Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1985, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1985, Side 8
8 DV. FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER1985. LOPI LOPI Þriggja þráða plötulopi, 10 sauðalitir, að auki rauðir og bláir litir. Sendum í póstkröfu um landið. Ullarvinnslan Lopi sf., Súðarvogi 4, 104 Reykjavík, sími 30581. Norrænir verkef nastyrkir til æskulýðsmála Norræna æskulýðsnefndin hefur ákveðið að veita tak- markaða styrki til svæðisbundins og staðbundins sam- starfs meðal æskufólks á Norðurlöndum. Styrkir verða veittir til — staðbundinna æskulýðsverkefna, — samstarfs á ákveðnu svæði (einkum á vestursvæðinu, ísland, Færeyjar og Grænland) og á Norðurkollu- svæðinu (Nordkalotten), — æskulýðsstarfsemi sem ekki hefur getað notið þeirra styrkja sem boðnir hafa verið til þess af norrænu nefndinni. Æskulýðsfélög eða hópar í einstökum bæjar- eða sveitar- félögum, sem hafa hug á norrænu samstarfi, geta sótt um styrkina. Umsóknum skal fylgja stutt lýsing á samstarfinu ásamt fjárhagsáætlun um verkefnið. Einnig skal tekiðfram hvort samstarfið sé styrkt af öðrum aðilum. Engin sérstök um- sóknareyðublöð eru um styrki þessa. Umsóknarfrestur um þessa styrki rennur út 1. október nk. og skulu umsóknir sendast beint til: Nordisk Ungdomskomité Sekretariatet for nordisk kulturelt samarbejde Snaregade 10 DK-1205 Köbenhavn K. Reykjavík, 3. september 1985. Seljum í dag Saab 900 GLS árg. 1982, 5 dyra, sjálfsk., rauður, ekinn 43 þús. km. Verð 430 þús. Skipti möguleg á ódýrari. Saab 900 GL, 5 dyra, árg. 1982, grár, ekinn 50 þús. km. Verð 420 þús. Skipti á ódýrari bil möguleg. Saab 900 GLE, 4 dyra, beinskiptur, árg. 1982, Ijósblár, sóllúga, ekinn 40 þús. km. Verð 480 þús. Saab 99 GL, 2 dyra, árg. 1982, grár, ekinn 32 þús. km. Verð 360 þús. OPIÐ LAUGARDAGA KL. 13-17 TÖGGURHR UMBOÐ FYRIR SAAB OG SEAT BÍLDSHÖFÐA16, SlMAR 81530-83104 Hver á Titanic? Afstýrir klofningi í bili Deilur um eignaréttinn þótt björgunarvonir séu sáralitlar I uppsiglingu eru málaferli út af því hver sé réttur eigandi flaksins af Titanic sem fannst á dögunum, 73 árum eftir aö skipiö fórst og meö því 1513manns. Á meðan enginn vissi hvar flakið lá á hafsbotni hefur spurningin aldrei vaknaö um eignarréttinn en þeir sem fundu skipiö, og eins eftirlifendur úr þessu frægasta sjóslysi sögunnar, vilja að flakið veröi leyst friöhelgt sem graf- reitur. Aðrir vilja ná flakinu upp og bjarga úr því verðmætum. — Þaö hefur jafnan legiö orö á því aö meö Titanic hafi sokkiö ógrynni gulls og eöalsteina. Tryggingafélagið, sem tryggöi Titanic, telur sig eiga flakiö. Björgunarúlfar telja aö sá hljóti aö eiga fund sem finnur. Þetta kunna aö veröa deilur um keisarans skegg því aö flakið liggur á 4.400 metra dýpi og hefðbundin köfun ræður ekki viö slíkt dýpi. Neðansjávarmyndatökur (fjar- stýröar) gefa til kynna aö flakið sé nokkuð heillegt. Lauslegt dót úr því, sem dreiít er umhverfis flakið, viröist sömuleiöis heillegt eins og rúm og vínflöskur og fleira. Afstýrt hefur verið í bili klofningnum innan bresku verkalýöshreyfingarinn- ar út af ríkisstyrkjunum til einstakra félaga. Trades Union Congress (TUC, sem er einskonar ASI Breta og hefur innan sinna vébanda 10 milljónir meölima verkalýösfélaga) kunngerði í gær aö náöst heföi málamiðlun. Osagt var samt í hverju hún hefði veriö fólgin. AUEW, næststærsta verkalýösfélag Breta, haföi neitað aö veröa viö fyrir- mælum TUC um aö afþakka ríkis- styrkinn sem ætlaöur er til að standa undir kostnaði af því aö atkvæöa- greiöslur um leiðtoga félaganna eöa verkfallsheimildir séu haföar leynileg- ar. — TUC hafði hótað aö reka félagið úr landssamtökunum. Stööugar viðræður voru í gær milli forkólfa verkalýösfélaganna og hefur brottvísun AUEW úr landssamtökun- um veriö frestað þar til efnt hefur ver- iö til atkvæðagreiðslu innan félagsins. I atkvæöagreiðslu í febrúar í vetur haföi veriö samþykkt meö atkvæða- hlutfallinu 12—1 aö þiggja ríkisstyrk- inn fyrir AUEW, en hann nemur 1,2 milljón sterlingspunda (meðlimir eru umeinmilljón). Fleiri fámennari stéttarfélög eins og rafvirkjar ætluðu aö fylgja AUEW út úr TUC, ef á heföi reynt. 4€ Þetta mikla fley iiggur nú á hafs- botninum suður af Nýfundnalandi. Nú er spurningin: hver á skipið? Verkalýðshreyfingin í Bretlandi: Útlönd Útlönd Útlönd Fjórar sprengjur á einu bretti Hryðjuverkaöflin f Frakklandi færast í aukana Fjórar sprengjur sprungu í París í nótt. Hryðjuverkasamtökin Action Directe segjast bera ábyrgöina á þeim. Sprengjunum var beint gegn fyrirtækjum sem talin eru eiga viðskipti viö Suöur-Af ríku. Sprengjurnar sprungu allar í kringum klukkan tvö í nótt. Þær sprungu viö skrifstofur Renault bíla- framleiöslufyrirtækisins, Pechiney, ríkisrekna málmfyrirtækisins, Spie Batignolles byggingafyrirtækisins og viö skrifstofur kolainnflutnings- fyrirtækis. Talsmaöur lögreglu sagöi að tveir menn heföu særst lítillega vegna gler- brota sem flugu í allar áttir. Skaði á byggingum væri mikill. I skriflegri tilkynningu til fréttastofu sagöi Action Directe: „Þaö er í frönskum ráðuneytum sem blökkumenn suöur-afríska fátækra- hverfa hefja dauðagöngu sína.” Umsjón: Þórir Guðmundsson og Hannes Heimisson Blóðug mótmæli gegn yfir völdum bera árangur — en kröf ugöngur halda áfram í Guatemala Lögregla í Guatemala skaut tára- gasi aö hundruðum kröfumanna sem héldu fundi gegn stjórnvöldum þrátt fyrir að þau heföu aflýst fyrirhuguðum hækkunum á fargjöldum strætisvagna. Mótmælendur köstuöu grjóti í hinum ýmsu hverfum Guatemala-borgar í gærkvöldi en hermenn héldu þeim frá þjóðhöllinni. Þjóöhöföingi landsins, Oscar Mejia Victores, sagði á blaðamannafundi stuttu áöur aö stjórnin heföi ákveöið að veita strætisvagnafyrirtækjum og langflutningabílum mánaöarlegar niðurgreiöslur til að hægt væri aö halda fargjöldum í sama fari og áður. Hækkunin sem stjómin haföi áöur til- kynnt nam 50 prósentum. Þetta er í annað sinn sem stjórnvöld í Guatemala láta undan vegna óánægju landsmanna með niöur- skurði stjórnarinnar. Stjórnin hefur verið að reyna aö minnka skuldir þjóö- arbúsins. Þrátt fyrir undanlátssemi stjórn- valda kröföust mótmælendur þess í gær aö Meija Victores segöi tafarlaust af sér. Samkvæmt skýrslum yfirvalda hafa tveir látist og 23 særst í óeirðunum sem hafa staðið í viku. Lögregla og her hafa handtekið 550 manns. Borgaraleg stjórn á að taka viö í Guatemala snemma á næsta ári.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.