Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1985, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1985, Síða 36
FRETTASKOTIÐ Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsingar, áskrift og dreifing, sími 27022. Hafir þú ábendingu efia vitneskju um frétt — hringdu þá í sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst, óháð dagblað FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1985. Aðstoðarmenn: DAVÍÐ HÆTTIR - Geir Haarde áfram í fjármálaráðuneytinu Fjórír ráöherrar sjólfstæöismanna hafa haft sér við hlið aðstoðarmenn. Nú þegar þessir róðherrar taka við nýjum róðuneytum verða nokkrar breytingar i hópi aöstoðarmann- anna. Geir Haarde hefur verið aðstoðar- maöur Alberts Guðmundssonar. Aö sögn Alberts mun Geir halda áfram sem aðstoðarmaöur fjórmálaróö- herra, eða verðandi fjórmólaráð- herra, Þorsteins Pálssonar. I viðtali við DV sagði Albert að hann væri ekki enn búinn að velja sér aöstoðar- mann í iönaöarráðuneytið. Hann ætl- aði þó að finna sér einhvern sem heföi vit á þessum málum. Davíö A. Gunnarsson hefur veriö aðstoðarmaður Matthiasar Bjarna- sonar. Hann muií hætta störfum og hverfa til fyrri starfa sem forstjóri Eíkisspítalanna. Inga Jóna Þóröardóttir hefur verið aöstoðarmaöur Ragnhildar Helga- dóttur. Ragnhildur sagði við DV að ekki væri ráðið hvort hún yrði að- stoðarmaöur hennar i heilbrigöis- ráöuneytinu. Inga Jóna er nú stödd á þingi UNESCO í Búlgaríu. Hreinn Loftsson hefur verið aö- stoðarmaður viðskiptaráðherra. Lík- lega mun hann hætta störfum sem slíkur um leið og Matthias Á. Mathiesen tekur sér frí frá ráðherra- störfum fram til áramóta. Sverrir Hermannsson hefur ekki haft aðstoðarmann í sínu ráðuneyti. Hann sagðist ekki hafa ákveðið hvort hann fengi sér slíkan þegar hann settist að i menntamálaráðuneytinu. APH NT íTímann? „Það er ýmislegt sem ég er að skoða og kanna í sambandi viö hagkvæmni í rekstrí blaðsins — þ.á m. útliti blaðs- ins,” sagði Helgi Pétursson, ritstjóri NT. „Það er ýmislegt sem betur má fara, eins og t.d. nafn blaðsins. Eg og margir aðrir höfum aldrei fellt okkur viö nafn biaðsins, sem ég tel aö hafi aldrei komist til skila. Tíminn er besta nafn sem dagblaö getur borið,” sagði Helgi. -SOS EINANGRUNAR GLER 66 6160 LOKI Af hverju er alltaf verið að plata hann Denna? Albert Guðmundsson um misskilningformanna stjórnarflokkanna: „Bara að þeir mis- skilji sem oftasf „Ef það er leiðin til þess að fólkið fái kjör sín bætt að þjóðarleiðtogar misskilji hlutina þá er bara að þeir misskilji sem oftast,” segir Albert Guðmundsson fjármálaráðherra. Þeir Steingrímur Hermannsson og Þorsteinn Pálsson telja sig hafa haldið Albert ætla að semja um hækkun launa fyrir tilteknar stéttir innan BSRB, ekki alla BSRB menn hjá ríkinu. „Þetta er leiðrétting sem við gerum, til allra sem ekki höfðu þegar fengiö slíka leiðréttingu, til 4.000 eða 4.500 manns. Viðbrögðin eru síðan dæmigerð. Þeir sem eru með betri kjör þola aldrei að hinir dragi á þá, að litli maðurinn nálgist þá. Viö erum að leiörétta fyrir okkar fólk, fá því þaö sem aðrir hafa þegar fengið. Ef frjálsi markaöurinn ætlar siðan að byggja nýjar kröfur á því er hann að hafna því að okkar fólk njóti þess sem þar varfyrir. Eg vona að menn leggi sig ekki niður við að fara þannig aftan að hlutunum," segir Albert. HERB Sjá viðtal við Steingrim á bls. 40. Það óhapp varð við Þjóðminjasafnið að mikið af ölkössum og tómum ölflöskum féll ofan af bil og brotnaði é götunni. Hér é myndinni fyrir ofari sést lögregluþjónn hreinsa til é staðnum, þannig að umferðin gœti gengið groitt é hægri akreininni. Skömmu síðar komu borgarstarfs- menn é staðlnn og komu ölkössunum og flöskunum í burtu. DV-mynd KAE. Securitas: Viðræður sprungu Upp úr samningaviðræðum Securit- as og Dagsbrúnar slitnaði laust fyrir klukkan níu í morgun. Er óttast að mikil harka sé hlaupin í deiluna og að langt verði í samkomulag. Krafa Securitas um að fyrirtækið mætti ætíð halda úti lágmarksöryggis- gæslu og neyðarþjónustu í vinnudeil- um varð að lokum ásteytingarsteinn- inn. Samkomulag hafði náðst um flest önnur atríði og lítið bar á milli í launa- liðnum. Sprengingin í morgun kom flatt upp á marga því að bjartsýni ríkti í gær- kvöldi um að stutt væri í samkomulag. Samningaviðræður stóðu nær látlaust yfir frá því síðdegis á miðvikudag þar til í morgun, fyrst óformlegar milli framkvæmdastjóra Securitas og starfsmanna en hjá ríkissáttasemjara frá klukkan 13 í gær. „Þessi deila er orðin miklu erfiðari og harðari eftir þá mynd sem hún tók á sig í morgun,” sagði Þröstur ólafsson hjá Dagsbrún. Bjóst hann við að langt yrði í næsta samningafund. „Sá möguleiki að loka fyrirtækinu virðist vera nærtækastur. Eg á ekki annarra kosta völ en að meta hann,” sagði Jóhann OIi Guðmundsson, fram- kvæmdastjóriSecuritas. -KMU. Ef 3% hækkunin fer til allra: KOSTNAÐUR EYKST UM EINN MILUARD — segir f ramkvæmdastjóri VSI „Þaö kostar atvinnureksturinn yfir milljarð ef þessi hækkun flæðir yfir allan vinnumarkaöinn,” sagði Magnús Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Vinnuveitendasambandsins, við DV er leitaö var afstööu hans til 3% launahækkunar opinberra starfs- manna. „Það er ljóst að samningarnir frá í vor eru atvinnurekstrinum þungir í skauti. Þeir voru gerðir til að tryggja starfsfrið og kaupmáttinn fram að þessu. Samhliöa þeim samningum hafa orðið miklar breytingar, sem í heild sinni koma sér illa fyrir at- vinnugreinarnar. Þar aö auki eru menn aö ræða auknar skattaálögur. Með þessari hækkun til ríkisstarfs- manna er vakin upp krafa hjá öðrum aðilum á vinnumarkaðnum, hvort sem þaö eru bæjarfélög eöa atvinnu- reksturinn. Sams konar breytingar og þessi launahækkuri þýða aukinn kostnaðarauka fyrir atvinnulifið, 1,2 milljarða króna á ársgrundvelli. Það sér hver maður að það er enginn grundvöllur fyrir atvinnu- reksturinn að taka þennan kostnaöarauka á sig. Við hljótum að leita svars hjá ríkisstjóminni um hvernig hún hafi hugsað sér að bregðast við þessu,” sagði Magnús Gunnarsson. Fundur með Steingrími Hermannssyni og Þorsteini Pálssyni og forystumönnum VSI var ákveöinn nú rétt fyrir hádegi. Magnús Gunnarsson sagði að flæddi þessi hækkun yfir „þá þarf að hækka skatta eða opinbera þjónustu sem nemur 5—6 þúsund krónum á hverja meðalfjölskyldu.” -ÞG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.