Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1985, Side 11
DV. FÖSTUDAGUR11. OKTOBER1985.
11
Hér ar verið að hengja upp Kjarvalsmálverk frá 1934 sem er annað tveggja
sem Þorvaldur Guðmundsson kom með frá Þýskalandi nýverið og sýnd
verða á afmælissýningunni „Meistari Kjarval 100 ára", sem opnuð verður i
Háholti í Hafnarfirði 19. október nk. Myndirnar tvær, sem hér um ræðir,
voru gefnar úr landi skömmu eftir að þær voru málaðar og hafa aldrei verið
sýndar hér á landi fyrr. Á myndinni með Þorvaldi eru t.v. Aðalsteinn
Ingólfsson listfræðingur og Gunnar Hjaltason gullsmiður, sem unnið hafa
að undirbúningi sýningarinnar.
„Meistari
Kjarval
100 ára”
Þorvaldur í Sfld og fisk sýnir á annað
hundrað Kjarvalsmálverk
I októbermánuði eru hundrað ár liðin
frá fæðingu eins mesta listamanns
íslensku þjóöarinnar, Jóhannesar S.
Kjarvals. Margt verður gert til að
heiðra minningu þess manns sem er
einn helsti buröarstólpi íslenskrar
myndlistar og menningar fyrr og
síðar. I eigu Þorvaldar Guðmunds-
sonar, forstjóra í Síld og fisk, er
stærsta einkasafn Kjarvalsmynda,
sem hann hefur eytt stórum hluta ævi
sinnar til að safna. I tilefni afmælisins
undirbýr Þorvaldur þessa sýningu á á
annaö hundrað myndum, sem opnuö
verður 19. október nk. í sýningarsal
hans í Háholti í Hafnarfiröi.
Sýningin ber yfirskriftina „Meistari
Kjarval 100 ára” og hafa flest
málverkin aldrei fyrr komið fyrir
sjónir almennings. Nokkrar myndir
hafa áratugum saman verið erlendis
og eru tvær t.a.m. nýkomnar heim frá
Þýskalandi, eftir að hafa verið þar frá
því skömmu eftir að þær voru málaðar
1934.
Elsta myndin á sýningunni er hand-
málað jólakort frá 1905. Mesta verkið á
sýningunni er hið margfræga „Lífs-
hlaup Kjarvals”, sem er í raun vegg-
fóðrið úr vinnustofu meistarans í
Austurstræti. I litprentuðu afmælisriti,
sem Þorvaldur gefur út í tilefni tíma-
mótanna, segir Aðalsteinn Ingólfsson
iistfræðingur í lokaorðum m.a.: „Á
þessu afmælisári Kjarvals verða
sýningar haldnar honum til heiðurs
víða um land. Þó er ég sannfærður um
aö engin þeirra megnar að sýna hinn
fjölþætta og útreiknanlega feril hans
með eins hnitmiðuðum og sannfærandi
hætti og þessi sýning í Háholti. ’ ’
Hér á myndinni sjást vinningshafar i verfllaunagetraun Ferðafélagans,
ásamt fulltrúum þeirra fyrirtækja og stofnana sem gáfu verðlaunin.
DV-mynd S.
Ferðafélaginn
veitir verðlaun
Iþróttasamband lögreglumanna
hefur tvö sl. ár gefið út Ferðafélagann,
rit sem kemur út í 50 þús. eintökum og
er dreift ókeypis um allt land.
Umferðarráð hefur verið ráðgefandi í
þessari útgáfu og einnig FlB. Efni rits-
ins fer inn á þau atriði sem skipta máli
í akstri úti á vegum. Þannig að ritið er
miðill til ökumanna — þar sem áhersla
er lögð á öryggisatriöi í keyrslu og allt
sem viðkemur umferð.
Blaðið efndi til verðlaunagetraunar.
I gær var átján vinningshöfum veitt
verðlaun sem voru afar glæsileg.
Fyrstu verðlaun voru t.d. utanlands-
ferð og sumarhús í Hollandi, önnur
verðlaun voru utanlandsferð. Það voru
Arnarflug, FlB, Rauöi kross Islands og
Frón hf. sem lögðu til verðlaunin.
Tillaga BSRB-stjómarinnar um úrsögn kennara:
SKIPTAR SKODANIR UM
FYLGIVID TILLÖGUNA
Stjórn BSRB hefur sent öllum
þingfulltrúum, sem væntanlega sitja
þing BSRB 22.-26. okt. nk., þing-
gögnin. I þeim gögnum er m.a. til-
laga frá stjórninni sem borin verður
upp til atkvæðagreiðslu á þinginu. Sú
tillaga styðst við 17. gr. laga banda-
lagsins og er um endurtekningu á at-
kvæðagreiðslu kennara um úrsögn
úrBSRB.
„Allsherjaratkvæðagreiðsla hefur
farið fram og ég sé enga ástæðu til að
endurtaka hana,” sagði Valgeir
Gestsson, formaður Kennarasam-
bands Islands, í viðtali í DV. Hann
sagöist telja það gerræðislegt af
stjórn BSRB að leggja þessa tillögu
fram. Við ræddum við nokkra þing-
fulltrúa, sem munu sitja þingið, um
þessa tillögu og afstöðu þeirra.
„Persónulega finnst mér ekki hægt
að skikka neinn tU að vera í félagi
sem ekki viU vera með. Það er meiri-
hlutinn í kennarasambandinu sem
viU fara” sagði JarmUa Hermanns-
son hjá Rannsóknastofnun fiskiðn-
aðarins. Hún mun sitja sitt fyrsta
BSRB-þing nú. „En mér þykir
heldur sárt að missa kennarana úr
BSRB,” bætti hún við. „Mér fannst
mikið tU um samstöðu manna í verk-
fallinu og sérstaklega kennara sem
vorumjög virkir.”
„Eg efast um það,” svaraöi Tómas
Sigurðsson hjá Vita- og hafnarmála-
stjórn þegar hann var spurður hvort
tiUaga stjórnar BSRB næði fram að
ganga á þinginu.
„Eg held að það sé ákaflega erfitt
aö halda félagi inni sem hefur ákveð-
iö að fara úr bandalaginu,” sagði
hann. „Svona félög, eins og eru í
BSRB, verða ÖU aö fara að þeim
lögum sem félagarnir hafa sjálfir
sett,” sagði Guðlaugur Einarsson
hjá Geislavörnum ríkisins aðspurður
umtiUöguna.
Viö fleiri þingfulltrúa var rætt og
flestir voru á þeirri skoðun að erfitt
væri úr þessu að „neyða” kennara tU
áframhaldandi veru í BSRB og að tU-
lagan næði ekki fram að ganga á
þinginu.
-ÞG
Tillagaað deiliskipulagi Skúlagötusvæðisins
Sölvhólsgata
Lindarcata
Auglýsing um deiliskipulag og breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur
Með vísan til 17. og 18. gr. laga nr, 19/1964, er hér með auglýst deiliskipulagstillaga Skúlagötusvæöisins sem af-
markastaf Sætúni, Snorrabraut, Hverfisgötu og Ingólfsstræti.
Tillagan felur í sér landnotkunarbreytingu og breytingu á umferðarkerfi á staöfestu Aðalskipulagi Reykjavíkur.
Uppdrættir, ásamt líkönum og greinargerö liggja frammi almenningi til sýnis á skrifstofutima í Byggingaþjónust-
unni, Hallveigarstíg 1, frá og með föstudeginum 11. okt. til 22. nóv. 1985. A miövikudögum milli kl. 16.00 og 18.00
munu höfundar og/eða fulltrúi Borgarskipulags mæta á staöinn og svara fyrirspurnum varöandi tillöguna.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skal skila skriflega á sama stað eigi síðar en kl. 18.00, föstudaginn 6. des. 1985.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir breytingunni. R<,¥kjavík 11 oktúber 1985
Borgarskipulag Reykjavikur
Þvarholti 1S, 105 Raykjavik.
ÚRVAL AF BLÓMAPOTTUM,
HLÍFUM OG FLEIRA
ÚRVAL AF GLER-GJAFAVÖRUM