Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Blaðsíða 20
20 DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. JOLATILBOÐ - HITAMASKI Jólatilboð okkar á hinum vinsæla hitamaska er: ÁÐURkr. 985,- NÚkr. 760,- PATHIODERMI djúphreinsandi og rakagefandi brjósta-, háls- og augnmeðferð. Andlitsböð, handsnyrting, húð- hreinsanir, litanir og öll almenn snyrting. PANTIÐ TIMAN LEGA FYRIR JOLIN Grímsbæ Nauðungaruppboð sem auglýst var i 19., 30. og 34. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Sléttahrauni 17, 1. h.f.m., Hafnarfirði, þingl. eign Arnar Orra Ingvarssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Hafnarfirði, innheimtu ríkissjóðs og Veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri mánudaginn 16. desember 1985 kl. 15.00. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Vesturbraut 2, Hafnarfirði, þingl. eign Snjó- laugar Benediktsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 17. desemb- er 1985 kl. 13.30. ________________________Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 19., 30. og 34. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Asbúð 86, Garðakaupstað, þingi. eign Eyþórs Bollasonar o. fl. fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Garðakaupstað og Veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri þriðjudaginn 17. desemþer 1985 kl. 14.15. ______________________Bæjarfógetinn i Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 66., 69. og 79. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Hrauntungu 2, Hafnarfirði, þingl. eign Gunnars Árnasonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Hafnarfirði á eigninni sjálfri þriðjudaginn 17. desember 1985 kl. 15.45. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð annað og siðasta á eigninni Leirutanga 4, Mosfellshreppi, þingl. eign Sigurðar Gíslasonar, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 17. desember 1985 kl. 17.00. ___________________Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 66., 69. og 79. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Skógarlundi 5, Garðakaupstað, þingl. eign Óskars Guðnasonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Garðakaupstað á eigninni sjálfri miðvikudaginn 18. desemþer 1985 kl. 13.30. ___________________Baejarfógetinn i Garðakaupstað. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 66., 69. og 79. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Hlíðarbyggð 29, Garðakaupstað, þingl. eign Friðriks Friðrikssonar fer fram eftir kröfu innheimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 18. desember 1985 kl. 13.45. ______________________Bæjarfógetinn I Garðakaupstað. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Brekkubyggð 33, Garðakaupstað, þingl. eign Signýjar Sigurðardóttur, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 18. desember 1985 kl. 15.00. ________________Bæjarfógetinn i Garðakaupstað. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Drangahrauni 3, Hafnarfirði, þingl. eign Trésmiðju Gunnars Helgasonar hf., fer fram á eigninni sjálfri miðvikudag- inn 18. desember 1985 kl. 15.30. ______________________Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Menning___________Menning___________Menning Teningi er kastað Nýtt menningartímarit sér dagsins Ijós Menningartímant eru alltaf að koma og fara, aðallega að fara. Menn gráta þau, er þau hverfa, sem er líklega óþarfi þar sem ritin hafa þá oftast þjónað þeim tilgangi sem þeim var ætlað að þjóna, nefnilega að endurspegla listir og bókmennt- ir á hverjum tíma. En tímarnir breytast og með þeim markmiðin, ritstjórnin þreytist og lesendahóp- urinn riðlast. Þá hefst vitjunartími annarra rita sem á einhvern dular- fullan hátt verða eins konar loftvog fyrir tíðarandann. En það veit enginn fyrr en eftir á, þegar ritin eru öll. Allt um það útheimtir útgáfa slíkra rita óhemju fórnfýsi og ósér- hlífni. Menn verða að vera reiðu- búnir að leggja allt í sölurnar fyrir menninguna. Ekki veit ég hvort jólin eru besti tíminn til að hefja sókn á menning- arsviði. Engu að síður er nýtt menningartímarit, Teningur, kom- ið á markað. Að því standa nokkrir eldhugar, Eggert Pétursson mynd- listarmaður, Guðmundur Andri Thorsson bókmenntafræðingur,- Gunnar Harðarson heimspekingur, Hallgrímur Helgason myndlistar- maður, Páll Valsson bókmennta- fræðingur og Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson myndlistarmaður. Aðdragandi og markmið Meðal efnis má nefna ávarp eftir Milan Kundera, langt viðtal við Helga Þorgils Friðjónsson mynd- listarmann og ámóta langt viðtal við Einar Kárason rithöfund, grein um menningartímarit milli stríða eftir Örn Ólafsson, þýdda grein um „Kvikmyndalistina á stund manér- ismans" eftir Alain Bergala, smá- sögu eftir Steinar Sigurjónsson og ljóð eftir Hallgrím Helgason, Gyrði Elíasson, Kristínu Bjarnadóttur, Ágúst Hjört, Þorgeir Kjartansson, Kristin G. Harðarson, Björn Birni, Robert Desnos, Sjón, Þór Eldon og Braga Ólafsson. Þama er sem sagt blanda af skáldskapar- og myndlistarefni, með einum útúrdúr í þágu kvik- myndanna. Að öðrum ólöstuðum var Gunnar Harðarson driffjöður útgáfunnar. Hann var spurður um aðdraganda hennar og markmið. „Teningur á að geta orðið vett- vangur fyrir vitsmunalega umræðu um listir í landinu,“ sagði Gunnar að bragði. „Auk þess munum við reyna að birta ýmiss konar skáld- skaparefni, bæði nýtt og gamalt. Við ætlum líka að reyna að hafa augun opin fyrir góðum erlendum bókmenntum og kynna þær. En ég Gunnar Harðarson með fyrsta tölublað Tenings. tek það fram að Teningur er ekki fræðirit." Spyrill hjó eftir því að margt af efninu i hinu nýja blaði er af frönskum uppruna eða endur- speglar ýmislegt í franskri menn- ingarumræðu. „Rétt er það,“ svaraði Gunnar. „Líklega ræðst efnisvalið af áhuga- málum okkar ritstjórnarmanna, en sjálfur var ég við nám í Frakklandi. Þar með erum við ekki búnir að leggja "franska línu". Ég á von á því að næstu tölublöð taki annan pól í hæðina." Franska linan? Og þegar nefnd var "frönsk lína'' flaug upp í huga spyrils líkingin Teningur/Birtingur og sú skemmti- lega staðreynd að tveir aðstand- enda Tenings, þeir Gunnar og Guðmundur Andri, eru synir tveggja valinkunnra Birtings- manna. Þessar hugrenningar voru bornar undir Gunnar sem brosti í kampinn. „Þarna eru e.t.v. einhverjar til- viljanir að verki,“ sagði hann.„ Föður mínum (Herði Ágústssyni), fannst ritið a.m.k. ekkert líkt Birt- ingi. Ætli Teningur sé ekki frekar arftaki Svarts á hvítu, enda tókum við nokkrir þátt í útgáfu þess rits á sínum tíma. Þó einskorðum við okkur við listir og bókmenntir en förum ekki út í félagsfræði og aðrar hliðargreinar." Gunnar sagði ennfremur að Ten- ingur ætti að koma út úrsfjórð- ungslega og þyrfti 3-500 áskrif- endur til að bera sig. Ekki væri hægt að greiða fyrir efni en það yrði reynt um leið og ritið kæmist í álnir. „Við munum gera allt sem við getum til að halda kostnaði niðri án þess að það komi niður á útliti ritsins og efni,“ sagði Gunnar að lokum. Sem sagt, teningnum er kastað. Tímaritið Teningur er hér með lagður í dóm íslenskra lesenda. AI Athugasemd: LANDLÆKNIR REYKIR EKKI Ólafur Ólafsson landlæknir. Vissulega er sannleikurinn dýr- mætur en óþarfi að fara sparlega með hann. Vegnp fréttar er birtist „Á BAKINU“ í helgarblaði DV 7.12. 1985 um aðvaranir landlæknis á síga- rettupökkum: Þar er því haldið fram að landlæknir reyki sem er ekki rétt. Ég vil vinsamlega benda blaðamann- inum á að vissulega er sannleikurinn dýrmætur en óþarfi að fara sparlega með hann. Ólafur Ólafsson landlæknir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.