Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1985, Page 16
16
DV. FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER1985.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Stundarðu einhverja heilsu-
rækt?
Linda Björk: Ég syndi þegar gott er
veður. Svo fer ég líka í sólbað.
Kristinn Ottósson: Nei, ekki reglulega.
Eg hef stundum leikið mér í frjálsum
íþróttum.
Vestarr Lúðvíksson: Já, ég reyni að
synda svona 2—3svar í viku. Mér líður
illa ef ég næ því ekki. Stundum fer ég
oftar.
Guðbjörg Olafsdóttir: Nei, en ég hef
verið í leikfimi. Mér finnst full ástæða
til að stunda heilsurækt af einhverju
tæi. Nauðsynlegt. Eg er alltaf á leið-
inni.
Valgerður Morthens: Já og nei. Eg
stundaöi tækjaleikfimi í vetur sem leiö
en ákvað að taka mér pásu i sumar. Eg
ætla aö halda áfram í haust í Heilsu-
sporti á Selfossi.
Helga Halldórsdóttir: Eg fer nú bara í
ljós. Þó stundum í sund. Ég nenni ekki
að fara reglulega. Maöur er alltaf að
vinna og hefur svo lítinn tíma fyrir
heilsurækt.
• Lesandi telur kaupmenn hafa einhverja andúð á kreditkortum.
Meiri
háttar
lag
Þrjár stelpur skrifa:
Okkur finnst lagið Ung og rík alveg
meiri háttar og erum vissar um að
margir eru sammála okkur. Ef þessar
snobbhænur geta alls ekki hiustað á
lagið því slökkva þær ekki bara á út-
varpinu? Einfaldara getur það ekki
veriö.
P.S. Okkur langar líka til aö styöja
þann sem skrifaði í blaðið 27. ágúst sl.
og lagði til að sjónvarpað yrði efni
fyrir unglinga á fimmtudagskvöldum í
tilefni af ári æskunnar.
Bönnuðlög
verða vin-
sælli
Bidda skrifar:
Eg vil lýsa furöu minni á bréfi sem
Eva skrifaði til lesendasíðu DV þann
20. ágúst sl. Hvers vegna í ósköpunum
á aö banna Ung og rík? Hvað er unniö
með því? Fylgist Eva kannski svo lítið
með tónlist að hún viti ekki að bönnuð
lög seljast mjög vel og verða oft geysi-
vinsæl.
Textinn er að vísu bæði þunnur og
klúöurslegur en síðast þegar ég vissi
þá var málfrelsi í landi voru. Ef hann
misbýður siðgæðisvitund þinni, Eva,
er tíl sáraeinfalt ráð viö því: Slökktu
bara á útvarpinu þegar P.S. og Co
hefja upp raust sína.
Annað bréf í sama blaöi vakti einnig
reiði mína. Þar var bréf frá 8989-1361
og fjallar um „þroska”. Ég get ekki
lesið mikinn þroska út úr bréfi þessu.
Það er með allan smekk, hka tón-
listarsmekk, að hann þróast og breyt-
ist með árunum. Það er ekki hægt að
skipta einum né neinum að þroskast.
Visa-notandi skrifar:
Frá upphafi hafa kaupmenn haft
einhverja andúð á kreditkortum sem
eru gild og gjaldgeng um allan heim og
koma sér einkar vel fyrir hinn al-
menna viðskiptavin verslana og þjón-
ustufyrirtækja.
Eru kaupmenn á íslandi í einhverri
sérstakri mótmælabaráttu gegn þessu
hentuga formi á viðskiptum? Maður
gæti haldiö að kaupmenn hér á landi
hefðu fengið sæmilegar kjarabætur við
myntbreytinguna á sínum tíma þegar
vöruverð breyttist á einni nóttu öllum
almenningi í óhag. Það er önnur saga,
en aldrei of gömul til þess að hún sé
endursögð.
En kreditkortin hafa sannarlega
hjálpaö fólki í þeim frumskógi sem hér
er til staðar í verslun og viöskiptum.
Það er t.d. mjög hentugt að geta notað
þessi krítarkort þegar fólk fer í
verslunarferðir jafnt hér heima sem
erlendis og lái það hver sem efni hefur
á.
Og nú þykjast kaupmenn ætla að
fara að taka upp nýja háttu í viðskipt-
um. Þeir tala um aö bjóða þeim við-
skiptavinum sem staðgreiða vöruna
ein þrjú prósent í afslátt. — Þetta kvað
eiga að vega upp gegn þeim sem hafa
krítarkort og geta þannig fengið
greiðslufrest!
Sannleikurinn er sá að krítarkortin
eru það verðmæt fyrir fólk að þrjú
prósent eru nánast einskis virði.
Ef kaupmenn eru orðnir svona að-
þrengdir vegna lítillar álagningar og
kannski þjáðir vegna þess aö vera eins
konar innheimtumenn fyrir rikissjóð
þá verða þeir aö bjóöa heldur meira en
3% við staðgreiðslu vara. Ég myndi
ætla að sá afsláttur þyrfti að vera á bil-
inu 10—15, ef ekki 20%, til þess að það
borgaði sig að greiða vörur „kontant”
fremur en að nota greiðslukortin.
Hitt gætu kaupmenn farið fram á
viö hiö opinbera að fá þóknun fyrir inn-
heimtu sína af söluskatti fyrir ríkis-
sjóö. — Og þaö væri ósköp eðlileg krafa
af þeirra hálfu. — Fá ekki aörir inn-
heimtumenn ríkissjóðs umbun fyrir
störf sín?
En að ætla aö bjóða 3% þeim við-
skiptamönnum sem greiða út í hönd í
staö þess að nota krítarkort, það er
hreinlega hlægilegt.
Við Islendingar verðum að sætta
okkur við þá viðskiptahætti sem tíðk-
ast hjá nálægum og f jarlægum þjóðum
sem hafa tekið krítarkortum sem sjálf-
sögðum þægindum í viðskiptum nútím-
ans.
poHf0ál
septembertilboði
Opið fyrir bæði kynin alla virka
daga frá kl. 8.00 — 23.00.
Laugardaga kl. 9.00 —20.00.
Sunnudaga kl. 13.00—20.00.
Bjóðum upp á sól,
vatnsnudd og
sauna í notalegu og
hreinlegu umhverfi.
1 tími kr. 100,00
10 tímarkr. 750,00
20 tímar kr. 1250,00
30 tímar kr. 1650,00
Vatnsnudd og sauna innifalið.
Spurningin
^ SÓLBAÐSSTOFAN
5ÖLVER
BRAUTARHOLTI 4 SÍMI 2 22 24.