Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Page 2
2
DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985.
íslensk frystihús borín saman við frystihús í Noregi, Danmörku og Englandi:
AFKÖST OG LAUN
MINNIÁ ÍSLANDI
Vinnuhraði í fiskvinnslu á ís-
landi er lítill. Of margt fólk er í
framleiðslunni. Mikið er gert að
bví að fiytja fiskinn frá einum stað
ynr á annan. Frystihúsin eru of
langt frá löndunarstað.
Þetta eru viðhorf stjórnenda
norskra fiskvinnslufyrirtækja til
íslenskrar fiskvinnslu. Þessi við-
horf komu fram í viðtölum sem
starfshópur á vegum kjararann-
sóknarnefndar átti við Norðmenn-
ina sem flestir höfðu skoðað frysti-
húsá íslandi.
Um þetta má lesa í nýútkominni
skýrslu starfshópsins um laun og
launakostnað í fiskiðnaði á Islandi
borin saman við fiskiðnað í Noregi,
Danmörku og Englandi.
Fram kemur í skýrslunni að laun
fiskvinnslufólks á íslandi eru mun
lægri en í hinum löndunum. Nefnd-
ar eru sem hugsanlegar skýringar
hringormavandamálið á íslandi,
meiri nýting á vinnutíma og meiri
afköst í snyrtingu og pökkun í
Danmörku og Noregi en á íslandi.
Starfshópurinn heimsótti frysti-
hús í Vesterálen og Tromsö í Nor-
egi, Norður-Jótlandi og Borgund-
arhólmi í Danmörku og Grimsby í
Englandi. I sendinefndinni voru
Ágúst H. Elíasson, VSÍ, Jón Kjart-
ansson, formaður Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja, og tveir starfs-
menn kjararannsóknarnefndar,
þeir Ari Skúlason og Hannes G.
Sigurðsson.
NIÐURSTÖÐURNAR
Helstu niðurstöður skýrslunnar
eru þessar:
Tímakaup í dagvinnu, það er
taxtakaup að viðbættum bónus, í
snyrtingu, vigtun og pökkun er
60% hærra í Noregi en á íslandi
en vegna meiri afkasta í Noregi eru
launagreiðslur á kíló af snyrtum
flökum 27% lægri í Noregi sé
miðað við fisk með meðalormi á
íslandi en 10% hærri miðað við
ormalausan fisk.
Tvö dæmi eru sýnd um launa-
kóstnað og afköst á íslandi eftir
því hvort um fisk með hringormi
eða ormalausan fisk er að ræða.
Þetta er gert til að sýna fram á að
ormurinn er ekki eina skýringin á
mismunandi afköstum á Islandi og
í Noregi og Danmörku.
I Danmörku er tímakaup, taxta-
kaup að viðbættum bónus, í snyrt-
ingu 69% hærra en á íslandi en
launagreiðslur á kíló af snyrtum
flökum eru hins vegar 43% lægri í
Danmörku sé miðað við fisk með
meðalormi á íslandi en 7% lægri
miðað við ormalausan fisk.
I flökun er tímakaup í dagvinnu,
það er taxtakaup að viðbættum
bónus, 105% hærra í Noregi, 96%
hærra í Danmörku og 31% hærra
í Englandi en í Englandi er ein-
göngu handflakað.
Tímakaup í dagvinnu í fiskiðnaði
í Noregi og Danmörku er lægra en
í öðrum iðnaði en á íslandi er
tímakaupið í fiskiðnaði hærra en
meðaltal annarra atvinnugreina.
I októbermánuði var samnings-
bundið lágmarkstímakaup í fisk-
iðnaði 87% hærra í Noregi og 127%
hærra í Danmörku en á íslandi en
í Englandi eru engir allsherjar-
samningar um lágmarkslaun.
Meiri nýting er á vinnutíma í
löndunum þremur en á íslandi. Sé
miðað við laun á nettódagvinnu-
tíma í stað launa á greidda vinnu-
stund þá minnkar launamismunur-
inn um 4-8% eftir því hvaða land
á í hlut.
í Noregi, en þar er víðast unnið
eftir fullvinnslukerfi, eru afköst í
snyrtingu, vigtun og pökkun meira
en tvöföld sé rhiðað við físk með
meðalormi en 45% meiri miðað við
ormalausan fisk.
I Danmörku eru afköst í snyrt-
ingu meiri en þreföld miðað við fisk
með meðalormi en meira en tvöföld
miðað við ormalausan fisk. Afköst
í pökkun eru tvöfalt meiri.
KMU.
Hólmfríður Karlsdóttk, ungfrú heimur, kominheim:
„FÉKKSTU AÐ
EIGA KÓRÓNUNA 7’
spurðu bömin þegar Hóimfríður kom á barnaheimilið á Vífilsstöðum
„Fékkstu að eiga kórónuna?"
spurði lítill maður á barnaheimili
Vífilsstaða þegar hann leit Hólm-
fríði Karlsdótttur, fóstruna sína,
aftur eftir nokkurra vikna fjarveru.
í fjarverunni frá barnaheimilinu
hlaut Hólmfríður titilinn ungfrú
heimur svo sem kunnugt er.
Hún lét það verða fyrsta verk sitt
eftir komuna til landsins síðdegis
í gær að heimsækja vini sína á
barnaheimilinu. Þar hlaut hún
hlýjar móttökur eftir nepjuna á
Keflavíkurflugvelli. Lágreist
barnaheimilið var allt skreytt út
úr dyrum og í gluggunum gat að
líta spjöld sem á stóð: Velkomin,
Hófí.
Bömin færðu vinkonu sinni blóm
og fögnuðu henni með húrrahróp-
um. Þegar þeim linnti hóf lúðra-
sveit að leika jólalög. Hólmfríður
þakkaði tónlistarfólkinu með kossi
og það þakkaði fyrir sig með Heims
um ból.
Á Keflavíkurflugvelli tóku for-
eldrar Hólmfríðar og nánustu vinir
á móti henni. Þar var fremst i
flokki Ásta litla, fjögurra ára
frænka fegurðardrottningarinnar,
sem búin var að bíða hennar lengi.
Nú var stundin loksins runnin upp
þegar stóra frænka steig út úr flug-
vélinni í öllum skrúða.
,.Það er æði að vera komin heim,“
sagði Hólmfríður umkringd af fjöl-
skyídu sinni. Hún var að sögn búin
að pakka niður fyrir þrem dögum,
taka allt upp aftur og pakka niður
áný.
í anddyri flugstöðvarinnar beið
fjöldi fólks og fagnaði komu þessar-
ar frægustu löndu sinnar nú um
stundir. Og annimar hjá Hólmfríði
vom ekki á énda þótt hún hefði
yfirgefið heimsborgina Lundúnir.
Fögnuðurinn á barnaheimilinu var mikill þegar Hófi var loksins komin heim. Fegurðardrottingin
söng með smáfólkinu „Bráðum koma blessuð jólin“ og fleiri jólalög. Öll vildu þau vera með Hólm-
fríði. „Hún er vinkona mín,“ útskýrði ein lágvaxin hnáta í hópnum. DV-mynd KAE.
Allri vildu nú fá eiginhandarárit-
anir og ljósmyndari vor fékk koss-
inn sem honum hafði verið lofað
áður en ævintýrið hófst.
Aðspurð sagðist Hólmfríður al-
veg vera hætt að stressa sig á öllu
þessu tilstandi. „Það venst með
tímanum," sagði hún. í gærkveldi
hélt hátíðin áfram með samkvæmi
í veitingahúsi- hér og næstu dagar
eru víst áskipaðir líka.
GK
, * #
Skiptaráð-
andi á
f lugi mslli
heimsálfa
Ragnar Hall, annar skiptaráðand-
inn í Hafskipsgjaldþrotinu, flaug
vestur til Bandaríkjanna í fyrradag
ásamt löggiltum endurskoðanda til
að kanna bókhald og eignir Hafskips
vestan hafs. Þegar þeir hafa lokið
starfi sínu þar fljúga þeir yfir til
meginlands Evrópu í sömu erinda-
gjörðum.
Markús Sigurbjörnsson, hinn
skiptaráðandinn, gerði í gær sam-
komulag við Eimskipafélagið um að
tilboð þess í þrotabú Hafskips gilti
til þriðjudags en tilboðið átti að
renna út í gær. Fresturinn er gefinn
gagngert í því skyni aö tími gefist
til að kanna önnur tilboð. - KMU.
Hnífstungu-
maðurinn í
gæsluvarðhald
Rannsóknarlögregla ríkisins fór
fram á það í gærkvöldi að maður sá,
sem stakk stúlku með hnífi í húsi við
Skarphéðinsgötu, yrði settur í
gæsluvarðhald. Stúlkan meiddist
ekki eins alvarlega og haldið var í
fyrstu. Hún var ekki undir áhrifum
áfengis þegar ráðist var á hana á
fimmtudagskvöldið. . gQg
Peningaskáps-
þjófurinnfundinn
Rannsóknarlögreglan hefur upp-
lýst hver stal peningaskápnum úr
KRON á dögunum. Ungur maður
hefur játað þjófnaðinn. f peninga-
skápnum, sem liggur nú á hafsbotni,
voru um 60-70 þúsund í peningum.
Maðurinn var búinn að koma þeim
fyrir kattamef. Hann skilaði aftur á
móti ýmsum reikningum og greiðslu-
kortakvittunum sem vom ískápnum
- sos