Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Side 31
DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. 31 Eitt bros í kveðju- skyni í Eþíópíu fyrr á þcssu ári. DV-myndir EIR. kom frá Svíþjóð, Kanada og Islandi. An þessarar fæðu hefði fólkið ekki dregið fram lífið. Auk þessa var ís- lenskri fatasendingu dreift til þeirra sem minnst máttu sín og er vart hægt að lýsa ánægjunni sem slík gjöf . veitti þessu fólki, hvort sem um var að ræða notuð náttföt eða lopapeysu. Við reistum tjöld okkar í útjaðri bæjarins Worgesa og urðu þau heim- ili okkar næstu 6 mánuðina. Aðstæð- ur voru að öllu leyti bágbornar miðað við það sem við eigum að venjast. Ekkert rennandi vatn, raf- magn eða sími og næsta bensínstöð í 100 km fjarlægð. Þrátt fyrir að- stöðu- og tilbreytingarleysið átti þessi staður eftir að verða okkur mjög kær hvíldarstaður að loknum erfiðum vinnudegi. Oftast voru at- burðir dagsins ræddir og vöngum velt yfír óréttlæti, eða hvers átti þetta fólk að gjalda? Margar spurn- ingar vöknuðu og líklega fórum við að velta fyrir okkur lífsgátunni frá öðrum sjónarhóli en áður. Það sem hafði hvað djúpstæðust áhrif á okkur og hvað erfiðast var að skilja við að loknum starfstímanum voru 215 munaðarlaus börn sem tekin voru inn í búðirnar. Við starfsfólkið geng- um þeim hálfgert í foreldra stað og það líður ekki sá dagur að sú spurn- ing komi ekki upp í hugann; hvað verður um þessi börn? LITIÐ UM SAÐKORN í hópi 2 voru fjórir hjúkrunarfræð- ingar, 1 læknir og einn félagi úr Hjálparsveit skáta á Akureyri sem störfuðu í Rema. Rema er lítið fjalla- Skyldi þessi litla stúlka vera lif- andi í dag? -Við teljum okkur hafa gert gagn; þó ekki væri nema vegna þeirra mannslifa sem við björguðum. DV-myndir EIR. þorp í Shoa, u.þ.b. 200 km norður af Addis Ababa. Það er tiltölulega miðsvæðis í 16 þúsund manna „sýslu“ sem er erfið yfirferðar og vegakerfið mjög slæmt þar sem það er þá fyrir hendi. Þarna hefur verið alger uppskerubrestur í 2 ár. Ástand- ið var slæmt þegar við komum og fór versnandi og það var ekki von á uppskeru fyrr en í fyrsta lagi í des- ember, ef það þá rigndi á annað borð. Lítið var um sáðkom. Vegna lang- varandi næringarskorts var fólkið illa í stakk búið að mæta farsóttum, svo sem berklum, niðurgangspestum o.s.frv. og byggðist.starf okkar á því að veita læknisaðstoð þótt tæki væru fá. Við höfðum þó lyf við öllum al- gengustu sjúkdómum og búnað til sárameðferðar. Við höfðum aðalað- setur í moldarkofa í Rema, þangað sem fólkið leitaði til okkar en við fórum einnig út í þorpin á bíl ef fært var, annars gangandi eða á múlösn- um og veittum aðstoð undir stærsta trénu sem við fundum í viðkomandi þorpi. Snemma fór að bera á því að fólk leitaði til okkar um langan veg í von um fæðu og aðstoð. Við gerðum því könnun á næringarástandi barna í nærliggjandi byggðarlögum og upp úr því komum við á mjólkurdreifingu til vannærðra barna. Þetta var að vísu takmörkuð aðstoð þar sem þessi börn voru vanalega úr fjölskyldum þar sem allir sultu. Kannanir okkar og skýrslur leiddu síðan til þess að farið var út í almennari fæðudreif- ingu sem aðrar hjálparstofnanir sáu um og hófst skömmu áður en starfst- íma okkar lauk. I tengslum við mjólkurdreifinguna fræddum við mæður um gildi hrein- lætis, varnir gegn farsóttum og næringargildi þeirra fæðutegunda sem völ var á ásamt ýmsu sem til féll. Reyndar var hvert tækifæri notað til að fræða og leiðbeina, sér- staklega um hreinlæti en vatn var þarna af mjög skornum skammti og því erfitt um vik. Seinni hluta tímans fórum við út í beina fræðs'lu, aðallega til kvenna og tókum þá fyrir hrein- læti enn einu sinni, meðferð ung- barna, brjóstagjöf, sárameðferð og fyrstu hjálp, meðferð matar og getn- aðarvarnir, svo eitthvað sé nefnt. Þetta féll í mjög góðan jarðveg hjá konum og greinilegt að þær höfðu velt ýmsum af þessum vandamálum fyrir sér en ekki átt kost á neinum svörum vegna ólæsis og almennrar vankunnáttu. h „MYNDI HANN HAFA ÞAÐ AF?“ Eitt það skemmtilegasta sem við gerðum var að sinna fæðingarhjálp og tókum við á móti liðlega 70 börn- um. Við áttum marga ljúfa stundina í sjúkraskýlinu með kertisbút og vasaljós að taka á móti. Tilfinning- arnar voru þó stundum blendnar þegar maður stóð með sprækan barn- ungann í höndunum, fullburða og fínan, og leiddi hugann að fyrstu mánuðunum í lífi hans. Myndi hann hafa það af? Þegar horft er til baka og árangur- inn metinn af starfinu þá verður eftirfarandi ofarlega í huga: Þarna var um neyðarhjálp að ræða sem alltaf hefur skammtímamarkmið. Við teljum að þau hafi náðst, t.d. með þeim mannslífum sem við björ- guðum. Það er skoðun okkar að það fyrir- byggjandi starf sem við unnum ásamt með fræðslunni hafi verið það besta veganesti sem við gátum gefið fólk- inu inn í framtíðina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.