Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1985, Blaðsíða 16
16
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST1985.
DV. MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGUST1985.
17
íþróttir
iþróttir
íþróttir
íþróttir
íþróttir
(þróttir
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
Læknirinn Socrates, einn besti knatt-
spyrnumaöur heims.
Socrates
aftur til
Sao Paulo
Socrates, brasiliski knattspyrnu-
suillingurinn, mun aö öllum líkindum
fara aftur til Brasilíu innan skamms.
Búist er viö aö Fiorentina, hið ítalska
félag kappans, muni á næstunni fá til-
boð frá brasiliska félaginu Sao Paulo'
upp á tæpar 80 milljónír króna fyrir
Socrates. Hann lýsti því nýlega yfir aö
hann væri búinn að fá nóg af ítalskri
knattspyrnu sem hann sagði neikvæða.
Socrates á eftir ár af tveggja ára
samningi sem hann skrifaði undir í
fyrra.
Forráðamenn Fiorentina, sem
keyptu Socrates á 100 millj., segjast
ekki hafa fengið neitt tUboð frá Sao
Paulo og hafi ekki bugsað sér að selja
leikmanninn nema að hann æskti þess.
_____________________-SigA.
Ástralir í
toppsætunum
— á opna skandinavíska
meistaramótinu í golf i
„Kannski að fólk hætti að hugsa um
mig sem náungann sem ktúðraði opna
breska meistaramótinu. Ég hef átt í
vandræðum með sveifluna en ég held
að það sé nú loks úr sögunni,” sagði
Ástralíumaðurinn Ian Finch-Baker
eftir aö hafa borið sigur úr býtum á
skandinaviska meistaramótlnu i golfi
sem háð var um belgina. Finch-Baker
var fyrir keppnina einna best þekktur
fyrir að hafa haft forystuna á opna
breska meistaramótinu í fyrra sem
hann missti síðan niður i síðustu holum
keppninnar. Sagan endurtók sig ekki
nú. Hann fór brautina á 274 böggum
sem var tveimur höggum betra en
árangur Grahan Marsh, samlanda
hans.
Fjórir kylfingar voru á 277 höggum
en það voru þeir Terry Cale (Banda-
ríkjunum), Gordon Brand, Rick Hart-
man og Johnny Miller.
Sandy Lyle, sem vann sigur á breska
meistaramótinu í golfi fyrir tveimur
vikum, varð að gera sér níunda sætið að
góöu. „Eg ætlaði mér að komast sem
næst vinningsupphæð Bernard Langer
á síðasta ári og ég er mjög vonsvik-
inn,” sagði Lyle sem lék á 279 höggum.
-fros
Svíar í
undanúrslit
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, tíðinda-
manrn' DV í Sviþjóð:
Svíar tryggðu sér sæti í undanúrslit-
um í Davis Cup keppninni í tcnnis. Sví-
ar unnu Indverja á útivelli meö 4—1.
Besti tennisleikari Svía, Mats Wiland-
er, tapaði er hann og Dvanritj áttust
við en annars unnu Svíar alla leikina.
Svíar Ieika við Ástrali í undanúrslitun-
um. Keppnin fer fram í Malmö.
Sænska liðið ver nú Davis Cup titilinn,
en Svíar sigruöu Bandaríkjamenn í úr-
slitumífyrra.
GAJ/SigA
Bretinn nálg-
ast Einarí
spjótkastinu
David Ottley hef ur náð Petranoff
og er nú 11 stigum á eftir Einari
Þó Einar Vilhjálmsson hafi ekki
getað keppt að undanförnu vegna
meiðsla í olnboga og nokkur grand prix
mót í frjálsum íþróttum verið háð á
þeim tíma hefur Einar þó enn forustu í
stigakeppninni. Einu stigi á undan
Kanadamanninum Mark McCoy
grindahlaupara. En fleiri fara nú að
blanda sér í toppsætin.
Eftir grand prix mótið í Búdapest
um helgina, þar sem Steve Cram,
Englandi, setti enn eitt heimsmetið, er
stigatala þeirra efstu á mótunum
þannig:
Einar Vilhjálmsson.
1. Einar Vilhjálmsson, tslandi 43
2. Mark McCoy, Kanada 42
3.SteveScott,USA 38
4. Alexander Krupsky, Sovét 36
5. Mark Rowe, USA 35
6. -7. Doug Padilla, USA 34
6.-7. Georgy Bakos, Ungverjal. 34
8.—10. Tom Petranoff, USA 32
8.—10. Syndney Maree, USA 32
8.—10. Pierre Quinon, Frakkl. 32,
I stigakeppni kvenna hefur
búlgarska stúlkan Stefka Kostadinova
enn forustuna. Tíu efstu eru:
l.StefkaKostadinova,Búlg. 45
2. Judi Brown-King, USA 40
3. Louise Ritter, USA 39
4. Genowefa Blaszak, Póllandi 36
5. Ella Kovacs, Rúmeníu 33
6. Ingrid Kristiansen, Noregi 32
7. Debbie Brill, Kanada 30,5
8. Cornelia Biirki, Sviss 28
9. —10. Mary Decker-SIaney, USA 27
9.—10. Doine Melinte, Rúmeníu 27
I spjótkastinu hefur Einar enn 11
stiga forustu en Bretinn David Ottley
hefur náð Petranoff aö stigum. Einar
hefur þar auðvitaö 43 stig. Petranoff og
Ottley 32 stig þó Ottley komist ekki á
listann yfir tíu bestu samanlagt.
Petranoff, Maree og Quinon náöu 32
stigum á undan honum. I einstökum
greinum hefur staðan lítið breyst frá
því við birtum listann síðast. hsím.
„ÞAÐ ER ÞREYTAI
MANNSKAPNUM”
— segir Lárus Guðmundsson.
Jafntefli Ajax og Uerdingen, 5-5
„Þetta hefur gengið mjög vel alveg
þangað til í þremur siðustu leikjum hjá
okkur. Þá fengum við á okkur mikið af
mörkum. Það er elns og smáþreyta sé
lögst í mannskapinn, sem er ekki gott
svona rétt fyrir upphaf keppnistima-
bils,” sagði Lárus Guðmundsson
knattspyrnumaður í samtali við DV i
gær.
Þýska deildin byrjar um næstu helgi
og hefur Bayer Uerdingen, liö Lárusar
og Atla Eðvaldssonar, búið sig undir
slaginn með því að leika æfingaleiki.
Meðal þessara leikja var leikur viö
Lárus Guðmundsson.
Ajax á föstudaginn í Amsterdam.
Leikurinn endaði með jafntefli, 5—5.
„Viö höfum verið aö fá á okkur mikið
af mörkum að undanförnu og vörn
liðsins, sem var okkar sterkasti hluti í
fyrra, virðist eitthvað farin aö gefa sig.
Það er ekki seinna vænna fyrir okkur
að rífa þetta upp og ef það tekst þá spái
ég okkur einu af efstu sætunum. Við
erum með stóran hóp og betri en mörg
önnur lið. Það eru þarna 14 manns sem
berjast um stöðurnar ellefu. Það
verður því strax annar tilbúinn ef
maöur leikur illa en ef vel er leikið er
engin hætta á að missa sætið,” sagði
Lárus.
Atli lék allan leikinn gegn Ajax en
Lárus var með í seinni hálfleik. I
síðustu viku lék Uerdingen við þýska 2.
deildarliðið Oberhausen og enduðu
leikar með 4—2 sigri Uerdingen.
Daginn eftir Ajax-leikinn var leikið við
þriðju deildar lið og tapaði Uerdingen
þá með 2—4. Hvorki Lárus né Atli hafa
skoraö í þessum leikjum.
SigA.
Metaðsókn
hjá Paris SG
Þegar Parísarliðið Saint Germain
lék við Frakklandsmeistara Bordeaux
í Paris i 1. deildinni á dögunum voru
áhorfendur 44.851. Það er metaðsókn
að deildarleik í Frakklandi. Aðgangs-
eyrir nam 24 milljónum króna, sem
einnig er nýtt met.
-hsím.
Islensku keppendurnir á EM i Sofía. Frá vinstri Bryndis, Ragnheiður Runólfsdóttir, Eðvarfl og Magnús.
DV-mynd S.
Evrópumeistaramótið í sundi í Sof ia:
íslandsmet en lök-
ustu sætin í riðlum
Það voru sett þrjú Islandsmet á
fyrsta degi Evrópumeistaramótsins í
sundi sem nú stendur yfir í Sofia í
Búlgariu. tslensku keppendurnir í gær
bættu allir árangur sinn en það dugði
þó ekki nema í áttunda og lokasætið í
rlðlunum sem þeir kepptu i.
Eðvarð Eðvarðsson var í þriðja riðli
100 m bringusundsins. Keppendur voru
32 og varð Eðvarð í 29. sæti í þessari
aukagrein sinni. Setti Islandsmet,
syntiál:08,57mín. Orslit í 3. riðlinum
urðuþessi:
1. Gianni Minervinl, Italiu 1:03,08
2. Thomas Bohm, Austurríki 1:05,20
3. Enrique Romero, Spáni 1:05,63
4. James Corbeau, Hollandi 1:05,86
5. Alexandre Yokohi,Fortúgal 1:06,15
6. Peter Szabo, Ungverjal. 1:06,96
7. Andreas Vold, Noregi 1:08,25
8. Eðvarð Eðvarðsson, Islandi 1:08,57
Italinn náði besta tíma allra í riðla-
keppninni en var eini keppandinn í
þessum riðli sem komst í úrslit. Þeir
sem náðu átta bestu tímunum komust
í úrslit. Bretinn kunni, Adrian
Moorhouse, var með næstbesta tímann
Í4. riðli, 1:03,28mín.
Bryndís ölafsdóttir var í öðrum riðli
í 100 m skriðsundi. Keppendur voru
þar 31 og varö Bryndís í 29. sæti á
Islandsmeti, 1:00,39 mín. — Bestum
tíma náði Manuela Stellmach, A-
Þýskalandi, 56,46 sek. Urslit í 2. riðli:
1. Karin Seick, V-Þýskalandi 57,32
2. Tamara Costache, Rúmeníu 58,22
3. Ina Abramova, Sovét 59,25
4. Caroline Cooper, Bretl. 59,25
5. Nancy Engelen, Belgíu 59,58
6. Carollne Foot, Bretlandi 60,21
7. Lenka Marsounova, Tékk. 60,21
8. Bryndís Ölafsdóttir, tsl. 60,39
I 200 m skriðsundi voru keppendur
28. Magnús Olafssson synti í þriðja
riðli og bætti Islandsmetið um þrjár
sekúndur. Það dugöi þó skammt.
Magnús varð í 25. sæti á 1:57,83 mín.
Besta tíma náði besti sundmaöur
heims, Michael Gross, V-Þýskalandi,
sem synti á 1:49,77 mín. Orslit í þriðja
riðli:
1. ThomasFahrner, V-Þýskalandi 1:51,75
2. Anders Holmertz,Sviþjðð 1:51,96
3. DominiqueBataUle, Frakkl. 1:54,38
4. PeterRophde,Danmörku 1:54,59
5. ZdenekKolar,Tékkóslóvakiu 1:57,37
6. Fabrizio Rampazzo, italiu 1:57,37
7. Magnús Ölafsson, lslandi 1:57,8?
Tveir fyrstu úr riðlinum komust í úr-
slitasundið.
Eldra Islandsmetið var 2:00,83 mín.
svo Magnús hefur bætt það mjög í
fyrstu stórkeppni sinni á erlendri
grund. Systir hans, Bryndís, átti eldra
metið í 100 m skriðsundinu, 1:01,80
mín. Hún er aðeins 15 ára og bætti met
sitt verulega.
-hsim.
„Get varla munað
hvað skeði þama”
- sagði áhugamaður í golfi, Scott Verplank, eftir að hafa
sigrað á Western Open
„Ég get varla munað hvað skeði
þarna úti. Fyrir mig var sigurinn allt
því ég vissi að ég gæti ekki tekið við
peningaverðlaununum. Ég hafði bara
svo margt annað að keppa að,” sagði
21 árs Bandaríkjamaður, Scott Ver-
plank, eftir að hafa unnið sigur á
Western Open golf mótinu sem fram fór
í Illinois, Bandarikjunum, um helgina,
Verplank varð þar með fyrsti áhuga-
maðurinn til að vinna sigur á atvinnu-
mannamóti í íþróttinni síðan 1954 er
Gene Littler sigraði á móti í San Diego.
Verplank þurfti aö hafa mikið fyrir
sigri sínum. Eftir 72 holurnar var hann
jafn Jim Thorpe á 279 höggum og
þurftu þeir því að leika bráðabana. Þá
hafði áhugamaðurinn betur á annarri
holu.
Thorpe fékk engu að síöur fyrstu
verðlaunin sem voru 90 þús. dollarar.
(3,7 millj. ísl.) þar sem Verplank lék
sem áhugamaður.
Spánverjinn Steve Ballesteros lenti í
þriðja sæti á 283 höggum. Var þremur
höggum betri en fimm næstu sem voru
Andy North, Danny Edwards, Bobby
Clampett, Dan Halldórsson og Bruce
Lietzke.
-fros.
OF GÓÐTIL AÐ
VERA STÚLKA
1 Dönsku stúlkunni Lene Nielsen,
| sem leikur með liði sinu á hinu stór-
I fræga unglingamóti Norway Cup,
I var um helgina gert að sæta kyn-
Irannsókn. Var þetta vegna tilmæla
frá norsku liði er hún lék gegn en það
I taldi hana of góða til að vera kven-
■ kyns.
1 Keppnisstjórnin varð við tilmælum
Norðmannanna og var fenginn kven-
Ln mmmm mmm mmmm mmm mmm■ ■■■ ■■■ ■
læknirtilaðrannsakakynferðiLene. J
Eins og Dauirnir þegar vissu var hún |
hún en ekki hann og því leikur Lene
ennþá með sínu liði. Norska liðið var
hinsvegarfordæmtafkeppnisstjórn- u
inni sem bað Lene afsökunar. I
Um 20 þús. ungllngar keppa á móti I
þessu og eru leikirnir á því um 2.500 I
talsins.
Lengi vel stefndi
í heimsmet hjá Gross
— varð Evrópumeistari f200 m skriðsundi í Sof ia
Hinn frábæri vestur-þýski sund-
maður, Michael Gross, vann sín fyrstu
gullverðlaun, af þremur sem hann
stefnir á, þegar hann varð langfyrstur
í 200 m skriðsundi á Evrópumeistara-
mótinu í sundi í Sofia í Búlgaríu.
Keppnin í sundgreinum hófst í gær og
lengi vel leit út fyrir að hinn 21 árs
Gross myndi bæta heimsmet sitt á
vegalengdinni. Þegar hann hafði synt
150 metra — átti eina brautarlengd
eftir — var tími hans 1:20,02 mín. eða
talsvert undir þeim tima sem hann
hafði synt sömu vegalengd á þegar
hann varð ólympíumeistari í Los
Angeles í fyrrasumar. En Gross hélt
ekki þessum mikla hraða til loka. Synti
á 1:47,95 min. Heimsmet hans er
1:47,44 min., sett i Los Angeles.
Það var um enga keppni að ræða
fyrir Gross. Hann var í sérflokki og
kom tveimur „lengdum” á undan A-
Þjóðverjanum Sven Lodziewski í
mark. Svíinn Tommy Werner hlaut
bronsverölaunin en Svíar áttu tvo
keppendur í úrslitasundinu.
Keppt var til úrslita í fimm sund-
greinum í gær. Austur-þýsku
stúlkurnar unnu til þriggja gullverð-
launa og voru i sérflokki í greinunum.
Fyrsta úrslitasundið í gær var í 100
m bringusundi karla og það kom ekki á
óvart þegar Bretinn Adrian Moorhouse
kom fyrstur í mark. Flestir höfðu
reiknað með sigri hans. Hann náði
aðeins lakari tíma en breska metið
hans er og var sundtaki á undan
vestur-þýska meistaranum á vega-
lengdinni, Rolf Beab, í mark. Rolf náði
sínumbesta tíma.
r l
I
ISklpting verðlauna eftir keppni I
í gær á Evrópumeistaramótinu í J
I sundi í Sofia var þannlg: I
I A-Þýskaland 3 4 0 I
IV-Þýskaland 1111
Sovétrikin 2 0 2 «
IBretland 100 I
Búlgaria 0 1 1 ■
| Holland 0 1 1 I
* Svíþjóð 0 0 2j
Keppni milli
USÁ og Sovét
Á næsta ári munu fara fram í fyrsta
skipti svokallaðir „góðraviljaleikar”,
sem er keppni á milU íþróttafólks
Bandarikjanna og Sovétrikjanna.
Áætlað er að leikar þessir verði i fram-
tiðinni haldnir f jórða hvert ár, til skipt-
is í Bandaríkjunum og Sovét.
Fyrstu leikarnir verða haldnir í
Moskvu og verður keppt í hinum ýmsu
greinum frjálsra íþrótta og öðrum
sumaríþróttum. Þaö er bandaríski
sjónvarpskóngurinn Ted Turner sem
stendur á bak við þessa leika en
fulltrúar hans undirrituðu samninga
við Sovétmenn í gær.
Turner, sem er eigandi að kapal-
sjónvarpsstöðvum í Bandaríkjunum,
sagði að þetta yrði í fyrsta skipti sem
íþróttamenn frá þessum löndum
mættust síðan í Montreal 1976 en eins
og kunnugt er skiptust ríkin á að mæta
ekki á tvenna ólympíuleika.
Jafnframt var í gær undirritaður
samningur á milli sjónvarpsstöðva
Tumer og sovéska sjónvarpsins um
einkaleyfi á sýningum frá leikjunum í
Bandaríkjunum.
-SigA.
Eftir sundið sagöi Moorhouse. „Eg
var fyrstur allt sundið og vissi að ég
réö feröinni. Eg hafði ekki áhyggjur af
því hve hinir sundmennimir voru
nærri mér en hins vegar varð ég aö
taka á öllu sem ég átti á síðustu
metrunum. Sundið var það erfitt.”
I keppnisgreinunum fimm, þar sem
keppt var til úrslita, komust átta
keppendur í úrslitasundin. Árangur
þeirra varöþessi:
100 m briugusund karla
1. Adrian Moorhouse, Bretl. 1:02,99
2. Rolf Beab, V-Þýskaiandi 1:03,38
3. Dimitri Volkov, Sovét 1:03,59
4. Gianni Minervini, Italíu 1:03,64
5. Lorenzo Carbonari, Italiu 1:03,94
6. Edward Lcmetiev, Sovét 1:04,19
7. Bert Göbel, V-Þýskalandi 1:04,54
8. Ron Dekker, Hollandi 1:05,22
400 m f jórsund kvenna
1. Kathleen Nord, A-Þýskal. 4:47,08
2. ComeliaSirch, A-Þýskal. 4:48,73
3. Sonia Biagova, Búigaríu 4:50,69
4. Noemi Lung, Rúmeníu 4:50,92
5. BirgitSchulz, V-Þýskal. 4:51,92
6. Roberta Felotti, Italiu 4:52,53
7. Petra Zindler, V-Þýskal. 4:53,45
8. MonikaGyuro, Ungverjal. 4:55,23
100 m skriðsund kvenna
1. Heike Friedrich, A-Þýskal. 55,71
2. Manuela Stellmach, A-Þýskal. 55,77
3. Conny van Bentum, Hollandi 56,33
4. Karin Seick, V-Þýskalandi 57,04
5. Agneta Eriksson, Sviþjéð 57,15
6. Romana Frydlova, Tékk. 57,39
7. Iris Zscherpe, V-Þýskal. 57,69
8. Marie-Th. Armentero, Sviss 58,43
200 m skriðsund karla
1. Michael Gross, V-Þýskal. 1:47,95
2. Sven Lodziewski, A-Þýsk. 1:49,99
3. Tommy Wemer,Svíþjóð 1:50,04
4. Thomas Fahraer, V-Þýskal. 1:50,54
5. Frank Drost, Hollandi 1:50,92
6. Lars Hinneburg, A-Þýskal. 1:51,51
7. AndersHomertz,Svíþjóð 1:51,60
8. Pcter Kotshanov, Búlgaríu 1:53,36
4 X 200 m skriðsund kvenna
1. A-Þýskaland 8:03,82
2. Holland 8:15,14
3. Sviþjóð 8:15,15
4. ltalía 8:15,84
5. Sovétríkin 8:16,24
6. V-Þýskaland 8:16,53
7. Frakkland 8:23,10
8. Spánn 8:45,35
I austur-þýsku sveitinni syntu Astrid
Strauss, Karen König, Manuela Stell-
mach og Heike Friedrich.
I keppni í dýfingum á stökkbretti
varð Nikolai Drozhin, Sovétríkjunum,
Evrópumeistari. Hlaut 635,52 stig.
Annar varð Peter Georggiev,
Búlgariu, með 604,98 stig og þriðji
Dieter Dörr, V-Þýskalandi, með 592,89
stig. -hsim.
„Myr idi hi igsa i llig
vel ui m áð ur en ég
tæki tilboði’ 7
— segir Þorgrímur Þráinsson, Val, sem nú er við
æfingar hjá norska liðinu Brann
Þorgrímur Þráinsson.
„Ég hef ekkert tilboð fengið frá
Brann og ég myndi hugsa mig mjög vel
um áður en að ég tæki tilboði frá félag-
inu. Ég hef góða vinnu á íslandi og
myndi ekki flana að neinu,” sagði Þor-
grímur Þráinsson er DV sló á þráðinn
til hans i gærkvöldi en hann dvelst nú
við æfingar hjá norska 1. deildar liðinu
Brann en með því leikur annar Is-
lendingur, Bjarni Sigurðsson. Ummæli
Þorgrims stangast á við fréttir
Berlingske Tidende sem greindi frá
því að Þorgrími hefði verið boðinn
samningur og líklegt væri þvi að hann léki
með Brann á næsta keppnistímabOi.
Þorgrímur hefur dvalist síðustu viku
við æfingar hjá Brann og hefur honum
litist mjög vel á aðstæður hjá félaginu.
Það mun hins vegar aldrei hafa verið
um aö ræða af hálfu Þorgríms aö
ná samningum viö liöið. Ferðin var
hugsuö sem skemmtiferð enda er
íslenskum leikmönnum bannað að
standa í samningaviðræðum við önnur
lið á meðan á keppnistímabilinu hér
heima stendur samkvæmt reglugerð
KSI.
Næsti leikur Brann er í kvöld gegn
Valerengen en þá hefst norska deildin
aftur eftir frí.
-fros.
Eliert B. Schram, formaður KSÍ.
Ekki ákveðið
hver verður
landsliðs-
þjálfari
„Þaö hefur ekkert verið ákveðið í
stjórn KSI hver verður landsliðsþjálf-
ari en Tony Knapp hlýtur að vera þar i
myndinni eins og hver annar,” sagði
Ellert B. Schram, formaður KSl,
þegar DV ræddi við hann um landsliðs-
þjálfaramálið vegna brottrekstrar
Tony Knapp frá norska félaginu Vidar.
Knapp hefur stjórnað Uði tslands í HM-
leikjunum gegn Wales, Skotlandi og
Spáni og síðasti HM-ieikurinn verður á
Spáni í september.
„Stjórn KSl þarf að taka ákvörðun
fljótt eftir leikinn við Spán hver tekur
við landsliðinu. Evrópukeppnin hefst á
ný næsta ár, riðlakeppnin stendur tvö
næstu árin og ef við ráðum ekki þjálf-
ara fljótt er hætt við því að við þar
missum af lestinni,” sagði EUert.
-hsim.
stórafrek
Það var ekki mikið um stórafrek á
sovéska meistaramótinu í frjálsum
íþróttum i Lenlngrad um helgina nema
í þristökkinu. Þar setti Oleg Protsenko
Evrópumet, stökk 17,69 m og Vladimir
Plekhanov stökk 17,60 m eins og við
skýrðum f rá í DV í gær.
Af öðrum árangri má nefna að
Alexander Vasiliev hljóp 400 m grinda-
hlaup á 48,33 sek. Olga Vladykina varö
meistari í 400 m hlaupi kvenna á 48,96
sek. Vladimir Krylov í 400 m karla á
45,54 sek., Igor Paklin varð meistari í
hástökki, stökk 2,32 m. Viktor
Zemlyansky í 800 m hlaupi á 1:44,93
min. Anatoly Millin annar á 1:45,00.1
stangarstökkinu sigraði Sergei Bubka
auövitað en stökk ekki nema 5,75 m að
þessu sinni. Viktor Spasov annar með
5,60 m.
-hsím.
Korput til Köln
HoUenski landsliðsmaðurinn kunni,
Michel van de Korput.hefur gert samn-
ing við Köln í Vestur-Þýskalandi. Var
seldur tU þýska félagsins frá Torino á
ItaUu fyrir 400 þúsund mörk eða tæpar
sex miUjónir íslenskra króna. Korput
er 28 ára, varnarmaður, og hefur leikið
21 landsleik fyrir Holland. A síðasta
leiktimabUi lék hann með Feyenoord í
Rotterdam sem lánsmaður frá Torino.
_________________ -hsím.
Handbolta-
skóli Hauka
Hinn árlegi handboltaskóU hefst 12.
ágúst.
Skólinn verður opinn öllum börnum á
aldrinum 6-14 ára (f. ’79-’71).
Kennslan fer fram í Haukahúsinu við
Flatahraun og er þátttökugjald kr. 200
fyrir hvern nemanda. (Gjaldið lækkar
í 150 fyrir 2. f jöIskyldumeðUm og í 100
kr.fyrir3eðafleiri.)
I skólanum verða börnunum kennd-
ar reglurnar, farið verður í undirstöðu-
atriði og síðan verður spilaður hand-
bolti.
Þau börn sem áhuga hafa á að vera
með í skóianum mæti mánudaginn 12.
ágúst.