Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Qupperneq 5
DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. 5 „EkkimágSeyma raðsmíðaverk- efninu hans Hjörleifs,” segir KarlSteinar Guðnason: Krafla er hluti af öllu sukkinu „Það er því miður óhjákvæmilegt að viðurkenna staðreyndir. Við al- þýðuflokksmenn greiðum því at- kvæði með sölu Kröfluvirkjunar til Landsvirkjunar, þótt þjóðin verði að taka beint á sig yfir tvo milljarða króna sem tapað fé,“ segir Karl Steinar Guðnason alþingismaður. Þingið fjallar nú um sölu á Kröflu fyrir 1.170 milljónir, þótt skuldir virkjunarinnar séu 3.207 milljónir króna. „Við gagnrýndum þessa fram- kvæmd frá upphafi. Þetta voru auð- vitað óskapleg mistök, sem Kröflu- flokkarnir bera ábyrgð á. En það er einnig búið að afskrifa milljarð vegna byggðalína og hálfan milljarð vegna járnblendisins á Grundart- anga. Og við skulum ekki gleyma raðsmíðaverkefninu hans Hjörleifs, sem bindur að minnsta kosti 600 milljónir króna. Það eina sem nafnið á því verkefni þýðir er að því var dreift í kringum landið. Þarna eru fimm togarar til- búnir eða nær tilbúnir, en þeir fá engan kvóta og enginn kaupir þá. Raunar er víst að enginn getur keypt þá á því verði sem liggja mun fyrir, fái skipin einhvern tíma kvóta. Þá verða þau sokkin í fjármagnskostn- aði, sem er líklega hátt í 20 milljónir á mánuði á meðan skipin eru til einskis nýt. Þetta er ekki einleikið,“ segir Karl Steinar. HERB Neita að Olís sé til sölu Sögusagnir, sem gengið hafa und- anfarna mánuði um sameiningu 01- íuverslunar íslands hf. við annað olíufélag, komust á prent í gær. Dagblaðið NT kvaðst í baksíðufrétt hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því að meirihluti í OLÍS hefði verið boðinn Olíufélaginu hf„ Esso, til sölu um síðustu mánaðamót. Ennfremur sagði NT að sams konar tilboð hefði borist Skeljungi í sumar. DV ræddi í gær við ráðamenn hjá olíufélögunum þremur og spurði hvort meirihlutaeign í OLIS hefði verið boðin til sölu. „Ég mun ekkert segja um þetta mál. Ég hef ekkert um þetta að segja,“ sagði Vilhjálmur Jónsson, forstjóri Olíufélagsins. „Það þekki ég ekki. Ég veit ekki hvaða heimildir eru fyrir þessu,“ sagði Árni Ólafur Lárusson, fjár- málastjóri Skeljungs. „Hvað einstakir hluthafar í OLÍS, stórir eða smáir, eru að gera - það er ekki mitt mál,“ sagði Árni Ólafur. „Ég kannast ekki við þetta. Það getur vel verið að það séu einhverjir hluthafar sem vilja selja,“ sagði Jón Ingvarsson, áhrifamikill hluthafi í OLÍS. „Ég veit ekki um hvað blaðið er að tala,“ sagði Þórður Ásgeirsson, forstjóri OLÍS. „Samkvæmt samþykktum félagsins eiga hluthafar forkaupsrétt að hluta- bréfum. Þetta hefur aldrei verið rætt í stjórn félagsins þar sem sitja full- trúar með 80 prósent af hlutafénu. Það er ekki hægt að bjóða þetta án þess að bjóða hluthöfum að neyta forkaupsréttar síns. Þannig að þetta er bara rugl,“ sagði Þórður. Er DV spurði hvaða skýringu hann hefði á þessum orðrómi svaraði hann: „Ég kann enga skýringu á þessu. Mér sýnist bara að það sé í gangi einhver rógsherferð gegn okkur. Eg skil ekki hvað er þarna á bak við eða hverjir eru á bak við. Ég veit hins vegar hvað Ólafur Ragnar Grímsson sagði um félagið á Alþingi," sagði Þórður Ásgeirsson. KMU. Athugasemd Vilborg Guðjónsdóttir, sem var ein þeirra er svaraði „Spurningunni" í blaðinu í gær, telur þar ekki rétt eftir sér haft. Spurningin var hvort viðmælendur tækju tillit til verðkannana. Vilborg kveðst hafa svarað því til að það gerði hún. Verðkannanir ættu fylli- lega rétt á sér. Sér sýndist hins vegar að almennt tæki fólk ekki nógu mikið mark á þessum könnunum. Mlnmngar Huldu A. Stefánsdóttur — bemska Mulda Á. Stefánsdóttir er ein þeirra kvenna sem sett hafa svip á öldina og þjóðin öll þekkir og ann. Frásögn hennar stendur djúpum rótum í þjóðlífi og sögu. Mannlýsingar eru skýrar og hispurslausar, yljaðar kímni og næmum skilningi. MinningarMuldu munu, efað líkum lætur, skipa henni á bekk með nokkrum þeim löndum hennar sem samið hafa merkastar minningabækur á síðustu áratugum. | HÓPI mEBRUSIak* miimmingaboka JÓLALJÓS SÍGILDAR JÓLASÖGUR VÍSNA GÁTUR fyrír fulloröna eftir SIGURKARL STEFÁNSSON Arnungar eftir Knut 0degaard, forsfjóra riorræna hússins, í þýdingu tleimis Pálssonar Ari, ungur drengur af Arnungaættinni, fékk nisti í arf eftir föðursinn sem myrtur var af Eiríki konungi blóðöx og fjölkunn- ugri drottningu hans, Gunnhildi. Arnungar er fýrsta skáldsagan í flokki sem greinir frá örlögum drengsins með nistið. Joíaljos Helgiblær jólanna í sígildum jólasögum og listaverkum Snorra Sueins listmálara í bókinni eru sígildar sögur og ævintýri um jóiin — úrval þess helsta sem birst hefur af slíku efni á íslensku. Sumar sögurnar eru góðvinir úr æsku ömmu og afa og pabba og mömmu, aðrar eru fáum kunnar. Litmyndir Snorra Sveins Friðrikssonar flytja sérstakan heigiblæ og gera bókina einstæða. Vlsnagátur fyrir fullorðna eftir Sigurkarl Stefánsson fyrrum menntaskólakennara Þetta er skemmtileg bók sem þroskar mál og hugsun og svo er einnig til nokkurs að vinna því verðlaun eru í boði fyrir réttar ráðningar á tíu gátum af þeim 157 sem eru í bókinni. TÍU VERÐLAU NAGÁTUR BÓKAÚTGÁFAN ÖRN & ÖRLYGUR Síðumúla 11. sími 84866

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.