Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Side 33
DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. 33 • ■ |J ■■ i *,. i 31 1 ^ rff t • í. ’ ;• I I Austurstræti á velmektarárum íslandsbanka. lOO tiMs^^masiák iyL - ’ - iA.'t ‘ • •,.ií L■■;Vt'A 1 HUNDRAÐKHONUR nuykjavik IC)Wt fluttu frumvarp um gjaldþrotaskipti íslandsbankans og stofnun ríkis- banka sem heitið gæti Utvegsbanki íslands. Framsóknarmenn tóku und- ir hugmyndina um gjaldþrotaskipti en létu sér fátt um finnast um stofnun nýs banka. Sjálfstæðismenn fluttu frumvarp um endurreisn fslands- banka með aðstoð frá ríkinu. Tillaga þeirra var snarlega felld. Frumvarp alþýðuflokksmanna var aldrei rætt en framsóknarmenn nutu stöðu sinnar á þingi og frumvarp þeirra um gjaldþrotaskipti var rætt og sett í nefnd þar sem skrautlegustu deilurnar fóru fram. Stuðningsmenn stjórnarinnar mynduðu meirihluta nefndarinnar sem komst að þeirri niðurstöðu að uppgjör bankans væri eina leiðin til að endurreisaspjallað lánstraust landsmanna erlendis. Sjálfstæðismenninrnir í minnihlut- anum, sem Jón Þorláksson fór fyrir, töldu aftur á móti að endurreisn bankans væri eina leiðin til að tryggja lánstraustið erlendis. Þjóðin hefði þar að auki ekki ráð á að missa það fé sem íslandsbanki skuldaði úr landi á þessum erfiðleikatímum. Það gæti líka reynst Landsbankanum um megn að reiða féð af hendi. Hann var nú eini starfandi bankinn í landinu. Niðurstaðan var fengin þann 12. febrúar. Bankanum skyldi endanlega lokað og hann gerður upp. Jafnframt varð það að samkomulagi að fresta skiptunum til 1. mars. „Litla íhaldið" Framsókn var nú að springa á limminu og þurfti frest til að ná sáttum innan flokks um málið’ í ljós kom á síðustu stigum þess að 6 þing- menn Framsóknar undir forystu Ásgeirs Ásgeirssonar lögðust á sveif ------------------► Hundraðkall íslandsbanka. Þess- ir seðlar voru innleysanlegir i gulli lengi framan af starfstíma bankans. Svo fór þó að lokum að seðlarnir urðu ávísanir á erlendar skuldir. með sjálfstæðismönnnum og töldu hugmynd þeirra um endurreisn skynsamlegri en gjaldþrotaskipti. Héðinn Valdimarsson auknefndi þessa framsóknarmenn „litla íhald- ið“. Á endanum réð afstaða „litla íhaldsins“ úrslitum í málinu. Þegar óeining var komin upp í stjórnarliðinu og ríkisstjórn Fram- sóknarflokksins riðaði til falls varð að leita nýrrar lausnar. Stjórnarliðar völdu þá leið að draga umræður um málið af þingi meðan leitað væri lausnar á málefnum bankans og stjórninni bjargað frá falli. Samið var við lánardrottnana erlendis og nýtt frumvarp um lausn á málinu soðið saman. Málamiðlunin, sem á endanum náðist samkomulag um, var að að bæta ákvæði um stofnun Útvegsbanka íslands h/f framan við frumvarpið um gjaldþrotaskipti ís- landsbanka. Og með því að samið hafði verið um skuldirnar erlendis kom aldrei til gjaldþrotaskiptanna heldur var hlutafé bankans strikað út og hinn nýi banki tók við skuldun- um. Ríkisbanki Hlutafé Útvegsbankans var í upp- hafi 2,5 milljónir sem skiptist þannig að ríkið átti 1,5 milljón og ýmsir einstaklingar og fyrirtæki afgang- inn. Um þessa niðurstöðu urðu sjálf- stæðis- og framsóknarmenn á eitt sáttir en kratar snerust gegn henni. Þeir bentu á að hinn nýi banki væri bundinn í báða skó eftir að hafa tekið við þrotabúi Islandsbanka. Menn voru þá þegar ósáttir um málalokin þótt þau reyndust endan- leg. Eftir að Útvegsbankinn var tekinn við hlutverki íslandsbanka var ekki lengur tilefni til að deila um stofnun hans. Hins vegar hafa fræðimenn rifjað þessa sögu upp af og til á undanförnum árum. Þeir eru heldur ekki á eitt sáttir um lausnina sem stjórnmálamenn fundu á vanda íslandsbanka veturinn 1930. Þar eru nefnd „mistök" sem og „nauðsynleg- arráðstafanir". .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.