Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Page 12
12 DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. Kraftaverkafæða eða hin fullkomnafæða? Nœringafrœdingar, lífeólisfrœðingar, lceknar vísindaktofnanir, íþróttamenn og þjálf- arar í fremstu röö eru sammála um frábœran árangur af neyslu blómafrœfía. Niðurstada þeirra er engin tilviljun. Hún er byggó á áralangri jákvœðri reynslu og margendurteknum rannsóknum. High desert Pollens blómafrœflarnir eru mest seldu blómafrœflarnir í Bandaríkjun- um í dag. Þeir innihalda flest þau vítamín og steinefni sem mannslíkaminn þarfn- ast. Þannig hefur neysla blómafrœfla oft hjálpað líkamsstarfsemi fólks til að vinna bug áýmsum kvillum. Skv. hehmldum Times 30/4 '84, Washington Post 16/10 '84 og Sunday MayazJnc 26/5 '85 á Ronald Rcayan Jnsklegt og unglegt útlit sitt mikid að þakka neyslu High desert Pollens hlómajriejla. Þetta eru góó meðnveli með Higli desert Pollens htómafneflunum. Öldungurinn ,jingi“, Noel Johnson, sem kom til íslands sumarið 1982 og hljóp úr Breiðholti á Lækjartorg er enn í dag við hestaheilsu. Noel er núna 86 ára gamall og er enn að hlaupa maraþonhlaup í Bandaríkjunum. Geri aðrir hetur. Sigurður Ólafsson er sá Islendingur sem einna best hefur kynnst nuetti blóma- frœfla. Siguróur hefur selt blómafrœfla í 3 ár og hefur orðið vitni að ýmsu stór- kostlegu sem blómafrœflar hafa gert fyrir fólk. Fram cið áramótum býður Sigurð- ur sjálfsœvisögu Noels Johnson í kaupbœti með hverjunm skammti af blómafrœfl- um, ásamt því að koma með pakka til þeirra sem eiga erfitt um vik. Fáið allar upplýsingar um blómafrœfla hjá Sigurði Ólafssyni, Eikjuvogi 26, sími 34106. Nú fást High desert Pollens blómafræflamir í eftirfarandi tegundum: Noel Johnson blómafræflar Bee Thin megrunarfræflar 520 mg blómafræflar Við seljum High Desert blómafræfla: Sigurður Ólafsson, Eikjuvogi 26, Reykjavík. Þórunn Skúladóttir, Fáíkakletti 4, Borgamesi. Þórunnjónasdóttir, Laufskálum3, Heflu. NínaB. Knútsdóttir, Lyngheiði 14, Selfossi. Ingimundur Jónsson, Hafnargötu 72, Keflavík. HafsteinnÞorbergsson, Breldcugötu 13, Akureyri. Gunnar B. Loftsson, Skólastíg 1, Akureyri. Dagbjört Guðmundsdóttir, Norðurbraut 9, Höfn. Ragnheiður Ólafsdóttir, Varmahlíó. Sól og sæla, Hafnarstræti 7. Sól og sauna, Æsufelli 4. Nesapótek, Eiðsgranda. Mikligarður. VörumarkaðurinrL. SS Austurveri. Fjarðarkaup. Kaupfélag ísfirðinga. Kaupfélag Þingeyinga. Kaupfélag Skaftfeflinga. Söguleg loká morðmáli Frá Hauki Lárusi Haukssyni, fréttaritara DV í Kaupmanna- höfn: Kveðinn hefur verið upp dómur yfir tveim systrum, 28 og 21 árs, er myrt höfðu sameiginlegan eigin- mann sinn, 48 ára gamlan rokkara- foringja frá Odsherred á Sjálandi. Eftir tveggja tíma fund komst kvið- dómurinn, er skipaður var 8 konum og 4 körlum, að niðurstöðu. Var eldri systirin fundin sek um morð og hin yngri um morðtilraun. En það sem þótti tíðindum sæta var að systurnar sluppu alveg við hvers konar refs- ingu. Áratuga kvalir þóttu réttlæta morö Meðan á réttarhöldunum stóð varð öllum ljóst að systurnar höfðu búið við afar slæm kjör. Þar sem nær ómögulegt var að gera manninum til hæfis urðu þær daglega fyrir mis- þyrmingum, kúgun og niðurlægingu af hendi hans. Virtust engin takmörk vera fyrir djöfulskap mannsins. Gekk hann svo langt að hóta bömunum misþyrmingum og andlegum örkuml- um en hann átti eitt með hvorri systur. Eftir að hafa búið við þessi ósköp í nær 10 ár þótti systrunum nóg komið. Ef þær áttu ekki að enda í kirkjugarðinum var aðeins um eina leið að velja. I janúar sl. skutu sys- turnar manninn til bana. Dómurinn kom verjendum syst- ranna nokkuð á óvart og sögðu þeir svona dóm mjög sjaldgæfan. Hafði verið stuðst við ákvæði í dönsku refsilöggjöfinni þar sem sérstakar aðstæður geta losað fólk undan refs- ingu. Sögðust þeir ennfremur hafa lesið stafla af bókum um misþyrm- ingar á konum en átt erfitt með að finna mál er kæmist í hálfkvisti við þetta hvað varðar grófleika. Er þetta í fyrsta skipti sem fyrr- nefndum ákvæðum er beitt í morð- máli í Danmörku. 1961 slapp kona með skrekkinn eftir að hafa mis- þyrmt ástkonu eiginmanns síns með þeim afleiðingum að hún dó og 1935 var ákvæðum þessum beitt í máli vegna morðtilraunar. Hin nýja lögreglustöð Kaupmannahafnarbúa. Lögreglustöð á hjólum Frá Hauki Lárusi Haukssyni, muni reynslan skera úr um áfram- fréttaritara DV í Kaupmanna- haldandi starfsemi hinnar rúllandi höfn: lögreglustöðvar. Nýstárleg lögreglustöð hefur litið dagsins ljós í Kaupmannahöfn. Er það gamall strætisvagn sem endur- byggður hefur verið að innanverðu. Er um að ræða tilraunastarfsemi á vegum lögreglunnar og mun stöðin verða staðsett hér og þar um borgina, m.a. þar sem þykir nauðsyn á meiri löggæslu, og verða opin milli 13 og 19 alla virka daga. Tveir fastir menn verða starfandi við stöðina og er meiningin að aðrir tveir verði viku og viku í senn og sjái um löggæslu- störf á götunni. Tilraunastarfsemi Hugmyndin með þessari lögreglu- stöð var annars vegar að létta störf lögreglu í erfiðum borgarhverfum og hins vegar að veita borgarbúum almenna þjónustu. Þannig geta þeir sem eiga langt til næstu lögreglu- stöðvar sparað sér tíma og erfiði ef þeir eiga erindi við lögregluna. Varðandi fyrra atriðið hefur komið fram gagnrýni írá fólki sem finnst þörf á meiri löggæslu á kvöldin og um nætur en þó er stöðin í bílskúr og ekki sýnt.að hún muni geta gegnt því hlutverki sem skyldi. Lögreglan undirstrikar þó að hér sé um tilraunastarfsemi að ræða og Þessi nýjung kemur í beinu fram- haldi af sk. nærstöðvum lögreglunn- ar en það eru nokkrar smástöðvar í miðjum íbúðahverfum, t.d. í gömlu verslunarhúsnæði. Tilgangurinn með nærstöðvunum var að brúa bilið milli lögreglu og almennings. Var svo komið að mörg- um þótti lögreglan ekki vera annað né meira en lögreglubíllinn sem sást á sveimi af og til. Varð mönnum hugsað til þeirra tíma þegar lög- regluþjónar gengu um hverfin og höfðu tíma til að gefa sig á tal við íbúana. Mynduðust þannig mun nánari tengsl milli þessara aðila. Með tilkomu nærstöðvanna og hinnar rúllandi lögreglustöðvar vonast menn til að starfsaðstæður lögreglunnar batni til muna. Fyrstu dagana, sem hin nýja stöð starfaði, var mikið um að fólk kæmi til að forvitnast en öllum var velkom- ið að líta inn. Fengu lögregluþjón- arnir m.a. heimsókn hinna sk. græn- jakka sem eru hópur yngri manna sem þekktir eru fyrir kynþáttahatur sitt. Eiga þeir aðsetur í götunni þar sem stöðin verður fyrst um sinn og hafa kannski hægar um sig fyrir vikið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.