Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1985, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1985, Side 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR15. OKTOBER1985. 11 Stefán senn ferðbúinn i gryfjuflugið. FUÚGANDIVOFFI í GRYFJUM AKUREYRAR — Stefán Bernharðsson náði sér í bjölluhræ, reif það í sundur og smíðaði traust leikfang Hafir þú ekki séð fljúgandi Volks- wagen 1200 ættir þú að drífa þig í að sjá Voffann hans Stefáns Bern- harðssonar, tvítugs bifvélavirkja- nema á Akureyri. Stefán náði sér í eitt bjölluhræ, reif það í sundur og smíðaði traust leikfang. Síðan hafa gryf jumar verið stundaðar. ,,Ég smíðaði bíiinn siöastiiðinn vetur, í janúar eða febrúar. Það var alltaf draumurinn að vera á svona verkfæri,” sagði Stefán þegar við rákumst á hann taka tvær vænar syrpur í gryfjunum fyrir ofan Akur- eyri nýlega. Stefán sagði að hann hefði verið búinn að sjá myndir af svona bilum í bílablöðum og á myndböndum og þannig hefði hugmyndin komið að smíði bílsins. „Reyndar erum við þrír skóla- féiagarnir á svona bílum. Hinir eru - líka á Volkswagen en með stærri vél, 1600 geröinni. Við hvöttum hver ann- an til að fara út í þetta.” Stefán sagði ennfremur aö smiöi þessara bíla væri tiltölulega lítiö verk. „Þetta var fljótlegt og ódýrt. Tók eitthvað um mánuð og maður vann eingöngu í þessu á kvöldin og umhelgar.” Gryfjubílarnir tilbúnir. Og þá var ekki að sökum að spyrja. „Við höfum allir verið iðnir við að stunda gryf jumar í sumar.” Til gamans má geta þess að Stefán hefur nýlega lokið viö að gera upp gamla Volkswagenbjöilu. „Hún verður notuð í snjónum í vetur.”-JGH Do, do, do, da, da, da. Hér er allt ó öflrum andanum. „Nokkufl giæfra- legt," sagfli Stefán um þessa þraut. DV-myndlr JGH. Stjórn Tannlæknafélags íslands, þeir Birgir J. Jóhannsson, Gunnar Helga- son, Sverrir Einarsson og Sigurgeir Steingrímsson. Á myndinni eru jafn- framt Börkur Thoroddsen, formaflur ársþings- og eftirmenntunarnefndar Tannlæknafólagsins, Sibilla Bjarnason, Ingegerd Mejáre, Louis W. Ripa og Ólafur Höskuldsson og fluttu þau fjögur síflarnendu erindi á ársþingi Tann- læknafélags Íslands. Hægt að draga veru- lega úr tannskemmdum — sem eru mun tíðari hér en erlendis A ársþingi Tannlæknafélags Islands, sem mun vera hið fjölmennasta sem haldið hefur verið til þessa, var sérstaklega fjallað um tannvernd, einkum tannvernd barna og notkun flú- ors í því sambandi, ný viðhorf í vörn- um gegn tannskemmdum o.fl. Fengnir voru sérfræðingar, erlendir og innlend- ir, til að flytja fyrirlestra. Á blaðamannafundi, sem haldinn var af þessu tilefni, kom fram að tann- skemmdir meðal barna á Islandi eru mjög tíðar. Samkvæmt tölfræðilegum rannsóknum er hvert íslenskt bam á aldrinum 11—12 ára með 10 sinnum fleiri skemmdir í snertiflötum milli tanna en sænsk böm. Island er meðal þeirra landa í heiminum þar sem tannlæknar eru flestir miðað við íbúatölu. Því ættu að vera forsendur fyrir mun betri tannheilsu en gerist viöast annars staðar. Svo er þó ekki og er þar fyrst og fremst um að kenna aö sykurneysla er hér óhóflega mikil. Islendingar neyta um 55 kílógramma af sykri á mann á ári og er þá ótalið innflutt sælgæti. Aöeins Kúbumenn neyta meiri sykurs en við. Með markvissu starfi og áróðri fyrir tannvernd er hægt að breyta þessum veruleika og hyggst tannlæknafélagið beita sér af auknum krafti í því efni og leita eftir nánari samstarfi við heilbrigöisyfirvöld. Á blaðamannafundinum kom einnig fram að hægt væri að minnka tann- skemmdir hér á landi um 60—70% með því að setja flúor í vatnið og væri það óskiljanlegt með öllu hvers vegna það atríði mætti slíkri andstöðu sem raun ber vitni hér því samkvæmt vísindalegum rannsóknum hefur flúor engin skaðleg áhrif á heilsuna. Það álit kom fram að yfirvöld hefðu engan veginn sýnt tannvernd nægilegan áhuga og væru háir tollar á t.d. tann- burstum, tannstönglum og öðru, sem þarf til tannhirðu, gott dæmi um það. K.B. Þú hringir — við birtum og auglýsingin verður færð á kortið. Nú er hægt að hringja inn smáauglýsingar og ganga frá öllu í sama simtali. Hámark kortaúttektar í síma er kr. 2.050,- Hafið tilbúið: Nafn — heimilisfang — síma — nafnnúmer — kortnúmér •« og gildistíma og að sjálfsögðu texta auglýsingarinnar.* Athugið! Áfram verður veittur staðgreiðsluafsláttur af auglýsingum, sem greiddar eru á staðnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.