skæruliðum. „Stjórn, sem
getur ekki variö eigin borgara fyrir
morðingjaárásum, veröur annað-
hvort að finna leið til aö leysa vand-
ann eða segja af sér,” segja sinnhal-
ar á Sri Lanka. Þannig hugsa marg-
ir, og Jaywardane hefur ekki efni á
að láta hlutina danka eins og margir
saka hann um að hafa gert allt of
lengi. Þess vegna sneri hann sér til
Rajiv Gandhi og hjá honum fékk
Jaywardane góðar móttökur.
Rajiv Gandhi hafði sigrað í þing-
kosningunum á Indlandi með meiri
yfirburöum en jafnvel Nehru og
Indíra móðir hans gátu státaö af.
Eitt meginviðfangsefni stjómar
hans er baráttan gegn aðskilnaöar-
öflum á Indlandi. Rajiv Gandhi
skildi vandamál Jaywardane og
hann var reiðubúinn að treysta
tamílskum skæruliðum — sem lifa á
Indlandi — til að setjast viö
samningaborðið.
Skæruliðar tregir
Þeir einu sem ekki eru fyllilega
ánægðir með framvindu mála eru
Kappi að nafni Prabhakaran, leið-
togi eins skæruliðahóps tamíla ó
Sri Lanka.
skæruliðarnir sjálfir og erlendir
hjálparkokkar þeirra. Þeir hafa
hingað til barist fyrir sjálfstæðu ríki
og þeim er ekki vel við að leggja nið-
ur vopn fyrr en þeir fá sitt eigið
heimaríki og kröfum sínum fullnægt.
Skæruliðarnir hafa ekki hugsað sér
neitt annað en mikinn þátt í stjóm
fyrirhugaðs ríkis. Tamílar hafa feng-
ið mikinn stuðning frá indverskum
hjálparkokkum er stutt hafa við bak-
iö á þeim með vopnum og þjálfunar-
búöum fyrir stríðsmenn sína. Vitað
er að skæruliðar hafa einnig fengiö
þjálfun í þjálfunarbúðum PLO í
Líbýu og hugsanlega víðar.
Sinnhalar til valda
Ástæðu þessa brambolts á Sri
Lanka má rekja aftur til þess tíma er
Bretar réðu yfir eyjunni, eins og svo
margt er miður fer í Suður-Asíu.
Bretar notuðu gjarnan tamíla sér til
aðstoðar við stjórnun eyjunnar.
Þannig myndaðist eins konar yfir-
stétt tamíla er meirihluti sinnhala öf-
undaði og hataði.
Þegar landið fékk sjálfstæði,
nokkru eftir síðari heimsstyrjöldina,
og farið var að kjósa stjórn eyjunnar
í almennum kosningum, komust hins
vegar sinnhalar til valda. Áöur en
Solomon Bandarainake komst til
valda í kosningunum 1956 lofaði hann
að gera sinnhalísku að eina opinbera
tungumálinu í landinu áður en 24
tímar væru liðnir frá eiðtöku hans.
Nú þurftu tamílar, er völdust til opin-
berra embætta, að sýna fram á kunn-
áttu í sinnhalísku, ef þeir vildu halda
embættum sínum.
Næsta stórátakið gegn tamilum
kom á stjórnartíma ekkju Bandar-
ainakes. Hún innleiddi árið 1972
stjórnarskrá er treysti enn forrétt-
indi þeirra er töluðu sinnhalísku og
gerði búddatrúna að hálfgerðri opin-
berri trú landsins.
Þetta gerði hún, jafnvel þó aö um
18 prósent íbúanna — tamílarnir —
væru hindúatrúar.
Menntamál
En verst var vegið að tamílum í
menntamálum. „Staðalkerfi” frú
Bandarainake leiddi til þess að
tamílar þurftu hærri einkunnir til aö
komast í háskóla en sinnhalar. Fjöldi
tamíla, er komst í háskóla, minnkaði
geysilega og í fyrsta skipti voru
tamílsk ungmenni farin fyrir alvöru
Teframleiðsla er einn fjögurra undirstöfluatvinnuvega eyjarskeggja.
Fró vinstri: Jaywardane, forseti
Sri Lanka, og Rajiv Gandhi, for-
sætisróflherra Indlands.
að velta fyrir sér hugmyndum um
stofnun sjálfstæðs ríkis tamíla á Sri
Lanka.
Eftir að Júníus Jaywardane komst
til valda árið 1977 hefur hagur tamíla
farið örlítið batnandi. Þeim er ekki
mismunað eins ofboöslega í mennta-
málum og áður, og tamílska hefur
verið gerð að „þjóðartungu”, þó
sinnhalíska sé enn hin opinbera
tunga. Jaywardane hefur einnig tek-
ist að koma á auknu sjálfræði
tamíla í eigin málum, mun meira
sjálfræöi en þeir höfðu fyrr. Jay-
wardane hefur þó þurft að feta stigu
sáttfýsinnar með mikilli varúð, enda
er þrýstingur á hann mikill, bæði frá
eigin samherjum í stjórn og frá
búddamunkum, er hafa mikil áhrif á
Sri Lanka.
Sættir nauðsynlegar
Nú er svo komiö að sættir eru orðn-
ar nauðsynlegar. Efnahagur Sri
Lanka getur ekki lengur borið ok
skæruhernaðarins innanlands.
Feröamannaiönaðurinn hefur nær
stöðvast. Á háferðamannatímanum
eru hótel á Sri Lanka ekki nema með
um 30 prósent herbergisnýtingu. Á
öðrum tímum er nýtingin nánast
engin. Stjórn Jaywardane verður að
reiða sig mikið á erlendar lántökur.
Þessi lán er erfitt að fá nema eölilegt
stjórnmálaástand ríki í landinu.
En það þarf tvo til að dansa tangó.
Friður mun ekki ríkja'á paradísar-
eyjunni nema skæruhðar séu reiðu-
búnir til að slá af kröfum sínum,
gegn loforðum stjórnvalda um ein-
hvers konar sjálfræði og aörar end-
urbætur. Mikið ber enn á milli deilu-
aðila. Jaywardane er ekki reiðubú-
inn tU að gera neina samninga er
Ieiða tU breytinga á stjórnarskránni
eða sem neyöa hann tU að bera þá
undir dóm þjóðarinnar.
Það þýðir til dæmis að hann er ekki
tU viðtals um að sameina hinar tvær
sýslur á austur- og noröurhluta eyj-
arinnar, þar sem tamílar eru í meiri-
hluta. Skæruliðar krefjast þess að
þessar sýslur verði sameinaðar.
Skæruliðar vilja
gerbreytingu
Mjög erfitt verður aö fá skæruliða
til að fallast á nokkurt samkomulag
sem felur ekki í sér stórbreytingu á
öllum stjórnarháttum á Sri Lanka.
Skæruliöar hafa komið efnahags-
lífi eyjunnar á brún hengiflugsins og
það er á þeirra valdi aö koma því
þaöan aftur. Það gefur þeim vald er
þeir eru ekki fúsir til að láta af hendi
nema þeir fái eitthvað verulegt í
staðinn.
Á móti kemur að tamílskir skæru-
liðar eru ekki lengur eins öruggir
meö aðstöðu sína á Indlandi og áöur.
Indlandsstjórn getur kippt undír-
stöðunni undan þeim hvenær sem
hún vill. Til þess þarf hins vegar póli-
tískan vilja, og það er undir pólitísk-
um vilja Rajiv Gandhi og Júníusar
Jaywardane komiö hvort tekst að fá
skæruliöa tamila til að leggja niöur
vopn sín.