Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1985, Blaðsíða 8
8
Útlönd
Útlönd
Útlönd
DV. FÖSTUDAGUR 11. OKTOBER1985.
Utlönd
Rændu sjóræningjunum
Sjóræningjarnir:
Formæltu Reagan
en lofuðu Arafat
Farþegar Achille Lauro tóku það
rólega í gær eftir aö sjóránið var yfir-
staðið. Suma mátti jafnvel sjá synda í
sundlaug skipsins.
Svissnesku farþegarnir voru sendir
með bílum til Kairó en þaðan áttu þeir
að fljúga beint heim.
Farþegar sögöu að sjóræningjarnir
hefðu hegðað sér mjög furðulega.
Stundum hefðu þeir sýnt mikinn skap-
ofsa en jafnsnöggt breytt um skap og
verið vingjarnlegir. Þeim hefði
greinilega ekki komiö vel saman
innbyrðis.
Bandarikjamenn sögðu að eftir að
einn sjóræningjanna hefði skilið þá að
frá hinum farþegum skipsins, hefði
annar sjóræningi leyft þeim að fara
aftur í hóp hinna.
Ekkja Leons Klinghoffer fór beint á
hótel eftir að skipið kom í höfn í Port
Said. Bandaríski sendiherrann tók á
móti henni þar.
Bandarísk kona sagði að einn mann-
ræningjanna hefði lamið frú Klinghoff-
er í höfuöið þar sem hún lá varnarlaus
á gólfinu.
Þessi kona sagði líka að
hryðjuverkamennimir hefðu stöðugt
formælt Reagan Bandaríkjaforseta en
lofað Yasser Arafat, leiötoga PLO.
Bandarísku farþegarnir sögðu að
þeim hefði ekki verið sagt af dauða
Klinghoffers. En einn þeirra taldi
líklegt aö áhöfn skipsins hafi vitað af
dauöa gamla mannsins en ekkert
viljað segja til aö koma í veg fyrir
hættulegt uppþot.
Klinghoffer var í hjólastól eftir
hjartaáfall sem hann fékk fyrir sex
árum.
Pakistanar
meðbombuna?
Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Ind-
lands, segir að hugsanlegt sé aö
Pakistanar hafi þegar búið sér til
kjarnorkusprengju. I viðtali við hann
fyrir ferö sína til London í næstu viku
sagðihann:
„Við teljum að þeir séu annaðhvort
um það bil að fá sprengjuna eða að þeir
hafi þegar búið hana til og þurfi ekki að
prófahana.”
Gandhi sagöist vonast til að
Indverjar þyrftu ekki að grípa til þess
ráðs að framleiða eigin kjarna-
sprengju.
Indverjar hafa sprengt slíka
sprengju en segjast ekki hafa aðra í
fórum sínum.
Öll von talin úti
Eftir þrlggja vikna baráttu upp é lif og daufla eru björgunarsvaitirnar i Mexikóborg orðnar úrkula vonar
um afl lifsmark leynlst mefl nokkrum sem enn liggur grafinn undir rústunum eftir jarflskjálftann mikla.
Kapphlauplð vifl uppgröftinn er á enda, skóflunum er stillt til hliflar, þreytan sigur á menn og vonleysið
nrar yflrhöndinni, eins og þessi mynd sýnir. Vonbrigflin yfir þvi afl bjarga ekki fleirum, eins og níu ára
drengnum sam tórfll i tvser vikur grafinn langt niflri i rústunum en dó i sömu mund og björgunarmenn
áttu aflelns ófarlnn örstuttan spöl afl honum, leyfa þeim i bili ekki afl glefljast yfir ótal sigrum yfir
dauflanum sem unnir voru i þessari baráttu.
Um þaö bil þegar sjóræningjar
Achille Lauro héldu að þeir væru að
komast úr klóm yfirvalda var flugvélin
sem þeir fóru i út úr Egyptalandi
neydd til að lenda á Sikiley.
Bandariskar herflugvéiar flugu i
veg fyrir egypsku flugvélina, sem sjó-
ræningjamir fjórir voru í, og neyddu
hana til að lenda á itölsku landsvæði
snemma i morgun.
„Sjóræningjamir hafa verið teknir í
italska vörslu til að ganga i gegnum
dómskerfið,” sagði Larry Speakes,
talsmaður Bandaríkjaforseta.
Loforð um f relsi
Sjóræningjamir, fjórir Pai-
estínumenn, sem ekki er nákvæm-
lega vitað, hvaöa samtök sendu
af stað, fengu loforð egypsku stjóm-
arinnar um frelsi gegn því aö gefast
upp og sleppa öllum farþegum italska
skemmtiferöaskipsins Achille Lauro,
sem þá var statt úti fyrir Port Said. En
mannræningjamir lugu þvi að
Egyptum aö þeir heföu engan drepiö
um borö. En bandariskir og ítalskir
embættismenn segja að sjó-
ræningjamir hafi skotið 69 ára
gamlan Bandaríkjamann og hent líki
hans og hjólastól fyrir borð undan
Sýrlandi.
Speakes sagöi aö ævareiður Banda-
ríkjaforseti hefði skipað fjórum
Tomcat orrustuvélum aö fljúga í veg
fyrir hryðjuverkamennina eftir
viöræður við Betrtino Craxi, forsætis-
ráöherra Italíu.
Niðurlæging
fyrir Egypta
Aðgerðin er meiri háttar niður-
læging fyrir Egyptaland. Stjóm
Halda skipinu
Þegar fréttist af flugráninu skipuðu
egypsk yfirvöld að Archillo Lauro yrði
haldið í egypskri höfn en skipið átti aö
leggja af stað til Israels.
Bandarikjamenn segjast munu
sækjast eftir því að sjóræningjarnir
fjórir verði framseldir. Ný bandarísk
lög kveða á um að morð á banda-
rískum þegnum hvar sem er í
heiminum, séu refsanleg í Banda-
ríkjunum.
Vilja
dæma þá
sjálfir
Bandaríkin og Italía eru strax farin
að deila um hver hafi lögsögu yfir
sjóræningjunum fjórum. Italir munu
staðráðnir í að láta Palestínumennina
fara fyrir ítalskan dómstól. Þar yrðu
þeir dæmdir fyrir sjórán og fyrir
morðið á Bandarikjamanninum Leon
Klinghoffer.
Bandaríkjamenn krefjast þess að
Italir framselji sjóræningjana. Þeir
vilja dæma þá fyrir morðið í Kling-
hoffer, sem var bandarískur þegn.
Italir segja að glæpirnir hafi verið
framdir á ítölsku yfirráðasvæði vegna
þess að Archille Lauro var ítalskt skip
á alþjóðlegu yfirráðasvæði.
Bandarikjamenn vildu í fyrstu
flytja sjóræningjana strax til Banda-
ríkjanna en um klukkan þrjú í nótt
samþykktu þeir að ítölsk lögregla héldi
þeim. Þessi samþykkt var gerð eftir
símasamtal Craxis og Reagans.
Nokkrir bandarísku farþeganna úr
italska skipinu Achille Lauro rœfla
vifl fróttamenn i Port Said í Egypta-
landi eftir að þeir voru lausir orðnir
úr gislingu hjá sjóræningjunum.
landsins var i sárum fyrir eftir hár-
beitta gagnrýni Bandaríkjamanna
fyrir að leyfa hryðjuverkamönnunum
aö fara úr landi. Egyptar segjast ekki
hafa vitað um Bandaríkjamanninn
Leon Klinghoffer, sem mann-
ræningjamir skutu til bana, þegar þeir
sömdu um að mannræningjamir
fengju aö ganga lausir.
Caspar Weinberger, varnarmála-
ráðherra Bandarikjanna, sagði í nótt
að flugmóðurskipiö Saratoga hefði
verið á siglingu undan Albaníu þegar
skipunin kom um að flugvélar af
skipinu skyldu neyöa egypsku flug-
vélina til lendingar. Tveim tímum
síðar hófst aögeröin með því aö
Tomcat orrustuvélarnar biðu í
myrkrinu, nálægt Krít, eftir því að
flugvél mannræningjanna færi á loft.
Hún hafði ekki verið á lofti í 45 mínútur
þegar bandarísku orrustuflugvélarnar
runnu upp að henni með lendingar-
skipanir.