Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Qupperneq 48
48 DV. LAUGARDAGUR14. DESEMBER1985. Tilkynningar Kökubasar í Bústaðakirkju til fjáröflunar Explo 85 Explo 85 er sem kunnugt er kristi- leg ráðstefna sem haldin verður í Menntaskólanum við Hamrahlíð dagana 27.-3Í. des. Ráðstefnan verð- ur haldin á sama tíma í meira en 100 borgum um allan heim. Tvær klukkustundir, dag hvern, verða all- ar ráðstefnurnar tengdar saman með hjálp gervihnatta. Allur kostnaður af sjónvarpsdagskránni hefur þegar verið gefinn til íslendinga. Ýmis annar kostnaður fylgir slíku ráð- stefnuhaldi, s.s. leiga á húsnæði skólans, ráðstefnugögn o.fl. og þess vegna hefur verið ákveðið að halda kökubasar. Hann verður haldinn sunnudaginn 15. des. kl. 15.00 að lokinni messu í Bústaðakirkju. Tekið verður á móti kökum og tertum kl. 10-12 sama dag. Jólasveinar á Sprengisandi í dag, laugardag, kl. 14 koma 4 jóla- sveinar í heimsókn á veitingastaðinn Sprengisand. t>eir munu koma svíf- andi í fallhlífum og skemmta svo gest i!m staðarins um stund. Fræðslufundur Fuglaverndar- félags íslands Næsti fræðslufundur Fuglaverndar- félags íslands verður í Norræna húsinu mánudaginn 16. desember kl. 20.30 Efni: Saga Drangeyjar, sérstak- lega heimildir um fuglaveiðar og s eggjatöku í Drangey á liðnum öldum. ^Sölvi Sveinsson cand. mag. flytur. Litskyggnur frá Drangey og Skrúð sýndar og skýrðar af Hjálmari R. Bárðarsyni, fv. siglingamálastjóra. Öllum heimill aðgangur. Norræn barnabókarverðlaun á vegum félags norrænna skóla- safnvarða Verðlaunum þessum var úthlutað í fyrsta skipti í Kiljava í Finnlandi sl. sumar. Fjórtán norrænir höfundar voru tilnefndir til verðlaunanna. Frá íslandi voru tvær bækur útnefndar: Sitji guðs englar, eftir Guðrúnu Helgadóttur, og Húsdýrin okkar, eftir Stefán Aðalsteinsson og Kristj- án Inga Einarsson. Sænska skáld- konan Maria Gripe hlaut verðlaunin fyrir síðustu bækur sínar. í álitsgerð félags norrænna skólasafnvarða varðandi verðlaunaveitinguna segir m.a. að í sögum sínum hafi skáld- konunni Mariu Gripe tekist á næ- man og skilningsríkan hátt að lýsa mannlegum samskiptum. í þeim skapi hún heim sem byggður er á mörkum draums og veruleika, veríild þar sem draumsýnin er notuð til að varpa ljósi á lífið sjálft. Listaverkakort frá Háskólasjóðl Háskóla íslands Háskólasjóður Háskóla Islands hef- ur gefíð út tvö listaverkakort eftir verkum í eigu listasafns Háskóla íslands. Verkin eru: Sveitabær eftir Gunnlaug Blöndal - 1943, olíulitir, 76 x 80. Bátar og segl eftir Jóhannes Jóhannesson 1951, olíulitir, 105 x 145. Alls hefur því Háskólasjóður gefið út 6 listaverkakort á undan- förnum þrem árum: Stóðhestar eftir Þorvald Skúlason, Við höfnina eftir Þorvald Skúlason, Við Vindaugað eftir Hring Jóhannesson, í róðri eftir Gunnlaug Scheving, Sveitabær eftir Gunnlaug Blöndal og Bátar og segl eftir Jóhannes Jóhannesson. Öll þessi kort eru til sölu í aðalskrifstofu Háskólans og Norræna húsinu, auk þess sem þau eru seld beint til stofn- ana og fyrirtækja. Kortin eru gefín út í takmörkuðu upplagi. Kvenfélagið Seltjörn heldur jólafund þriðjudaginn 17. desember kl. 20.30 í Félagsheimilinu. Munið jólapakkana. Ókeypis veit- ingar. Átthagafélag Strandamanna lieldur kökubasar á Hallveigarstöð- um í dag, laugardag 14. desember, kl. 14. Plötuklúbbur AB Plötuklúbbur Almenna bókafélags- ins hefur nú sent frá sér plötualbúm nr. 3 og 4 í sögu rokksins. 1 þessari sendingu eru alls fjórar plötur, en eftirtaldir listamenn eiga þar hver fyrir sig eina plötusíðu: Chuck Berry Gene Vincent Everly Brothers Sam Cooke Jerry Lee Lewis Carol Perkins Eddie Cochran The Platt- ers. I þessari sendingu eru þeir stóru, þeir sem gáfu rokkinu sitt dæmi- gerða innihald texta jafnt sem tónlist. Plötuklúbbur AB - SAGA ROKKSINS hefur nú ráðið Ásgeir Tómasson sem ritstjóra Kréttabréfs- ins og frá og með janúarplötum 1986 mun Ásgeir taka við. Asgeir er löngu landskunnur fyrir störf sín sem þáttagerðarmaður hjá útvarpinu og fyrir skrif um popp fyrr og síðar. Við væntum mikils af samstarllnu við Ásgeir og bjóðum hann velkominn til starfa við plötuklúbb Almenna bókafélagsins. Tapað-Fundið Seðlaveski tapaðist Fimmtudaginn 12. desember sl. tap- aðist svart leðurseðlaveski með skil- ríkjum og ávísanahefti, líklegast á videoleigunni í Hátúni eða á bíla- þvottaplaninu í Borgartúni. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 38741 eða 36562 eftir kl. 16. Laugardaginn 12. október sl. voru gefín saman í Dómkirkjunni af séra Þóri Stephensen, ungfrú Guðlaug Þorleifsdóttir og hr. Martin Sobol. Heimili þeirra er í Washington, USA. t0 Bridge Bridgedeild Breiðfirðinga Aðalsveitakeppni félagsins lauk með sigri sveitar Ingibjargar Halld- órsdóttur. Auk hennar spiluðu í sveitinni Jón Stefánsson, Magnús Oddsson, Þorvaldur Matthiasson, Guðjón Kristjánsson og Sigvaidi Þorsteinsson. Röð efstu sveita varð annars þessi: 1. sv. Ingibjargar Halldórsdóttur 371 2. sv. Hans Nielsen 351 3. sv. ólafs Valgeirssonar 343 4. sv. Alison Dorosh 334 5. sv. Jóhanns Jóhannssonar 333 6. sv. Arnar Scheving 325 7. sv. Daníels Jónssonar 315 8. sv. Óskars Karlssonar 313 Næsta fimmtudag, 19. desember, verður spilaður eins kvölds tvímenn- ingur. Fimmtudaginn 2. janúar hefst ba- rómeterkeppni félagsins. Tekið er á móti þátttökutilkynningum i síma 77860 (Jóhann) og í síma 78593 (Helgi). Spilað er í húsi Hreyfils við Grens- ásveg. Fyrirtæki Stofnað hefur verið félagið ís- klass hf. í Hafnarfirði. Tilgangur félagsins er rekstur innflutnings- og útflutningsverslunar og skyld þjón- usta og rekstur fasteigna. I stjórn félagsins eru: Guðmundur Haralds- son, formaður, Breiðvangi 2, Hafnar- firði, Rannveig Jónsdóttir, s.st., og Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, Sævangi 23, Hafnarfirði. Stofnendur, auk ofangreindra, eru Jón Kr. Gunn- arsson, Sævangi 23, Hafnarfirði, og Jón Diðrik Jónsson, s.st. Stofnað hefur verið Félagið Gunnbjörg hf. á Hólmavík. Til- gangur félagsins er sjávarútvegur og skyld starfsemi. í stjórn félagsins eru: Jón Ólafsson, formaður, Brunn- götu 7, Benedikt Pétursson, Bröttu- götu 2, og Ingvar Pétursson, Kópnes- braut 7. Stofnendur, auk ofan- greindra, eru Birgir Pétursson, Kóp- nesbraut 7, og Daði Guðjónsson, Vitabraut 3, allir á Hólmavík. Stofnað hefur verið félagið Út- gerðarfélagið Haförn hf. í Reykja- vík. Tilgangur félagsins er að annast útgerð fiskiskipa, svo og aðra skylda starfsemi, ennfremur rekstur fast- eigna og lánastarfsemi. I stjórn fé- lagsins eru: Ævar Guðmundsson, formaður, Skólabraut 21, Seltjarnar- nesi, Oddur Jósef Halldórsson, Blönduhlíð 33, Reykjavík, og Laufey Barðadóttir, Skólabraut 21, Seltjarn- arnesi. Stofnendur, auk ofan- greindra, eru Pálína Ragnarsdóttir, Blönduhlið 33, Reykjavík, og Jón Ólafsson, Laugarnesvegi 43, Reykja- vík. Stofnuð hefur verið Blikksmiðjan Vík hf. í Kópavogi. Tilgangur fé- lagsins er rekstur blikksmiðju, al- menn blikksmíði, ásamt framleiðslu úr blikki og plasti, eftirlit og þjón- usta á loftræstiskerfum, innflutning- ur og sala á efni, vélum og tækium til blikksmíða, kaup, leiga, sala og rekstur ■ fasteigna, umboðssala og lánastarfsemi. I stjórn félagsins eru: Pálmi Helgason, formaður, Hjalla- braut 41, Hafnarfirði, Einar Egils- son, Þverbrekku 4, Kópavogi, og Guðmundur Ingimundarson, Klyfja- seli 11, Reykjavík. Stofnendur, auk ofangreindra, eru Guðmundur Ingi- mundarson, Jörfabakka 18, Reykja- vík, Jóhann Helgason, Brekkubyggð 71, Garðabæ, og Jón Jóhannsson, Akraseli 8, Reykjavík. Stofnað hefur verið Félagið Mist hf. í Reykjavík. Tilgangur félagsins er innflutnings- og heildverslun, út- flutningsverslun, útgáfustarfsemi og annar skyldur atvinnurekstur. í stjórn félagsins eru: Auður Guð- mundsdóttir, formaður, Smáraflöt 49, Garðabæ, Herdís Benediktsdóttir, Víðimel 58, Reykjavík, og Sigrún Sigurjónsdóttir, Sólheimum 40, Reykjavík. Stofnendur, auk ofan- greindra, eru Guðjón Lárusson, Smáraflöt 49, Garðabæ, JóHannes Sturla Guðjónsson, s.st., Guðmundur Guðjónsson, Víðimel 58, Reykjavík, og Stefán Örn Guðjónsson, Sólheim- um 40, Reykjavík. Stofnað hefur verið Féíagið Glefs- ir hf. í Reykjavík. Tilgangur félags- ins er almennir flutningar, hverju nafni sem nefnast, og rekstur bifreiða í því sambandi, svo og lánastarfsemi. f stjórn félagsins eru: Ingimar Kjart- ansson, formaður, Kirkjuteigi 9, Reykjavík, Kjartan Ingimarsson, s.st., og Þóra Kjartansdóttir, Boga- hlíð 16, Reykjavík. Stofnendur, auk ofangreindra, eru Björg Vigfúsína Kjartansdóttir, Kirkjuteigi 9, Reykjavík, og Kristinn Árni Kjart- ansson, Spóahólum 20, Reykjavík. Stofnað hefur verið félagið Efna- land hf. í Kópavogi. Tilgangur fé- lagsins er iðnaðarstarfsemi og versl- un með iðnaðarvörur, innflutningur, lánastarfsemi, rekstur fasteigna og annar skyldur atvinnurekstur. í stjórn félagsins eru: Magnús Ey- mundsson, formaður, Bárugötu 5, Reykjavík, Þóra Magnea Magnús- dóttir, s.st., og Katrín Eymundsdótt- ir, Ketilsbraut 20, Húsavík. Stofn- endur, auk ofangreindra, eru Rafn Bjarnar, Torfufelli 22, Reykjavik, og Ólafur Garðar Þórðarson, Hlégarði 7, Kópavogi. Á'ferð og flugi með jólasveininum: F.TÓRTÍT HT.TITT Hvað vildi Holberg? í dag skreppum við með jóla- sveininum í heimsókn til Ludvigs Holberg. Hann situr að sjálf- sögðu við skriftir þegar gestina þer að garði. - Ég biðst afsökunar á að ég skuli trufla meistarann við ritstörfin, segir Sveinki, en mér er lífsins ómögulegt að lesa óskaseðilinn hans. Skriftin á seðlinum er nefnilega það argasta hrafna- spark sem ég hef nokkurn tíma séð. Ludvig móðgast auðvitað við þetta klaufalega ávarp og neitar að tala við jólasveininn. Það kemur því í hlut þinn, lesandi góður, að hjálpa jólasveininum við að finna út hvaða gjöf Hol- berg kallinn vill fá um jólin. Við minnum á hina glæsilegu Heimilisvigt Brauðrist Nafn:------- Heimilisfang: I Sími: • L_______________ vinninga. Þar ber hæst hljóm- tækjasamstæðu, System 300, að verðmæti 37.500 krónur. Þar er allt í einum pakka: plötuspilari, magnari, útvarp og tvöfalt segul- band í smekklegum skáp. Vinn- ingur nr.tvö er fullkomið ferða- tæki, einnig með tvöföldu segul- bandi, að verðmæti kr.15.400. Loks eru tíu vinningar vasadiskó með útvarpi, PH-17. Þeir sem eru með rétt svör í öllum tíu hlutum jólagetraunarinnar eiga þess kost að eignast ein- hvern þessara öndvegisgripa. Safnið því seðlunum saman og sendið þá til DV, Þverholti 11, merkta „Jólagetraun". Skila- frestur er til 8. janúar. En meðal annarra orða: Hvað vildi Holbergfáí jólagjöf? Ný skriffæri I ------------I I _ i ___________ I - —— — J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.