Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Page 18
18 DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. Blómaval Rokkspildan Rokkspildan Rokkspildan Rokkspildan Tónleikum lýst og afíýst Á seinustu rokkspildu voru aug- lýstir tónleikar Bubba í Zafarí á fimmtudagskvöldið. Af þeim varð hins vegar ekki. I samtali við DV sagði umboðsmaður Bubba að hann hefði ekki talið tónleikana nægilega vel auglýsta. Til dæmis voru auglýsingaplaköt ekki tilbúin fyrr en á seinustu stundu og því hefði hann ákveðið að fresta tón- leikunum. Væntanlega eru margir von- sviknir yfir þessu en þeir hinir sömu geta tekið gleði sína á ný. Ákveðið hefur verið að Bubbi haldi tónleika á Borginni tuttugasta og þriðja desember, á Þorláksmessu, ásamt fleiri tónlistarmönnum. Og meðal þeirra tónlistarmanna er sjáifur Megas. Nánar verður sagt frá þessum jólaglaðningi á laugardaginn kem- ur. Öðrum tónleikum var líka aflýst. Leikfélagið stóð fyrir ástandsballi á Borginni og ekki sást tangur né tetur af hljómsveitinni Pass sem þar átti að leika. Hljómsveitar- mennirnir hafa kannski verið meðal gesta. Upp og niöur iista Svo voru aðrir tónleikar eða öllu heldur uppákomur sem fóru fram. I Ypsiloni kynnti Magiiús Þór Crossroadsplötuna sína og í Hollywood skemmtu fyrrverandi jafnt sem tilvonandi kandídatar lista rásar tvö. Beðið svars með Umsjón: Þorsteinn Viíhjálmsson — Kom hjálparlagið ofseint? Cosa nostra hefur tekið stórt stökk niður þann lista og Herbert þurfti að ganga af toppnum eftir tvær vikur þrátt fyrir aðrar fullyrðingar. Lagið mun hins vegar vera á upp- leið í Noregi. Rikshaw er enn í fimmta sæti með Brennandi mán- ann en besta lagið þeirra félaga um Viðkvæmu augun er því miður aðeins um miðja deild. Stúdents- húfan harfs Bjartmars er svo ein- Tónleikum Bubba í Zafarí var aflýst. í staðinn verður hann á Borginni á Þorláksmessu. Megas verður líka á Borginni á messu heilags Þorláks. QfvaWð ísssrí*. flááSL—^ i /9-11- 'srs&sss- gSs- jólasveinaí 14.1Ö. álaugardagw olofnayc Surhúsinu vib Sigtúm Símar 36770-68634 hvers staðar þar fyrir neðan, enda ekki mjög margir sem útskrifast um þessi jól. Lagið gæti tekið við „Too late?“ En það var íslenska Eþíópíulagið sem skaut öllum ref fýrir rass á fimmtudagskvöldið og skaust beint í efsta sætið. Kannski fólk hafi hringt það inn einungis vegna gæðanna - það er samt aldrei að vita. Tæplega sextíu tónlistarmenn eiga sexfalt fleiri ættingja en einn. Hvað sem því líður þá kom hjálp- arlagið, sá og sigraði, og Björgvin afsannaði að þetta hefði verið eitt- hvert einkamál fárra. Rægitungur voru þó ekki lengi að uppnefna tiltækið og kalla það víst einfald- lega Too late . . . Hvað sumir geta verið andstyggilegir. . þjy „Var mikið sungið á þínu heimili?” — nýjar plötur með Grafík og Skriðjöklum Nýja platan með Grafík er nú komin á markað. Stansaðu, öskraðu, dansaðu (eða var það öfugt) heitir gripurinn og fyrsta lagið á annarri hlið, Tangó, var sýnt í Skonrokki fyrir rúmri viku. Eftir velgengni plötunnar Get ég tekið sjens stóð til að kalla nýju plötuna Já, ég get það. Þeir Grafík-piltar hættu aftur á móti við það, enda lá það kannski líka í augum uppi, og samnefnt lag er það fyrsta á fyrstu hliðinni. Ofangreint nafn var sem sagt valið sem heiti á plötunni og á vel við. Platan flytur þann fagnaðarboðskap að fólk eigi að sleppa fram af sér beisl- inu annað veifið og láta „hvers- dagslega meðalhegðun" lönd og leið. Sannarlega orð í tíma töluð. En Skriðjöklar taka enn dýpra í árinni. Þeir boða fólki að taka aldrei í tauminn heldur setja upp hatt og sólgleraugu og taka lífinu létt, alltaf. Sjálfir taka þeir þennan boðskap sinn alvarlega og gáfu út plötu sama dag og Grafík, máli sínu til stuðnings. Sú er fjögurra laga og glær í gegn. Á b-hliðinni sést Ragn- ar söngvari geifla sig ógurlega en á a-hliðinni eru lögin um Aðalstein sem gestir ungmennafélagshátíð- arinnar í Atlavík ættu að gjör- þekkja. Ég er illa svikinn ef þetta lag verður ekki slagari allra tíma. Sjáiði bara til. Stórtónleikar Það stóð til að þessar tvær hljóm- sveitir leigðu sér flugvél og færu um þessar mundir í hljómleikaferð út á landsbyggðina. Nú er hins vegar ljóst að af því getur ekki orðið í bili að minnsta kosti. Helgi Bjöms er upptekinn í leikriti með Leikfélaginu og kemst ekki í burt. En tónleikar em samt á dagskrá. Á fostudaginn kemur, 20. desemb- er, halda þessar tvær hljómsveitir ásamt Rikshaw og Centaur tón- leika í höllinni. Ætti þar að vera glatt á hjalla. Þ-ð er heldur ekki á hverjum degi sem fólki gefst kostur á að sjá slíkar stórhljóm sveitir samankomnar. Flestir búnir í prófum og allir komnir í jólaskap. Þetta er tilvalið tækifæri til að létta lund í jólaamstrinu. Hreint einstakt tækifæri. -Þ JV Grafíkmenn sjást hér glaðir á útgáfudegi nýju plötunnar ásamt enn kátari kunningjum. DV-mynd Gunnar Bender ALLRAHANDA UMBOÐSÞJÓNUSTA „Þetta hefur gengið vel fram að þessu. Við erum einir í „bransan- um“ síðan Sóló hætti, að Pétri rakara undanskildum. Hann ku starfa ennþá sem umboðsmaður.“ Þeir Halldór Sighvatsson og Sævar Pálsson stofhuðu á dögun- um nýtt fyrirtæki, Umboðsþjón- ustuna. Eins og nafnið gefur til kynna sérhæfir fyrirtækið sig í að útvega tónlistarmenn og skemmti- krafta við hvers konar tækifæri. Og af nógu er að taka. „Við erum með á skrá hjá okkur núna að minnsta kosti tíu hljóm- sveitir, þar á meðal Stuðmenn, Grafík, Rikshaw og Fiction (Frið- rik Karls, Gunnlaugur Briem), lúðrasveit, Big band, nýstárlegt dansatriði og íslandsmeistara í fimleikum. Svo höfum við fengið nokkra skemmtikrafta til okkar enda mikil uppsveifla í þeirra grein síðan Laddi tilkynnti að hann hygðist draga sig í hlé.“ - En er eitthvað að gera fyrir umboðsmenn? „Já, það er alveg örugglega starfsgrundvöllur fyrir fyrirtæki af þessu tagi. Það hefur komið í ljós að þeir aðilar, sem við höfum umboð fyrir, eru dauðfegnir að láta okkur sjá um þessi mál.“ - Framtíðin er þá björt hjá ykk- ur? „Það á nú eftir að koma í ljós. Okkur hefur verið sagt að það taki um það bil tvö ár að koma svona fyrirtæki í fullan gang. Umboðs- mannastéttin hér á landi hefur nefnilega ekki sem best orð á sér. En því ætlum við að breyta. Markmið okkar er að skapa fyrir- tækinu traust með vönduðum vinnubrögðum. Það á eftir að tak- ast. Við erum ekki í nokkrum vafa um það,“ sögðu þeir Halldór og Sævar. Rétt er að taka fram að Umboðs- þjónustan er einungis opin á kvöld- in frá kl. 6-10. Framkvæmdastjór- amir em báðir í fullu starfi á daginn, Sævar er sölustjóri hjá JB Péturssyni og Halldór verslunar- stjóri í Fótóhúsinu. En á kvöldin em þeir sem sagt umboðsmenn og hafa aðsetur við Laugaveg 34b. 613193 - „Umboðsþjónustan, gott kvöld“. ÞJV.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.