Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1985, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1985, Qupperneq 13
DV. FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER1985. 13 MISSKIUN HÚSNÆÐISMÁL Stofnunum og valdhöfum þessa lands virðist ganga erfiðlega að skilja fólkið sem í landinu býr og kemur það einkum og sér í lagi fram í því hvernig tekið hefur verið á húsnæðis- og lánamálum þjóðarinnar undanfarin misseri ogár. Skilningssljóir þegnar Þegar fólkinu í landinu finnst ranglátt að lán sem það hefur tekið í íslenskri mynt til öflunar eigin húsnæðis sé mun óhag- stæðara heldur en ef það hefði tekið lán í einhverjum Evrópu- gjaldmiðli þá hrista ráðamenn- irnir höfuðið yfir skilningsleysi þjóðarinnar sinnar og bera ekki einu sinni við að skýra út málið fyrir svona skilningslausu liði. En það kann vel að vera að ein- hver kauphallarsérfræðingur verði fenginn til að skýra út fyrir almenningi hvers vegna íslenska krónan er svona miklu meira virði heldur en allir hinir gjald- miðlamir þegar þarf að sjá af krónunum til lántakenda á Is- landi. Húsnæðisstofnun ríkisins Húsnæðisstofnun ríkisins aug- lýsir hina stórkostlegu lausn sem greiðslujöfnunin á að vera og tilkynnir að menn skuli koma betlandi hendi til að njótaávaxt- anna af rausnarlegu tilboði yfir- valdsins og undrast um leið að ekki skuli fleiri vilja njóta þess- ara einstöku kjara. Ef stjóm- málamenn skilja ekki þá vís- bendingu sem felst í þessum dómi almennings á lögunum um greiðslujöfnunina þá fer nú að vera vafamál hvort þessir háu herrar álíta þjóðina misskilja sig en ekki að þeir misskilji þjóðina. Hún er táknræn, auglýsingin, sem birtist frá Húsnæðisstofnun ríkisins þessa dagana, þar sem tilkynnt er að þeir sem skulda samkvæmt lánskjaravísitölu skuli greiða dráttarvexti hálfum mánuði fyrr heldur en þeir sem eiga skuldir samkvæmt bygging- arvísitölu. Hún er táknræn fyrir það að stofnunin reiknar ekki með viðbrögðum frá því fólki sem lifað hefur við lánskjaravísitölu því skilningur þess á réttu og röngu hlýtur að vera orðinn brenglaður eftir lánskjaravísi- töluuppeldið. Reyndar er þetta í dúr og moll við það þegar stofn- unin bauð fólki að greiða lánin hraðar upp heldur en um var samið þegar fólki fannst ofgreitt og sýnir þetta ljóslega hve mikill og gagnkvæmur skilningur er á milli fólksins og ráðamanna. Næsta rökrétta skref Hús- næðisstofnunar yrði því senni- lega að koma vanskilalánum til lögfræðinga fyrr en verið hefur svo fleiri löglærðir rukkarar geti framfleytt sér á að ná síðustu aurunum af fólki sem samkvæmt lánskjaralögum skuldar meira enþvíber. Hvertfara peningarnir? Það er minnkandi eftirspurn eftir fjármagni til húsnæðis- kaupa hjá lífeyrissjóðum og hús- næðismálastofnun og dregin er sú ályktun að unga fólkið treysti sér ekki út í húsnæðiskaup miðað við núgildandi lögmál húsnæðis- markaðarins. Þetta gerist þegar sá flokkur er við völd í landinu sem hefur það á stefnuskrá sinni að öllum skuli vera gert kleift að eignast þak yfir höfuðið og það án hjálpar verkamannabústaða- kerfisins. Stundum undrast ég hvert þeir fjármunir fara sem hefðu annars farið til húsnæðiskaupa. Senni- legt er að stór hluti þessara pen- inga fari til hinna mörgu skemmtistaða sem nú hafa risið undanfarið út um allt land og er þar ef til vill komin skýring á fjölda staðanna. Að álykta þann- ig virðist mér rökrétt því eitt- hvað verður fólk að gera við tíma sinn og peninga sem ekki treystir sér til að stofna heimili og/eða STURLA ÞENGILSSON koma sér upp eigin húsnæði vegna okurlögmála húsnæðis- markaðarins. Þetta er ef til vill bara mitt skilningsleysi, auðvit- að er þetta eitt skref í þá átt að skapa ný atvinnutækifæri í landinu. Hvaö er framundan? Þó ungt fólk sé ekki sérlega ginnkeypt fyrir því að beygja sig undir það ok sem öflun eigin húsnæðis er í dag og noti tímann frekar til skemmtana, þá kemur að því að það verður að leysa húsnæðisvandræði þessa fólks einhvern tíma. Mér líst þannig á framtíðina í þessum málum að fleiri og fleiri muni leita til verkamannabústaðakerfisins og hugsanlega e.k. búseturéttar- kerfis ef ekkert verður að gert. Heiðarlegast finnst mér að stjórnmála- og ráðamennimir viðurkenni það í orði sem þeir hafa viðurkennt á borði, að ekki eigi að vera möguleiki fyrir al- mennan launamann á íslandi að koma sér þaki yfir höfuðið. Þá væri sá misskilningur úr sög- unni. Lausnin? Ekki veit ég hvort ráðamanna- stéttin kemst í betra samband við þjóðina í framtíðinni og skilur þarfir og óskir hennar. Það er ef til vill nær að vænta þess að þjóðin þroskist og læri að fara eftir því sem forsvarsmennimir segja að sé henni fyrir bestu, eða var það þannig sem lýðræðið var hugsað í upphafi? Sturla Þengilsson KERFISFRÆÐINGUR „Heiðarlegast finnst mór að stjórnmála- og ráðamennirnir viður- kenni það í orði sem þeir hafa viðurkennt á borði, að ekki eigi að vera möguleiki fyrir almennan launamann á fslandi að koma sór þaki yf ir höfuðið. Þá væri sá misskilningur úr sögunni." GÖFUGT MANNÚÐAR- STARF TEIGABÚ ANNA Jæja, þá erum við búin að fá borg- arstjóradóm um hvar menn með skítug sakavottorð mega ekki búa. Og þá er bara eftir að fá borgar- stjóradóm um hvar menn með skít- ug sakavottorð mega búa. - Og þá vitum við það eftirleiðis, takk. Aö friöa samviskuna Það er nú annars dæmigert fyrir smáborgarana hér uppi á íslandi, sem vinna gífurleg mannúðarstörf hvenær sem tækifæri gefast, til dæmis með kaupum á einum happ- drættismiða á ári, eða með því að gefa 100 krónur í Lionssöfnunina, eða þá bara með því að hjóla á hjól- reiðadaginn, að þegar einhver raunveruleg mannúðarhjálp stendur þeim nærri er ekki mögu- leiki að hreyfa við steintröllunum. Hellamir þeirra gætu lækkað í verði við það. Vissuð þið það? „Þú bara VERÐUR að skrifa undir, Sigga mfn!” „Já, bara um milljón hver íbúð eftir alveg pottþéttum fasteigna- sala. En þið megið samt ekki hafa það eftir mér. Skrifaðu bara strax héma undir listann, Sigga mín, til að forða okkur frá því að fá þessi hræðilegu óargadýr hingað í hverf- ið okkar. Það er ekki bara það að gamalmennin hérna í hverfinu verða barin og rænd heldur geta blessuð saklausu börnin héma í hverfinu aldrei farið út að leika sér framar! Þeim yrði ömgglega mis- þyrmt samstundis. - Og svo verðum við hérna, heiðarlegu borgaramir (???), bara alveg eignalaus á eftir. Ibúðirnar hérna snarlækka í verði um leið og þetta pakk flytur hingað í fallega hverfið okkar. - Við bara verðum að standa saman í þessu hræðilega máli, skilurðu það, Sigríður!” Formáli svipaður þessum var hafður yfir illa tömdum íbúum Teigahverfisins sem vom ekki alveg sammála því að flæma félagasam- tökin Vemd úr hverfinu. En sam- tökin höfðu fyrirhugað að koma upp heimilislegu og mannúðlegu sam- býli fyrir skjólstæðinga sína að Laugateigi 19. Þá sem lent hafa einhvem tímann á lífsleiðinni í kasti við lögin okkar eða misstigið sig á refilstigum fíkniefnavanda- mála samfélagsins okkar. Hverra vandamál - efekki okkar? Þegar ég segi okkar þá á ég við það að öll eru þessi vandamál auð- vitað komin frá okkur. Og engum öðrum. Ég vil aðeins minna efa- semdamenn á það að ekkert fíkni- efnavandamál var til á Vesturlönd- um fyrr en við, eða fulltrúar okkar menningar, nú og fyrr, komu með þennan ófögnuð hingað og fóm að ota þessu að öðm og yngra fólki. Eða halda sumir að menn séu fæddir með fíkniefnavandamálið eins og hverja aðra lömun? Og ekki kom þetta ástand heldur með rigning- unni eða rokinu eins og stundum virðist mega skilja á digurbarkaleg- um íslendingum. Nei, ekki aldeilis. Fáir hafa reyndar nokkum tím- ann leitt að því getum að eitthvað alvarlegt geti verið að hér í þessu glæsilega velferðarsamfélagi okkar. Það sem Mogganum finnst mest nauðsyn á að skera enn frekar niður nær fnunskógarlögmálunum. Við erum reyndar alveg búin að ná því stigi í húsnæðismálunum, svo nú er bara að taka til annars staðar næst. - En í dag er það: „Burt með þennan afbrotalýð. Burt frá mér. Burt úr hverfinu mínu! Hann verður bara að fara eitthvað annað. Ég get ekki haft hann nálægt mér! ’ ’. Og hvar á þá „pakkið”að búa? Nú og ef við svo framlengjum þetta aðeins í margföldunartöflunni þá getur þetta fólk, sem er í umsjá Vemdar, ekki verið í neinu hverfi í Reykjavík né annars staðar á landinu. Þá eru líklega bara Hvera- vellirnir eftir, eða er það ekki? Það er að segja ef vesalings veðurat- hugunarfólkið getur haft „pakkið” hjásér? Ég veit vel að þessi umræða er kannski hlægileg. En svona blasir vandamálið við mér ef ég nota ein- falda skynsemi í framrásar-útreikn- ingum. Eða hvar getur þetta fólk verið annars staðar úr því að borg- arstjórinn er búinn að lýsa því yfir að þessir vistmenn Vemdar séu ekki þolandi á meðal venjulegra (???) borgara? Greinilega hvergi nálægt fólki. Pílatusarganga Verndar framundan Og auðvitað hlýðir frú Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður Verndar og borgarstjórnarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, yfirboðara sínum í þessu efni sem öðrum og Iætur Vemdina selja húsið á Laugateign- um ef þess verður nokkur kostur. En þar hafa samtökin einmitt verið að gera upp og innrétta hús samtak- anna síðastliðið hálft ár, fyrir þessa annars mjög svo göfugu starfsemi sína. Það er engin hætta á öðm. - Og þó það kosti að félagasamtökin fari á veraldlegt flakk næstu öldina, á meðan Reykvíkingar kjósa yfir sig Davíða í löngum röðum, þá verður bara að hafa það. Menn breyta nú ekki þjóðfélaginu á einum degi. Þó að yfir stöðum Vemdar hér í borginni hafi fram að þessu aldrei verið kvartað um yfirgang af ná- grönnum þeirra, og þó að á hysteríu- fund íbúanna hér um daginn, þegar Davíð lofaði hreingerningum hið fyrsta, hafi komið maður, sem búið hefur í næsta húsi við annað heimili Vemdar á Ránargötunni, gagngert til þess að segja frá nágranna- reynslu sinni af Vernd, sem sé því að hann hafi varla vitað af starf- seminni í næsta húsi við sig, þá kom Kjallarinn MAGNÚS H. SKARPHÉÐINSSON FYRRV. VAGNSTJÓRI SVR allt fyrir ekki. Borgarstjórinn lofaði að kaupa pakkið í burtu með allt þess hafurtask, frá litla fallega sæta Teigahverfinu með htlu sætu íbú- unum, í litlu sætu húsunum. Bara burt! - Bara eitthvað. - Það er nefni- lega ekki hægt að skíta út svona mörg smáborgaraleg atkvæði. Því, eins og þið munið, þá em kosningar á næsta ári. Og þá munu Davíðamir stígauppogsegja: „Munið - X-D - heldur borginni hreinni”. „Sjáið þið, Reykvíkingar, hvemig borgin hefur verið rekin af okkur sjálfstæðismönnum. Og ef þið kjósið okkur þá munum við áfram kappkosta að halda borginni okk- ar eins hreinni og fallegri og okk- ur hefur tekist hingað til. Þess vegna er það X-D í næstu kosning- um, og skítapakkið verður allt á burt framvegis sem hingað til!” Og þá höfum við það. - En gaman verður að fá að sjá hvaða Reykvík- ingar, að mati borgarstjórans, verða nógu góðir til að hýsa svona starf- semi í hverfinu sínu. - Þá byrjar líklega sami söngurinn þar: „Ekki ég,” sagði öndin. „Og ekki ég,” sagði kýrin. Og. . . Magnús H. Skarphéðinsson. a „Ogþóþaðkostiaðfélagasamtökin ^ fari á veraldlegt flakk næstu öld- ina, á meðan Reykvíkingar kjósa yfir sig Davíða í löngum röðum, þá verður bara að hafa það.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.