Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1985, Síða 32
FRÉTTASKOTIÐ
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
efla vitneskju um
frótt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað í DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Vifl tökum
við fréttaskotum
allan sólachringinn.
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985.
„Bjórsmyglið’' íKeflavík:
Bjórkaup-
andinn
yfirheyröur
ídag
I dag á Einar Ingimundarson, aö-
stoöarverslunarstjóri í Fríhöfninni á
Keflavíkurflugvelli, að mæta til lög-
reglustjórans á Keflavíkurflugvelli til
yfirheyrslu vegna þess að hann reyndi
að „smygla” bjórkassa út af Vellinum
eftir heimkomu frá Grænlandi í gær.
Það var Kristján Pétursson, deildar-
stjóri tollgæslunnar á Keflavíkurflug-
velli, sem lét til skarar skríða í málinu.
Hann telur sölur bjórs vera ólöglega og
ætlar með þessari kæru að láta á
reyna. „Eg vona aö saksóknari láti
kanna þetta mál,” segir Kristján.
Hann kærði reyndar fyrr í vor
verslunarstjóra Fríhafnarinnar og lög-
reglustjórann þar fyrir sölu og eftirlit
meö bjór. Þeirri kæru vísaði sak-
sóknari frá.
Halda mætti að þessi bjórtaka í gær
hefði verið sviðsett því hlutaðeigandi
vinna undir sama þaki. Fyrir það þver-
taka þeir. Þeir eru á öndverðri skoöun
umsöluá bjór.
„Eg vil bara fá minn bjór eins og
‘••'aðrir. Eg hef ekkert við þessa reglu-
gerð að athuga,” segir Einar sem er að
búa sig undir að hitta lögreglustjórann
og hugsanlega réttarhald sem mun
leiða allan sannleikann í ljós um hinn
umdeilda bjór. -APH.
Drengur
fyrir bíl
Sex ára gamall drengur á reiöhjóli
varð fyrir bíl um miðjan dag í gær við
Torfufell í Breiðholti. Var sá stutti
fluttur á slysadeild en reyndist lítiö
meiddur og fékk að fara heim að rann-
sókn lokinni. -KÞ
Hestamaðurinn
sem beið bana
Maöurinn sem lést er hann féll af
hestbaki í nágrenni Halldórsstaða við
Sauðárkrók, hét Sigmar Benediktsson
og var 36 ára gamall. Sigmar bjó aö
Víöigrund 14 á Sauðárkróki. Hann læt-
ur eftir sig eiginkonu og tvö börn.
-EH.
ómissandi
LOKI
Geir mun hafa gefið
Kananum regnbogasilung
í hádeginu!
Síríus væntanlegur í lok vikunnar:
„Komum hingaö í frið-
samlegum tilgangi”
— segir talsmaður Greenpeace samtakanna
Sírius, skip Greenpeacesamtak-
anna, er væntanlegt hingað til lands-
ins á föstudag eða laugardag. I gær
var skipiö statt við Orkneyjar. Búist
var við að það kæmi hingað fyrr, en
vegna veðurs seinkar skipinu.
Einn forsvarsmaður samtakanna
er þegar kominn til landsins. Hann
er danskur og heitir Miehael Nielsen.
Hans hlutverk er að undirbúa komu
Síríusar til landsins og væntanlegar
aðgerðir hér.
„Við komum hingaö í friðsam-
legum tilgangi. Viö ætlum að reyna
aö hefja jákvæðar viöræður viö ís-
lensk stjórnvöld. Ef það tekst ekki
veröum viö að íhuga hvað er hægt
að gera. Viö vonum að sjálfsögðu að
viöræður okkar verði jákvæðar,”
segir Nielsen. Hann segir aö engar
ákvarðanir hafi verið teknar um að-
geröir aðrar en að ræða við menn hér
á landi til að kynna sjónarmið Green-
peace.
„Ástæðan fyrir því að við
komum hingaö til landsins eru hval-
veiðar Islendinga í vísindaskyni sem
eiga aö hefjast á næsta ári. Við
teljum að þessar veiöar eigi ekkert
skylt við vísindi. Vísindin séu aöeins
yfirskin til að halda þessum veiðum
áfram. Þess vegna komum við
hingað. Við ætlum aö ræða við stjórn-
völd, stjórnmálamenn og aimenning
og reyna að sannfæra Islendinga um
að ekki sé rétt að hefja þessar
veiðar, ” segir Nielsen.
Hann og annar Dani, sem er
væntanlegur til landsins á næstu
dögum, munu ganga á fund Halldórs
Ásgrímssonar sjávarútvegsráö-
herra. Ekki hefur verið ákveöiö hve-
nær sá fundur veröur.
Þá er ráögert aö halda blaða-
mannafund um borð í Síríusi þegar
skipið kemur hingaö. Einnig er búist
við erlendum biaðamönnum til
landsins vegna þessara aðgerða. Um
10 blaðamenn koma frá Englandi,
Belgíu, Frakklandi og Banda-
ríkjunum.
APH
Hvalveiðimenn á leiðinni í 10 daga frí:
Búnir með lang-
reyöarkvótann
Síðasta langreyðurin var flensuð i
Hvalstöðinni í gær. Þar meö er lang-
reyðarkvótinn búinn hjá Hval hf.
Kvótinn hljóðaði upp á 161 langreyði.
Tveir bátar fóru út í gær og sá
þriöji hefur veriö á miðunum 1
nokkra daga. Bátarnir eru að svipast
um eftir sandreyðum. Kvótinn á
þeim er 38 dýr. Þegar lokiö er að
veiða þau er vertíðinni lokið. Oft er
það þannig aö sandreyðarnar ganga
ekki hingað fyrr en í lok ágúst og
byrjun september. I gær höfðu hval-
báiarnir ekki orðiö varir við sand-
reyöar.
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals
hf., sagði aö bátarnir yröu að svipast
um eftir sandreyðum fram aö helgi.
Ef þeir yrðu ekki varir við neitt fyrir
þann tíma yrði ekki leitaö á
miðunum fyrr en eftir 25. ágúst.
Allir starfsmenn hvalstöövar-
innar fara í frí 15. til 25. ágúst og
leggst þá öll starfsemi niöur þar.
Þess skal getið að ákvörðun um að
fara í frí var tekin fyrir löngu. APH
— segirfulttrúi
Bandaríkjastjómar
„Eg er hingað kominn til að finna
lausn og get ekki annað en verið
bjartsýnn,” sagði Edward
Derwinsky, fulltrúi í bandaríska ut-
anríkisráðuneytinu, í samtali við DV
í morgun.
Derwinsky kom til landsins í gær-
kvöldi ásamt aðstoðarmönnum til aö
ræða viö Geir Hallgrímsson utanrík-
isráðherra um deilu þjóöanna vegna
þungaflutninga til varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli. Hann vildi ekk-
ert um það segja hvort hann væri
með tilboð til íslensku ríkisstjórnar-
innar um aö bjóöa flutningana út á
frjálsum markaði, eins og uppi hafa
verið getgátur um aö undanförnu.
Derwinsky átti fund með utanríkis-
ráöherra í Ráðherrabústaðnum
klukkan tíu í morgun. Gert er ráö
fyrir að Derwinsky og föruneyti
haldi af landi brott á morgun.
EA/DV-mynd VHV
Fundaðum
Rainbow-máiið:
„Verð að vera
bjartsýnn”
Lélegurtúr
Snorra Sturlusonar:
Áttatíu
tonn af
aflanum
dæmdóhæf
— tilfrystingar
Togarinn Snorri Sturluson gerði
nokkuð undarlegan túr í lok síðasta
mánaðar. Af 170 tonna afla fóru hvorki
meira né minna en 80 tonnn í annan og
þriðja flokk, það er voru dæmd óhæf til
frystingar. Þessi afli var því saltaður.
„Ég get ekki neitað því að þetta kom
fyrir, þarna áttu sér stað mannleg
mistök, þau geta ailtaf skeð,” sagði
Bjarni Thors, útgerðarstjóri Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur, í morgun.
Bjarni sagði að þeir hjá Bæjarút-
gerðinni væru aö vonum mjög óánægð-
ir þegar svona kæmi fyrir, sem.væri
sem betur fer sjaldan. „Það er enginn
maður ánægöur með aö fá fisk í annan
og þriðja flokk.”
„Við reynum aö frysta eins og við lif-
andi getum, en sá fiskur sem ekki er
hægt að frysta er saltaöur,” sagöi
Bjarni.
„Eg tel að það eigi ekki að gerast
aö meira en 10 prósent afla hvers
togara fari í annan og þriðja flokk.
Annað er ákaflega slæmt og
óviðunandi.”
Bjarni sagði að málin heföu verið
rædd hjá Bæjarútgerðinni vegna þess
arna. „Við höfum rætt þetta mál við
skipstjóra og áhöfn og ég tel að þetta
komi ekki fyrir af tur í bráð. ”
Þessi veiðiferð Snorra Sturlusonar
tók sjö daga, hún hófst 24. júlí og lauk
31. júlí. Aflinn fékkst undan Vest-
fjörðum. -JGH.
Hestar
á göngutúr
Tveir hestar voru teknir í vörslu lög-
reglunnar í nótt þar sem þeir voru
tveir einir á göngutúr á Grandagarði,
nánar tiltekið við Kaffivagninn. Var
hestunum komið fyrir hjá vörslumanni
bæjarlandsins þar sem þeir dvelja nú í
góðu yfirlæti þar til eigendurnir vitja
þeirra. -KÞ