Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Side 43
DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985.
43
Peningamarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára ög yngri og 65 ára og eldri. Inn-
stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir
verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn-
stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningam-
ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með
9% nafnvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá
lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn-
stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn-
vextir eru 29% og ársávöxtun 29%.
Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir
27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði
án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu er 33,5% á fyrsta ári.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sér-
vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 36%
nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri
innstæðu eoa ávöxtun 3ja mánaða verð-
tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri
úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt-
ingu. Tvisvar á ári má taka út án þessa frá-
dráttar.
18 mánaða reikningur er með innstæðu
bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og
42,8% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða
verðtryggðs reiknings reynist hún betri.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru
annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30%
ársávöxtun éða verðtryggðir og með 3,5%
vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð.
Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging
auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka
má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án
þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir
30.06. og 31.12.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
36% nafnvöxtum og 34% ársávöxtun eða
ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings
reynist hún hetri. Af hverri úttekt dragast
1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur
hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg,
fyrst 22%, eftir 2 mánuði 23,5%, 3 mánuði
25%, 4 mánuði 26,5%, 5 mánuði 28%, eftir 6
mánuði 29,5% og eftir 12 mánuði 34%. Árs-
ávöxtun á óhreyfðu innleggi er 36,9%, eða
eins og á 3ja og 6 mánaða verðtryggðum
reikningum reynist hún betri. Vextir færast
tvisvar á ári.
Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort
hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í
bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán-
aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt-
um sé hún betri. Samanburður er gerður
mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, þann mánuð.
öndvegisreikningur er bundinn til 18
mánaðar, verðtryggður og með 7% nafnvöxt-
um á binditímanum. Eftir það reiknast sömu
vextir og á 3ja mánaða reikning í bankanum.
Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er
óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er
óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu
sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár-
reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun
annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum
6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum.
Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari-
sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna
innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur
verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax
hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila
ársfjórðung.
Sparisjóðir: Trompreikningur er verð-
tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga
með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn
3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun
með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með
34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn-
stæðu í hverjum ásQórðungi. Reynist tromp-
vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bíett
á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn-
an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan
eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari-
sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega.
Spariskírteini
Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í
Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð-
um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum.
Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og
100 þúsund krónur.
Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára en
innleysanleg eftir þrjú ár, 10.09.88. Nafnvextir
7%. Vextir, vaxtavextir og verðbætur greiðast
með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamið-
_um, skírteini til mest 15 ára, innleysanleg
eftir 5 ár, 10.09.90. Vextir eru 6,71% á höfuð-
stól og verðbætur, reiknaðir misserislega og
greiddir út gegn framvísun vaxtamiða. Verð-
bætur greiðast með höfuðstól við innlausn.
Með hreyfanlegum vöxtum og 50% vaxta-
auka, til 18 mánaða eða 10.03.87. Vextir eru
meðaltal vaxta á 6 mánaða verðtryggðum
reikningum bankanna og með 50% álagi.
Vextir, vaxtavextir, vaxtaauki og verðbætur
greiðast með höfuðstól við innlausn. Gengis-
tryggð skírteini eru til 5 ára, 10.09.90. Þau
eru bundin safngjaldeyrinum SDR og bera 9%
vexti. Vextir og vaxtavextir greiðast við inn-
lausn með höfuðstól, í samræmi við stöðu
SDR.
Almenn verðbréf
Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá
verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með
veði undir 60% af brunabótamati fasteign-
anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð-
tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau
eru seld með afföllum og ársávöxtun er al-
mennt 12-18% umfram verðtryggingu.
Húsnæðislán
Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis-
ins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til
einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna
fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri
1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik-
um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs.
Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán. nema
á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn
er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings,
annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl-
skylda fær mest 442 þúsund til fyrslu kaupa,
annars mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl-
skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til
fyrstu kaupa, annars niest 207-259 þúsund.
Lánstími er 21 ár.
Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns-
kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum.
Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól,
aðeins vextir og verðbætur.
Útlán lifeyrissjóða
Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp-
hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns-
rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða
aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin
stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir
sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð-
♦*yggð og með ö-S'X, vöxtum. Lánstími er 15-35
ár.
Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur.
Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli
sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir
í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir
og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til
vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri
en nafnvextirnir.
Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á
22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok
tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig
22%.
Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22%
nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6
mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur.
Á hana .koma svo 11% vextir eftir næstu 6
mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím-
ans 1232 krónur.og ársávöxtunin 23,2%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45%
á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því
1,125%.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í desember 1985 er 1337
stig en var 1301 stig í nóvember. Miðað er
við grunninn 100 í júní 1979.
Byggingarvísitala á 4. ársfjórðungi 1985
er 229 stig á grunninum 100 frá janúar 1983
en 3392 stig á grunni 100 frá 1975.
VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 11 .-20.12.1985
INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM SJA sérlista ilif éi Ííiiif lili I.E 11 íi
INNLAN 0VERÐTRYGGÐ
SPARISJÓDSBÆKUR Úbundin innstæða 22.0 22.0 22.0 22,0 22.0 22.0 22.0 22,0 22.0 22.0
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 25.0 26.6 25.0 25.0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25.0
6 mén.uppsögn 31.0 33.4 30.0 28.0 28.0 30.0 29.0 31.0 28.0
12 mán.uppsöqn 32.0 34.6 32.0 31.0 32.0
SPARNAÐUR- LANSREI IURSparað3-5mán. 25.0 23.0 23.0 23.0 23.0 25.0 25.0
29.0 26,0 23.0
INNLÁNSSKÍRTEINI Til 6 mánaða 28.0 30.0 28.0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanarcikningar 17.0 17.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0
Hlaupareikningar 10.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0
INNLÁN VERÐTRYGGÐ
SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 2,0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0
6 mán.uppsögn 3.5 3,5 3.5 3.0 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0
INNLÁN GENGISTRYGGÐ
GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 7.5 7.5 8.0
Stcrlingspund 11.5 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 11.0 11.5 11.5
Vestur-þýsk mörk 5.0 4.5 4.25 4.0 4,5 4.5 4.5 5.0 4.5
Danskarkrónur 10,0 9.5 8.0 8.0 9.0 Ú.O 9.0 10.0 9.0
ÚTLÁN ÖVERÐTRYGGÐ
ALMENNIR ViXLAR (forvextir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0
VIÐSKIPTAViXLAR (forvextir) 34.0 2) kge 34.0 kge 32.5 kge kge kge 34.0
ALMENN SKULDABRÉF 32.03) 32,0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 35.0 2) kge 35.0 kge 33.5 kge kge kge 35.0
HLAUPAREIKNINGAR yfirdrAttur 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5
ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ
SKULDABRÉF Að 21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0
Lengri en21/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
ÚTLÁN TIL FRAMLEIÐSLU
sjAneðanmAlsi)
1) Lán til innanlandsframleiðslu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 9,5%,
í Bandaríkjadoflurum 9,5%, í sterlingspundum 12,75%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%.
2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfrun er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í
Hafharfirði, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavikur og Sparisj. vélstj.
3) Vaxtaálag á skuldabréf tif uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og
óverðtryggð lán, nema í Alþýðubankanum og Verslunarbankanum.
Islensk tunga
Það eru engin lög til sem kveða á um einstök atriði íslenskrar tungu.
Boðiðtil
varðveislu
Menntamálaráðherra íslands,
sem nú um stundir heitir Sverrir
Hermannsson, bauð nýlega til
varðveislu nokkurrar. Nánar til-
tekið sunnudaginn 1. desember í
Þjóðleikhúsinu. Fór veisla þessi vel
fram og var boðið upp á íslenska
tungu og kaffi og kökur með súkk-
ulaðihjúp.
Tilefni þessa var varðveisla og
efling íslenskrar tungu. Sumum
finnst fulllengi hafa verið sitið með
hendur í skauti (stundum orðað:
Flotið sofandi að feigðarósi). Og
menntamálaráðherra finnst ekki
til setunnar boðið.
Á ráðstefnu þessari var fluttur
fjöldi af ávörpum og það kom
þægilega á óvart að meðal máls-
hefjenda var fátt af þeim sem vana-
lega eru taldir sjálfsagðir á ráð-
stefnum sem fjalla um íslenskt
mál. Skólar, stofnanir, félög og
vinnandi fólk áttu þarna sína full-
trúa.
Á hinn bóginn er ekki því að
neita að málflutningur var býsna
líkur. Flestir höfðu þá sögu að
segja að kunnáttu Islendinga í
móðurmálinu færi hrakandi.
Þetta er að mínu mati hin mesta
della og vitleysa. Ég fullyrði þvert
á móti að þekking þjóðarinnar á
íslenskunni, sögu hennar, eðli og
eiginleikum, er mun meiri en
nokkru sinni hefur verið í sögu
þessararþjóðar.
Við verðum að hafa það hugfast
að það er til þess að gera nýskeð
að þjóðin lærði að lesa og skrifa.
Til eru rannsóknarskýrslur Harre-
bos og Jóns Þorkelssonar frá miðri
18du öld. Þeir félagar fóru um allt
land og prófuðu unglinga i lestri
og skrift. Samkvæmt þeim athug-
unum var um það bil einn þriðji
hluti þjóðarinnar læs og skrif-
andi.
Og það er einmitt á þessum tíma
sem stungið er upp á því í alvöru
af nafnkunnum íslendingum að
leggja niður móðurmálið og taka
upp dönsku.
Mér finnst kominn timi til þess
að um íslenska tungu sé rætt á
fordómalausan hátt. Það dugir
ekki að vera sífellt að berja sér og
hafa yfir þessa gamalkunnu
lummu, að heimurinn fari versn-
andi. Við getum örugglega bent á
ur fjölbreytni tungunnar og fram-
tíð.
Að setja máifræði og stafsetn-
ingu í lög
Undanfarin ár hefur nemendum
í islensku í háskólanum fjölgað
mjög. Nú er svo komið að atvinnu-
möguleikar þessa fólks eru heldur
litlir. Allavega virðist ekki vanta
íslenskukennara í framhalsskóla.
Kunningi minn einn, sem ber
framtíð þjóðarinnar, og þá ekki síst
íslenskufræðinga, mjög fyrir
brjósti, setti fram þá hugmynd að
leysa þessi atvinnuvandamál með
stofnun mállögreglu.
Hlutverk mállögreglu yrði að
hlusta vandlega eftir málfari
manna og sekta þá sem út af
brygðu. Til að mynda mætti þá
sekta. eða jafnvel fangelsa, þá sem
segðu „mér langar“. Linmæltum
reykvískum ungmennum mætti
þannig halda í tugthúsi upp á vatn
og brauð og kennslu í framburði.
Ég geri mér grein fyrir að það er
ábyrgðarhluti að skrifa um þessa
hugmynd þar eð einhverjum kynni
að detta í hug að taka hana alvar-
lega.
En misskilningur af þessu tæi
hefur nefnilega skotið upp kollin-
um. í Sandkorni DV var nýlega
fjallað um setuna. Tilefnið var að
Landhelgisgæslan fékk sér nýja
þyrlu og utan á henni stendur
Landhelgisgæzlan, þ.e. með setu.
í inngangi greinarinnar segir
orðrétt: „Eins og flestir vita hefur
Z verið afnumin með lögum úr ís-
lensku ritmáli.“ Þetta er alls ekki
rétt.
í fyrsta lagi hefur setan alls ekki
verið afnumin úr íslensku ritmáli.
Má benda á DV og Moggann en í
báðum blöðunum er seta talsvert
notuð.
í öðru lagi eru engin lög til sem
kveða á um einstök atriði íslenskr-
ar tungu. Þegar stafsetningu hefur
verið breytt, eins og kallað er, þá
hefur það verið gert með auglýs-
ingu eða reglugerð frá mennta-
málaráðuneytinu. Ekki með lög-
um. Hin opinbera stafsetning á
íslandi gildir þar af leiðandi aðeins
fyrir ríkið og stofnanir þess, þ.á
m. skóla. Og vitaskuld landhelgis-
jgæsluna.
fjölmörg dæmi um slæma meðferð
á íslensku máli nú á dögum alveg
eins og unnt er að benda á slík
dæmi úr íslensku genginna kyn-
slóða.
Á ráðstefnunni var samþykkt
ályktun. Hún gekk meðal annars
út á það að íslensku þyrfti að efla
og varðveita (um það efast líklega
fáir) með betri kennslu. Ennfremur
að allt sjónvarpsefni skuli vera á
íslensku.
Eiríkur Brynjólfsson
Málræktardagurinn 1. des-
ember
Sú uppástunga kom fram á ráð-
stefnunni að 1. desember verði
framvegis helgaður málrækt, verði
einhvers konar málræktardagur
þjóðarinnar.
Þetta finnst mér hin ágætasta
tillaga. Að vísu vil ég gera hér á
dálitla bragarbót. Ég vil ekki kalla
þennan dag málræktardag því það
orð innifelur ákveðna merkingu.
Nefnilega þá að dagurinn sé ekki
fyrir alla. Ég vil að þessi dagur
verði dagur íslenskrar tungu al-
mennt, bæði þeirrar sem unglingar
í Breiðholti tala sem og annars.
Ég vil að þessi dagur verði helgað-