Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Page 45

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Page 45
DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. 45 Frá Jerúsalem -grátmúrinn, helgasti staður gyðinga og skammt handan hans helgasta moska múslíma. un, allur sjóndeildarhringurinn verður eins og fljótandi og hvítur. Þótt niaður fari beina braut og viti hvert maður stefnir þá verður maður samt að stansa og bíða þess að þessu ástandi létti. Við biðum stundum í tvo eða þrjá daga.“ Aftur til íslands Dagur dvaldi fyrst eitt ár á Suður- skautslandinu, þ.e. 1976 - 77. En 1980 fór hann þangað aftur og dvaldi þar þá í 16 mánuði. „Að því tímabili loknu fór ég heim til íslands. Ég starfaði hér á ýmsum strandstöðvum Pósts og síma, ég held ég hafi verið á öllum strandstöðvun- um hér nema á Siglufirði. í ársbyrjun 1982 fór ég svo til Bandaríkjanna og lærði á þyrlu, varð mér úti um kenn- araréttindi á þyrlu. Skólinn var í Oklahoma. Ég var þar í fjóra mánuði, dvaldi reyndar lengur í Bandaríkj- unum, en kom heim seinni hluta ársins 82. En hér heima var ekkert fyrir þyrluflugmann áð gera svo ég réðist aftur til P&S, þeir tóku alltaf við mér aftur þar. Ég fór á strand- stöðvarnar. I maí 83 fór ég aftur til Bandaríkj- anna. Ég starfaði við kennslu í Penn- sylvaníu, var þar í fimm eða sex mánuði, kom heim í árslok og réðist enn til P&S. Þar var ég þó ekki lengi fremur venju því í lok júlí 84 réðist ég sem loftskeytamaður til SÞ. Ég fór til Jerúsalem og hefverið þar síðan.“ Kona frá Kiev Dagur kvaðst kunna sérlega við sig í starfi sínu. Og einnig var hann ánægður með að búa í Jerúsalem. Og er hreint ekki á leiðinni til ís- lands og P&S aftur. „Þegar ég vann við Vestmannaeyjaradíó síðast vann ég einn mánuðinn upp á hvern ein- asta dag, 12 tíma á dag. Þau laun sem ég fékk fyrir alla þá vinnu, brúttó, voru ekki helmingur af nettó launum mínum hjá SÞ. Ög þar er vinnuvikan bara 32 tímar. Ég reikna ekki öll fríðindi okkar. Við verslum flestallt skattfrjálst. Nei, ég sný ekki heim í bráð. Ég er að vonast til að þeir sendi mig næst til Kenýa; eða Kýpur. Það er friðsæl, falleg eyja. Ég var þar um tíma í fyrra. Við giftum okkur þar.“ Dagur hitti konu sína í Elad, sumarleyfisstað í ísrael. „Hún heitir Stella. Og er frá Kiev í Úkraínu. Þar ólst hún upp til tvítugs, að hún og móðir hennar fluttu úr landi til ísra- els. Stella fór svo til Bandaríkjanna - og við reiknmn frekar með að búa þar í framtíðinni. Ég hef hug á að kaupa hús einhvers staðar á Vestur- ströndinni." Dagur og Stella hafa verið í leyfi hér á Islandi undanfarna daga. En eru nú farin aftur til ísrael. „Ég hef ekkert á móti íslandi. Sn launin hér eru ekki bjóðandi. Og: vo er allt svo dýrt. I fyrra var 1004% verðbólga í ísrael. Nú er hún koi íin niður í 250%- Samt er allt dýrara hér." Og ævintýramaðurinn er farinn með konu og kornabarn til friðar- gæslustarfa suður í „púðurtunnu" heimsins. - GG. ARIÐ 1984 Stórvíðburðír í mYndum og málí mcð íslenskum sérkafla Hefur nú komíð út í tuttugu ár Þetta frábæra bókmenntaverk er samsett af 480 fréttagrein- um og eru þær áréttaðar með jafnmörgum atburðamyndum og er helmingur þeirra prentað- ur í litum í heilsíðustærðum á köflum. Annáíl ársins skiptist í 12 aðalkafla. Auk þess fjailar verkið um einstök sérsvið, svo sem alþjóðamál - efnahags- máf - vísindl og tækní læknisfræði — myndllst kvíkmyndlr - tísku. ARIO 1984 Þessi bókaflokkur er orðinn ómissandi öllum þeim er Iáta sig samtíðina einhveiju skipta og vilja eiga möguleika á því að geta flett upp í óyggjandi heimildum um atburði hér á landi og um heim allan. Eldri árgangar eru á þrotum. Frábært bókmenntaverk fyrír alla fjölskylduna. ÖII bökakaup hjá Þjóðsögu geta verlð vaxtalaus lán í allt 6 mánuðíHHBwBW®^ ii ^ókaútgáfanjióööaga Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavik. Simar 13510 - 617059. Pósthólf 147.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.