Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.1985, Blaðsíða 32
DV. FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER1985.
!
Nanna Guðmundsdóttir frá Hóli í
Stöðvarfirði lést 28. ágúst sl. Hún var
fædd að Þinganesi í Nesjum í Horna-
firði. Foreldrar hennar voru Guðbjörg
Sigurðardóttir frá Vík í Lóni og Guð-
mundur Jónsson frá Hoffelli. Eigin-
maður hennar var Stefán Carlsson,
kaupmaður á Stöðvarfirði. Útför
hennar veröur gerð frá Fossvogskirkju
í dag kl. 16.30.
Þorbjörg Guðlaugsdóttir Wíum lést 23.
ágúst sl. Hún fæddist á Eskifiröi 7. maí
1909. Foreldrar hennar voru hjónin
Málhildur Þorkelsdóttir og Guðlaugur
Eyjólfsson. Þorbjörg stundaði nám í
Samvinnuskólanum í tvö ár en að námi
loknu stundaöi hún verslunarstörf.
Eftirlifandi eiginmaður hennar er Páll
H. Wíum. Þeim hjónum varð fimm
-> barna auðið og eru fjögur á lífi. Utför
Þorbjargar verður gerö frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 13.30.
Brynjólfur Guðmundsson vélstjóri,
Móabarði 2 Hafnarfirði, veröur
jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 6. september kl. 13.30.
Jón Hjartarson frá Sæbergi, V-Húna-
vatnssýslu, sem lést laugardaginn 31.
ágúst, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskapellu föstudaginn 6. september
kl. 10.30.
Kristin Sigurðardóttir, Freyjugötu 30,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 6. september kl. 15.
Erla Eyjólfsdóttir, Hraunbæ 174, lést í
Landspítalanum þriðjudaginn 3.
^ september.
Margrét Stefánsdóttir lést miðviku-
daginn 4. september.
Þórarinn Ág. Flygenring er látinn.
Valdimar Finnbogason, Ásenda 13,
lést miðvikudaginn 4. september.
Bryndís Kolbrún Sigurðardóttir,
Miðvangi 93, verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 6.
septemberkl. 10.30.
Stefania Eðvarðsdóttir, Miklubraut 5
Reykjavík, er lést 29. ágúst sl., verður
jarðsungin frá Hallgrímskirkju föstu-
daginn 6. september kl. 13.30.
Þórheiður Jóhannsdóttir, Lönguhliö 21
Reykjavík, sem lést 30. ágúst sl.,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 6. september kl. 10.30.
Siglingar
Áætlun Akraborgar
Frá Akranesi
Kl. 8.30
Kl. 11.30
Kl. 14.30
Kl. 17.30
Frá Reykjavík
Kl. 10.00
Kl. 13.00
Kl. 16.00
Kl. 19.00
Afmæli
60 ára er í dag, 5. september, Björgvin
Magnússon vélstjóri, Fremristekk 13
Breiöholtshverfi. Hann hefur unnið við
vélgæslustörf á landi og til sjós. Eigin-
kona hans er Áslaug Birna Einarsdótt-
ir frá Neðri-Hundadal.
70 ára er í dag, 5. september, Guðjón
Theódórsson, Hitaveitutorgi 1 Reykja-
vík. Hann er aö heiman í dag.
80 ára er í dag, 5. september, frú Ásta
Guðjónsdóttir Eyjahrauni 1
Vestmannaeyjum. Eiginmaður hennar
var Valtýr Brandsson sem lést árið
1976. Þeim varð 13 bama auðið. Ásta
tekur á móti gestum á heimili dóttur
sinnar og tengdasonar að Dverghamri
37 í Vestmannaeyjum, eftir kl. 18 í
kvöld.
Innilegar kveðjur og þakkir sendum við öllum
þeim er sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför eiginmanns míns og föður,
HJALTA ÞÓRHANNESSONAR,
Kirkjustíg 1
Grindavik.
Kristbjörg Jóhannesdóttir,
Jóhann Hjaltason.
í gærkvöldi____________í gærkvöldi
Sveif lan stóð upp úr
Dagskrá ríkisfjöhniðlanna í gær-
kvöldi var harla bágborin með
viröingarverðum undantekningum
þó. Undirritaður hefur imugust á
hrossum og amerískum kerlingum
en þó nokkurt dálæti á djassi. Rök-
rétt afleiðing: ég nennti ekki að
horfa á Dallas né á Hófaljón í hindr-
unarstökki.
Tania Maria og Niels-Henning
voru mér mjög að skapi. Allt sett í
sveiflugír! Nóg um það. Fréttir
horfði ég á eins og velflestir sjón-
varpsáhorfendur gera. Það er ekki
laust við aö manni yrði hugsað til
tækjanna sem gera fréttamönnum
kleift að horfa í átt til myndavélar
um leið og þeir lesa er Bogi Ágústs-
son las frétt frá Noregi. Vel unnin
frétt — ekki vantaði það en maður
hafði á tilfinningunni að Bogi væri aö
tala við tærnar á sér þar sem hann
grúföi sig yfir textann.
Ingvi Hrafn er búinn að lofa því aö
gera fréttirnar persónulegri. Frétta-
maðurinn á að horfa beint í mynda-
vélina um leið og hann les. Líklega er
markmiöið að áhorfandanum finnist
maðurinn á skerminum vera að
segja sér trúnaðarmál. Ingvi Hrafn
er hins vegar búinn að lýsa því yfir
að maður vinni ekki í 12 ár á Mogg-
anum án þess að það hafi áhrif á við-
komandi. Hvernig ætli það komi út í
fréttatíma sjónvarps?
Á. S.
70 ára verða á morgun, 6. september,
tvíburasystkinin María Eggertsdóttir
Sigurðardóttir, Ljósheimum 16 A hér i
Reykjavík og Ófeigur Sigurðsson mat-
sveinn, Vistheimilinu Víðinesi á
Kjalarnesi.
Tapað -fundið
Fía er týnd
Hún týndist frá heimili sínu aö Álfhólfsvegi
113, Kópavogi, á sunnudaginn sl. Hún er svört
og hvít meö rauða ól um hálsinn og var merkt
þegar hún týndist. Þeir sem hafa orðið varir
við hana vinsamlegast hringi í síma 41498.
Skór töpuðust
Hvítir Convers skór no. 9 töpuðust á Lækjar-
torgi þriðjudaginn 3. ágúst sl. Skilvís finnandi
vinsamlegast hringi í síma 92-6551 milli kl. 9
og 12 f.h. eðakl. 20og22.
Tilkynningar
Taflfélag Reykjavíkur
Yfirlit um starfsemi Taflfélags Reykjavíkur
fram að næstu áramótum:
1) Septeraber-hraðskákmótið verður
sunnudag 8. september kl. 20.
2) Haustmót Taflfélags Reykjavikur 1985
hefst sunnudag 22. september kl. 14. 1 aðal-
keppninni verður þátttakendum skipt í flokka
með hliðsjón af Eló-skákstigum. Tefldar
verða ellefu umferðir í öllum flokkum. I efri
flokkunum verða tólf keppendur, sem tefla
allir við alla, en í neðsta flokki verður teflt eft-
ir Monrad-kerfi.
Umferðir verða þrisvar í viku: á sunnudög-
um kl. 14 og á miðvikudögum og föstudögum
kl. 19.30. Biðskákadagar verða inn á milli,
nánar ákveðið um þá síðar. Síðasta umferð í
aðalkeppninni verður miðvikudag, 16. októb-
er og biðskákir strax daginn eftir. Lokaskrán-
ing í aðalkeppnina verður laugardag, 21. sept.
kl. 14-18.
Keppni í flokki 14 ára og yngri hefst laugar-
dag 28. sept. kl. 14. Tefldar níu umferðir eftir
Monrad-kerfi, umhugsunartími 40 mínútur á
skák. Keppnin tekur þrjá laugardaga, þrjár
umferðir í senn. Bókaverölaun verða fyrir
a.m.k. fimm efstu sæti.
3) Októbcr-hraðskákmótið veröur sunnu-
dag, 20. október kl. 20.
4) Hraðskákmót TR. 1985 — hausthrað-
skákmótið — fer fram sunnudag 27. október
og hefst kl. 14. Tefldar níu umferðir eftir Mon-
rad-kerfi, tvær skákir á fimm mínútum í
hverri umferð.
5) Bikarmót TR1985 hefst sunnudag 17.
nóvember kl. 14. Umhugsunartími er 1/2 klst.
á skák. Keppendur falla úr eftir fimm töp
(jafntefli = 1/2 tap). Teflt á sunnudögum kl.
14 og á miðvikudögum kl. 20 (þó ekki sunnu-
, daginn 24. nóvember vegna skákmóts Flug-
leiða sem fram fer 23. og 24. nóv.):
6) Nóvember-hraðskákmótiö verður
sunnudag, 24. nóvember kl. 20.
7) Desember-hraðskákmótið verður sunnu-
dag, 8. desember kl. 20.
8) Jólahraðskákmót TR 1985 hefst sunnu-
dag, 29. desember og er fram haldið mánudag
30. desember. Taflið hefst kl. 20 báða dagana.
9) Skákkennsla og æfingar fyrir unglinga
eru á laugardögum kl. 14—18.
10) „10 mínútna mót” eru á fimmtudögum
kl. 20 (sjö umferðir Monrad).
11) „10' mínútna mót” eru á fimmtudögum
kl. 20(sjö umferöir Monrad).
önnur skákmót á vegum TR verða auglýst
síðar. Að lokum er vakin athygli á að Skák-
samband Islands gengst fyrir drengja- og
Hugræktarskólinn
Aðalstræti 16, tekur til starfa
Bandarískur jógakennari flytur 2 fyrirlestra
um jógaheimspeki.
Námskeiðahald í hugleiðslu, jógaæfingum
og jógaheimspeki, sem ýmsir aðilar hafa
staöið að i aðalstræti 16, Rvík, hefur nú verið
endurskipulagt með stofnun sérstaks hug-
ræktarskóla. Markmið Hugræktarskólans er
tvíþætt, annars vegar að halda námskeið í
hugleiðslu og jóga sem séu bæði aðgengileg
almenningi og veiti hagnýta kennslu í iðkun
hugleiðslu; og hins vegar að auka umræöu og
skoðanaskipti um innsæisvísindi forn og ný
með fyrirlestrahaldi, umræðufundum og út-
gáfustarfsemi.
Tækniframfarir síðustu áratuga hafa ekki
færi manninum aukna þekkingu á andlegum
veruleik sjálfs sín. Tækniþróun og aukin hag-
sæld eru þó ekki í andstöðu við aukna sjálfs-
þekkingu og heildræna skynjun heldur oft
skilyrði þess aö geta sinnt vitsmunalegum og
andlegum hugðarefnum.
Hugræktarskólinn nýtir sér m.a. slökunar-
æf ingar sem þróaðar hafa verið á V esturlönd-
um í baráttu við spennu og streitu. Grundvöll-
ui'inn er þó hin fornu innsæisvísindi Austur-
landa en laus við skrumskælingu trúarbragð-
anna. Námskeið Hugræktarskólans hefjast
seinni part septembermánaðar. Innritun er
hafinísíma 46821.
I tilefni opnunar skólans veröur banda-
rískur jógakennari, Ac. Mahaprajinananda,
með tvo fyrirlestra í húsakynnum skólans 5.
og 6. september og helgarnámskeið 7.-8.
september.
Fyrirlesturinn fimmtud. 5. september
nefnist: Heildrænn lifstíll. Ahrif jógaæfinga
(asanas), heilsufæðis og hugleiðslu á daglegt
lif.
Fyrirlesturinn föstud. 6. september nefn-
ist: Líkamanum stjórnað með einbeitingu
hugans. Forn jógavísindi fá nýtt hlutverk.
telpnameistaramóti Islands 1985 (14 ára og
yngri) dagana 13.—15. september næstkom-
andi — og unglingameistaramóti Islands 1985
(20 ára og yngri) dagana 1.—4. nóvember
næstkomandi. Bæði þessi skákmót fara fram í
félagsheimili TR að Grensásvegi 46. Nánari
upplýsingar hjá Skáksambandi Islands.
Fyrirlestrar á vegum
Sálfræðingafélags
íslands
Dagana 9. ,10. og 11. september nk. veröur
staddur hér á landi, í boði Sálfræðingafélags
Islands, Dr. Hans Jurgen Eysenck, or
í sálfræði viö Háskólann í London og _,hr-
maöur sálfræðideildar hinnar þekktu
stofnunar „Institute of Psychiatry” á sama
stað. Hann mun flytja hér á landi eftirtalda
fyrirlestra:
1. Personality, behavior therapy and cancer
(persónuleiki, atferlismeðferð og krabba-
mein) sem fluttur verður í húsi Krabbameins-
félags Islands við Skógarhlíð þriðjudaginn 10.
september kl. 20.
2. The biological basis of intelligence (lif-
fræðilegar forsendur greindar) sem fluttur
verður í Odda, hugvísindahúsi Háskóla
Islands, miðvikudaginn 11. september, kl.
17.15. Jafnframt flytur prófessor Eysenck tvo
fyrirlestra á Geðdeild Landspítalans.
1. Behavior therapy in theory and practice
(kenningar og hagnýting atferlismeðferðar),
mánudag 9. september kl. 14.
2. Evaluation of psychotherapy (mat á með-
ferð geðrænna vandkvæða), miðvikudag 11.
september kl. 14. Fyrirlestrarnir verða fluttir
á ensku. Aðgangur er ókeypis.
Helgarnámskeiö í hugleiðslu, jógaheim-
speki og tengslum innsæisvisinda við þjóð-
félagsheimspeki verður síðan haldið nk.
laugardag og sunnudag frá kl. 14.00 til 18.00
báða dagana. Leiðbeinandi er Ac. Mahapraj-
inananda. Innritun og uppl. í síma 23588.
Námskeiðsgjald er kr. 150.
Árekstraalda
Tuttugu og níu árekstrar uröu í um-
feröinni í Reykjavík i gær þrátt fyrir
blíöskaparveöur. Er aldrei nóg-
samlega brýnt fyrir ökumönnum aö
fara varlega, ekki síst nú þegar
þúsundir skólabarna koma út á
götuna.
-KÞ.
Ekið á konu
á gangbraut
Ekiö var á fulloröna konu á gang-
braut um miðjan dag í gær. Hún fót-
brotnaði illa og er líðan hennar eftir at-
vikum.
Konan, sem er 82ja ára, var á leiö
yfir gangbrautina á móts viö
Fríkirkjuveg eitt þegar fólksbifreiö
kom aövífandi og tókst ökumanni ekki
aö stööva hana i tæka tiö. Var konan
flutt á slysadeild Borgarspítalans.
-KÞ.