Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1985, Blaðsíða 14
14
DV. FÖSTUDAGUR11. OKTOBER1985.
Menning
Menning
Menning
Menning
LÉTTUR ÞJÓDERNIS-
REMBINGUR
— á sýningu sem Árni Páll opnar í Salnum á morgun
Húsiö er arfur frá kynslóöinni sem
komst í álnir á árunum milli stríöa. Öll
form þess eru hvöss meö ákveðnum
dráttum. 1 bílskúrnum í bakgaröinum
hefur listamaðurinn vinnustofuna.
„Þaö þarf ekki annað en aö líta á
húsin hérna til aö sjá livaö landinn er
skemmtilega brjálaöur,” segir Árni
Páll og er enn ekki farinn aö ræöa sýn-
inguna sem er þó tilefni viötalsins. En
verkin, sem hann sýnir að þessu sinni,
eru ekki fjarri stíl hússins. Flatar-
málsfræðin er viöfangsefni Árna Páls
og hefur aldrei verið langt undan í
verkunum, segir hann. En þegar flat-
armálsfræöin í list eftirstríösáranna
berst í tal neitar hann aö um aftur-
hvarf sé aðræða.
,,Þaö sem ég er aö gera á sér allt
annan bakgrunn. Ég byggi á öörum
skoöunum og öörum tilfinningum. Það
er stundum sagt aö ekkert nýtt sé til í
myndlistinni. Sennilega er þaö öfugt;
þaö er ekkert gamalt til í greininni.
Verkin sem ég mála eru hörö og
ákveðin, ef til vill svolítiö fasistísk. En
þeir sem bera þessi verk saman viö
nýja málverkið svokallaöa sjá aö til-
finningin er ekki svo ólík.”
— En nýja málverkið hefur ekki
gripiö þig?
Þetta er nákvæmnisverk hjá Árna
Páli og sonurinn fylgist grannt mefl
öllu.
DV-mynd GVA
„Nei, þar er veriö aö gera hluti sem
ég get ekki gert. Eg er miklu upptekn-
ari af formunum.”
Fjölmargir bókstafir hafa ruöst inn í
verk Árna Páls. Þaö er ekki bara aö
bókstafirnir hafi lagt undir sig stór
olíumálverk heldur er hann einnig aö
móta þá í óútfylltar plötur fyrir bíl-
númer.
„Ég lít á bókstafina sem geometrísk
form,” útskýrir Árni Páll „og margir
þeirra eru mjög sterk form. Síðan má
ekki gleyma aö þaö er svolítill húmor í
þessulíka.”
Á stóru málverki koma fyrir stafirn-
ir ME samtengdir. „Sjálfsagt má
spyrja hvort þetta séu ekki stafirnir
hans Magnúsar Einarssonar,” segir
Árni Páll. „En þaö er ekki rétt — þetta
er fjármál.” En nóg um húmorinn.
Nýja málverkið er enn á dagskrá.
„Ég er orðinn dálítið þreyttur á nýja
málverkinu,” viðurkennir listamaöur-
inn, „þótt ég neiti ekki aö þar hafa ver-
iö gerðir margir góðir hlutir. Svona
byltingar, eins og nýja málverkið var,
eru líka nauösynlegar fyrir þróunina.
Nýja málverkið hefur fært okkur
marga góöa málara eins og alltaf ger-
ist eftir svona tímabil. En byltingar
veröa aö tísku sem fleiri en geta reyna
að elta. Reynslan sýnir aö sumir ráöa
við þetta en aðrir ekki og þeir detta
sjálfkráfa út. Nú og svo staöna sumir.
Þannig gengur þetta. Eftir eitt eða
tvö ár gæti þetta sem ég er aö gera orö-
iö aö tísku. Þó hafa málarar alltaf
veriö aö fást viö geometríu. Þaö hefur
aldrei hætt. Ég sé af gamalli grafík hjá
mér að þar kemur geometrían einnig
fyrir. Þetta er ákveöinn stíll sem geng-
ur í gegnum verkin þó hann viröist los-
aralegur. Ég er alveg ægilegur patríót
í mér og fer ekki 'út til aö skoöa mál-
verk. Þaö væri gaman en ég gæti ekki
farið til aö vera einhvern tíma. Ég hef
aldrei séö neitt koma frá þessu fólki
sem fariö hefur út. Islendingar eru al-
veg sérstakt fólk. Þeir eru ótrúleg
hörkutól. í Hollandi eru t.d. litlir hópar
að spá í list en almenningur skiptir sér
ekkert af henni. Hér er allt annað uppi
á teningnum. Þetta er kannski léttur
þjóðernisrembingur, ha?
Ég er frá Stykkishólmi sem var ansi
lifandi bær þegar ég var aö alast þar
upp og mikiö listalíf. Ég veit ekki hvort
staðurinn hefur dalað síöan þá. Þar
voru Jón Svanur húsamálari og
apótekarinn, Stefán Sigurkarlsson, aö
fást viö málverk. Þeir kveiktu hjá mér
áhugann. Stefán apótekari málaði
rúllugardínumai- hjá sér. Þaö þótti mér
mjög sniðugt. Síöan kynntist ég súmm-
urunum, Jóni Gunnari og fleirum úti í
Flatey. Þar opnaöist fyrir mér ný vídd
í myndlistinni.
Ég læröi ljósmyndun og kynntist þar
mörgu, sérstaklega um liti og ljós.
Ljósmyndirnar eru mikiö notaðar í
konseptinu sem ég heillaöist af.
Konseptið er eins og sköpun heimsins.
Þaö byrjar á hugmynd. Ég er búinn
meö hana, síöan er rykiö, þá dýrin og
nú er ég kominn aö því sem maöurinn
hefur fram yfir dýrin.
En þaö er skítt aö geta ekki haft
myndlistina aö aðalstarfi. Á sumrin
vinn ég að kvikmyndagerð meö Nýju
lífi. Þar geri ég allt sem til fellur,
smíöa leikmynd og svo framvegis. Hjá
Nýju lífi setti ég m.a. Islandsmet í
kvikmyndaleik þegar ég lék fimm hlut-
verk í sömu myndinni.” Þar meöhefur
Árni Páll sagt sitt síðasta orö, í bili
vonandi, og þrífur pensilinn og lætur
ekki tef ja sig lengur.
GK
(tfCUREYRINGAty
Gerist
áskrifendur!
Áskriftarsíminn
á Akureyri er 25013
ATHUGIÐ!
Tekið er á móti smáauglýsingum
í sima 25013 og á afgreiðslunni,
Skipagötu 13.
Afgreiðsla okkar
Skipagötu 13
er opin virka daga kl. 13—19
og laugardaga kl. 11 — 13.
Blaðamaður
Frjálst.óháð dagblaö
Jón G. Hauksson, hefur aðsetur á sama stað.
Vinnusími hans er 26613, heimasími 26385.
á Akureyri,
VIÐ FÆRUM YKKUR
Frjalst.ohaÖ dagblaö
DAGLEGA
Frjalst.ohaö dagbiaö
Afgreiðsla — auglýsingar — ritstjórn,
Skipagötu 13 — Akureyri.
Sími 25013.
Laus staða
Staða yfirmatsmanns á Vestfjörðum er laus til umsóknar.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi matsréttindi og
reynslu í sem flestum greinum fiskiðnaðar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf sendist sjávarútvegsráðuneytinu fyrir 1.
nóvember nk.
Sjá varútvegsráðuneytið,
10. október 1985.
Hjúkrunarfræðingar
Stöður hjúkrunarfræðinga við eftirtaldar heilsugæslu-
stöðvar eru lausar til umsóknar nú þegar:
Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina í Breið-
dalsvík.
Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina á Eyrar-
bakka.
Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina á Þórs-
höfn.
Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð Suður-
nesja, Keflavík.
Hálf staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina á
Dalvík.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf í
hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
inu.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
8. október 1985.