Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1985, Blaðsíða 33
DV. FÖSTUDAGUR11. OKTOBER1985.
45
Lokakvöld í keppninni um stjörnu
Hollywood og fulltrúa ungu kyn-
slóöarinnar, ásamt titlinum sólar-
stjarna Úrvals, var haldiö í Broadway
á dögunum. Keppendur hafa verið
rækilega kynntir á síðum Vikunnar aö
undanförnu þannig aö menn ættu aö
hafa haft einhverja nasasjón af þátt-
takendum áður en sjálft lokakvöldið
rann upp.
Hlutskörpust að þessu sinni sem
fulltrúi ungu kynslóöarinnar og
stjarna Hollywood var Ragna
Sæmundsdóttir og hlaut hún meðal
annarra vinninga bifreið af gerðinni
Daihatsu turbo. Hún mun á næsta ári
fyrir Islands hönd, taka þátt í
fjölmörgum keppnum af þessu tagi er-
lendis. Sólarstúlka Urvals er Margrét
Guömundsdóttir. Ingibjörg Siguröar-
dóttir var kosin vinsælasta stúlkan
meöal keppenda sjálfra.
Baldur Brjánsson töframaður
dundaði meðal annars við að
hluta i sundur fyrrverandi
handhafa stjörnutitilsins Önnu
Margréti Jónsdóttur.
ENGIN
LOGNMOLLA
HJÁ MADONNU
Sean Penn var áhyggjufullur á
brúðkaupsdaginn enda önnum
kafinn við að skjóta á þyrlur og
berja Ijósmyndara. Madonna var
eins og aðrar helgimyndir —
deplaði ekki auga i öilum
látunum.
Hin dáða Madonna gekk í það
heilaga á dögunum meö náunganum
Sean Penn og viðstaddir voru heil-
margir úr helsta hollívúddgenginu.
Eitthvað tók þetta á taugar brúð-
gumans og fékk það útrás í hinum
ýmsum athöfnum kappans þennan
sögulega brúökaupsdag.
Þremur stundum fyrir athöfnina
sjálfa tók hann upp byssu og skaut að
þyrlu sem sveimaði yfir þrátt fyrir
skelfingaróp gestanna og aðvörun
Madonnu til hans um að hleypa ekki
af skoti. Brúðkaupið var hin mesta
martröð og gestir undruöust stórlega
taugastyrk Madonnu sem deplaði
ekki auga hvernig sem eigin-
maöurinn tilvonandi lét. Þyrlurnar
sem voru með ljósmyndara
blaðanna innanborös fóru ekkert
þrátt fyrir ólæti kappans, en
hávaðinn frá þeim kæfði sjálfa at-
höfnina þannig að gestir heyrðu ekki
eitt einasta atkvæði.
Undir lok veislunnar missti Sean
endanlega stjórn á skapsmunum
sínum og réðst að ljósmyndara á
staðnum, gaf honum vel útilátin
kjaftshögg og henti myndavélinni
eins og langt og hann gat í burtu.
Gestirnir höfðu á orði aö greinilega
væri það ekki auöveldasta hlutskipti
undir sólinni að ganga í hjónaband
með Madonnu og létu í ljósi óskir um
að mestu reiðiöldurnar færi að lægja
undir kvöldið og nóttina.
ATVINNUHÚSIMÆÐI
120 m2 húsnæði til leigu eða sölu i miðhænum.
Tilvalið undir veitinga- eða kaffistað, einnig undir
verslunarrekstur.
Hafið samband við auglýsingaþjónustu DV i síma
27022. H-8998.
Einstaklega ódýrir
hjólbarðar m/hvítum
hringum.
Firestone snjóhjólbarðar:
STÆRÐIR:___________VERÐ KR.:
A 78x13 (165x13) 3.231.-
B 78x14 (165x14) 3.480.-
C 78x14 (175x14) 3.699.-
Sólaðir amerískir snjóhjól-
barðar m/hvítum hrlngum.
STÆRÐIR:___________ VERD KR.:
B 78x13 (165x13) 1.380.-
D 78x14 (175x14) 1.620.-
E 78x14 (185x14) 1.789.-
HJÓLBARÐAVIÐGERÐ
KÓPAVOGS
SKEMMUVEGI 6, KÓPAVOGI
SÍMI 75135
Nauðungaruppboð
annaö og slðasta á fasteigninni Garðbraut 66 I Garði, þinglýst eign
Siguröar Rafnssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Vilhj. H.
Vilhjálmssonar hdl. miðvikudaginn 16.10. 1985 kl. 13.30.
Sýslumaöurinn I Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 90., 97. og 100 tbl. Lögbirtingablaösins 1985 á fast-
eigninni Litlagerði 2b Hvolsvelli, þinglesin eign Hjálmars Jónssonar, fer
fram að kröfu Glsla B. Garöarssonar hdl. og fleiri á eigninni sjálfri mánu-
daginn 14. okt. 1985 kl. 11.30.
Sýslumaður Rangárvallasýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur veriö i Lögbirtingabl. á fasteigninni Melbraut 27 I
Garði, þinglýst eign Jörgens Bent Pedersen, fer fram á eigninni sjálfri
að kröfu Róberts A. Hreiðarssonar hdl. miðvikudaginn 16.10.1985'kl.
16.00.
Sýslumaðurinn I Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð
annaö og síðasta á fasteigninni Garðhús I Garði, þinglýst eign Ævars Þ.
Sigurvinssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Guðjóns Á. Jóns-
sonar hdl., Garðars Garöarssonar hrl. og Arna Einarssonar hdl. mið-
vikudaginn 16.10.1985 kl. 14.45.
Sýslumaðurinn I Gullbringusýslu.