Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 15
1 DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. „Ég ætla að taka þátt í Eurovision- keppninni eins og allir aðrir íslend- ingar. Það má búast við að 240 þús- und lög berist dómnefndinni. Ætli hún fái ekki hlustarverk," sagði Valgeir Guðjónsson, ryðmagítarleik- ari Stuðmanna, í samtali við helgar- blaðDV. - Er lagið fullgert og frágengið? „Já. Það heitir Swing deLaude sem á íslensku myndi útleggjast „Sveifl- aði lúðunni". Það er kominn tími til að íslendingar láti að sér kveða á þessu sviði. ísland hefur ekki verið á kortinu fram til þessa og það er miður. Reyndar er ísland yfirleitt ekki í neinum handbókum sem eitt- hvert gagn er að.“ Það er langt síðan Valgeir Guð- jónsson byrjaði að fitla við^gítarinn í Háagerðinu í Reykjavík. Þá stund- aði hann nám í Breiðagerðisskóla undir handleiðslu Marinós Stefáns- sonar sem gefið hefur út forskriftar- bækur, auk þess að vera stjórnar- maður i Náttúrulækningafélagi ís- lands. Um svipað leyti og skólafélag- ar Valgeirs fóru að reykja og eltast við stelpur hóf hann að sækja gítart- íma og dvaldi langdvölum einn í herbergi sínu á annarri hæð. Lengi býr að fyrstu gerð og nú er komin út hljómplata með Valgeiri er hann nefnir Fugl dagsins. - Var Fugl dagsins ekki útvarps- efni á rás 1 hér áður fyrr - fugl sem galaði í hljóðnemann fyrir fréttir og svo áttu hlustendur að geta sér til um hvaða dýr væri á ferðinni? „Rétt. Fugl dagsins var frábært útvarpsefni, eiginlega besta útvarps- efni í heimi. Það mætti endurvekja.“ Allavega hefur Valgeir Guðjóns- son endurvakið þetta gamla heiti og á plötunni syngur hann eigin lög við texta Jóhannesar úr Kötlum er lengi kenndi við Austurbæjarskólann. Valgeir kynntist ljóðum Jóhannesar er hann dvaldi við nám i félagsráð- gjöf í Osló og þau urðu honum kær. Við gerð plötunnar fékk hann til liðs við sig Ðiddú söngkonu og Ævar Kj artansson aðstoðardagskrárstjóra Ríkisútvarpsins og þekktan þul. - Hvarflaði aldrei að þér að fá Pétur Pétursson og fjölskyldu til að taka lagið á Fugli dagsins? „Nei.“ -EIR. Gluten Blue Star er náttúrulegt, óbleikjaö hveiti. Heimabaksturinn fær þess vegna fallegan, gullinn blæ. Gluten Blue Star er danskt hveiti sem blandaö er amerísku mjöli. Hátt hlutfall sterkju (gluten) tryggir frábæra bökunareiginleika og fallegan bakstur. öunum. i versluninni þar sem þú kaupir Gluten Blue Star færðu einnig bækling meö uppskriftum aö girnilegum kökum og tertum. Gluten Blue Star. Danskt hveiti blandað amerískU'mjöli. Biðjið um hveitið með bláu stjörnunni. 15 Tölvuleikur Þrumuleikurinn RAMBO fyrir C0MM0D0RE 64, kr. 860,- Væntanlegurfyrir AMSTRAD og SPECTRUM 48 K. Sendum í póstkröfu. >4X Bókabúö Laugavegi 118 v/Hlemm, simi621122-29311 iraga 18 v/Hlemm, -29311. FOLKAFERÐ! Þegar fjölskyldan ferðast er mikilvægt að hver sé á sínum stað — með beltið spennt. RÁO Artemis Skeifunni 9,S. 83330

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.