Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Qupperneq 35
DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985.
35
Metabók Guinness þrítug
Upphaf málsins var það að sir
Hugh Beaver fór í veiðiför til írlands.
Þar miðaði hann ó nokkra „golden
plovers" sem æddu hjá yfir höfði
hans. Og hitti ekki.
- Skyldu þessir fuglar vera hrað-
fleygustu fuglar Evrópu, spurði þessi
framkvæmdastjóri Guinness brugg-
veldisins skotfélaga sína.
Þeir fóru heim í veiðihús og könn-
uðu alfræðibækur vandlega en fundu
ekki svar við spurningu lávarðarins.
Sir Hugh sagði þá að þar eð allt tal
um met hryndi jafnan af stað fjörug-
um samræðum og stælum á börum
og pöbbum um víða veröld þá væri
tími kominn til að gefa út hina end-
anlegu metabók þar sem allar svona
upplýsingar væru skráðar. Mætti
hans vegna kalla bókina lista yfir
fónýt fræði.
Nú, þrjótíu árum seinna, hefur
Metabók Guinness sjálf slegið met
og nafn hennar er letrað á eigin
síður: Útgáfurétturinn að Metabók-
inni er skráður í fleiri löndum en
útgáfuréttur annarra bóka.
Morris McWhirter, ritstjóri Meta-
bókarinnar, sagði blaðamanni: „Við
höfum selt 53 milljónir eintaka á 26
tungumálum. Nú síðast einnig á
pólsku og arabísku.
Flest eintök, miðað við íbúatölu
lands, seldust í Noregi. Ætli það stafi
ekki af hinum löngu nóttum sem
þeir búa við.
22% metanna breytast frá einni
útgáfu til þeirrar næstu. Þessar
breytingar valda okkar miklu sölu
árlega."
4 milljónir á ári
McWhirter og tvíburabróðir hans,
Ross, opnuðu eigin skrifstofu í Lon-
don árið 1950. Sú skrifstofa safnaði
staðreyndum víðs vegar úr heimin-
um. Skrifstofa þeirra var í Fleet
Street í London þar sem flest dag-
blöðin eru hýst. Og þeir seldu fjöl-
miðlum upplýsingar.
Stærsti stóll á íslandi var settur
upp í tilefni heimilissýningarinn-
ar 1977 og þá talinn stærsti stóll
í heimi - að vísu ekki með réttu,
því að sænsk húsgagnaverk-
smiðja hefur notað stærri stól
sem húsgagnaauglýsingu síðan
1944. Ekki getur um þyngri stól -
sá íslenski vó 11 tonn.
„Ég hef sjálfur mest gaman af því
að skrá upplýsingar um fólk sem er
sérlega slakt í einhverju," sagði
McWhirter, sem sagður er „dæmi-
gerður Breti“. „Nefna má t.d. konuna
sem þurfti að berja golfkúluna 166
sinnum til að koma henni niður í
holu. Versti markmaður í heimi fékk
á sig 24 mörk í einum knattspyrnu-
leik. Og kona á Fijieyjum skrifaði
The Times og sagði að henni hefði
tekist að ljúka einni af þessum kross-
gátum sem þeir birta á hverjum degi.
En það hafði tekið hana 34 ár.“
McWhirter sagðist ekki geta þreyst
á starfi sínu. „Sá sem þreytist á svona
starfi er þreyttur á lífinu,“ sagði
hann. „Þetta er svo fjölbreytilegt og
hvetjandi á alla lund. Við fáum 40
þúsund bréf órlega."
Svindiarar
- En hafa menn reynt að svindla
sér inn á síður Metabókarinnar með
röngum upplýsingum?
„Já. Hópur manna í New York
myndaði eitt sinn félag um að svindla
sér inn á síðumar. En það tókst ekki.
En maður einn hér í Énglandi sendi
okkur einu sinni mynd af 13 þrípens-
um sem hann hafði raðað hverju upp
á annað á borði. Maðurinn viður-
kenndi seint og um síðir að hann
hefði límt peningana sarnan."
McWhirter bannar birtingu hættu-
legra leikja, svo sem eins og að
gleypa sverð, borða reiðhjól, en leyfir
píanóbrot og að ganga gegnum alla
New York með mjólkurflösku á höfð-
inu.
„Ég ritskoða og skammast mín
ekki fyrir það. Margt sem fólk tekur
sér fyrir hendur er í ábyrgðarleysi
gert. Við eyðum meiri tíma í að af-
þakka hluti en taka við. Við tókum
ekki við skráningu um fljótustu för
milli Oxford og Cambridge. Þeir
hefðu getað drepið saklausa veg-
farendur."
Hann sagðist heldur ekki vera
neinn aðdáandi meta sem átvögl
settu.
Kaliforniumenn og
Ástralir með
mest keppnisskap
Skógarvörður einn er í sérstöku
uppáhaldi hjá ritstjóra Metabókar-
innar. Sá lifði að verða sjö sinnum
fyrir eldingu - en féll loks fyrir eigin
hendi í þunglyndis- kasti.
„Yfirleitt hafa Frakkar meiri
áhuga en aðrir á metum sem viðkoma
gæðum eða gildi. Þeim finnst meira
koma til fegurstu konunnar en þeirr-
ar sterkustu eða feitustu," sagði rit-
stjórinn.
„Þjóðverjar hafa mikinn áhuga á
tölfræði. Það hafa Ameríkanar einn-
ig. En Ástralir og Kalifomíubúar
hafa mest keppnisskap af þeim sem
ég hef kynnst.“
McWhirter segist aðeins þekkja
tvær manneskjur sem hafi lesið
Metabókina spjaldanna á milli.
„David Frost sem er alltaf að leita
að fólki til að koma fram í methafa—
þætti sínum í sjónvarpinu. Og svo
var það einhver fró Texas sem las
bókina á 14 tímum með því að líta
aldrei upp úr bókinni. Hann var víst
orðinn slæptur þegar á öftustu síðu
kom.“
En hvernig er með þessa „golden
plovers“ - hve hratt fljúga þeir eigin-
lega?
Þeir hafa verið mældir á 130 km
hraða, samkvæmt upplýsingum
Metabókar Guinness. - Paul Maj-
endie/Reuter.
<