Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1985, Qupperneq 52
FRÉTTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu' efia vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku, Fullrar nafnleyndar er gætt. Vifi tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1985. Niðurstaða norska ráðgjafarfyrirtækisinslKO: Næstum algert sambands-■ leysi innan lögreglunnar „Eftir þvi sem viö höfum komist næst með viðtolum er varla um nokkurt samstarf að ræða með Rannsóknarlögreglu ríkisins og lögreglustjóraembættunum. Við höfum ekki heldur oröið varir við neitt samstarf milli lögreglustjóra- embættanna." Þetta segir meðal annars í svokallaðri greiningu norsku ráðgjafanna IKO á lög- reglumálum höfuðborgarsvæðisins og RLR. Þar segir ennfremur: „Það lítið sem við höfum orðið varir við af samstarfí er með lægra settu fólki sem hefur átt að því frumkvæði." Sagan er ekki þar með öll: „Ekki er heldur neitt samstarf sem vert er að nefna innan lögreglunnar i Reykjavík, milli umferðarlögreglu — sjá einnig bls.4 og almennrar lögreglu. Umferðar- fólkið lætur sig aðeins varða um- ferðina og almenna lögreglan lætur sig varða það sem þá er eftir og um afbrotamál sér Rannsóknarlög- regla ríkisins. Með því verður allt of lítið eftir handa almennu lög- reglunni og það snýst allt of mikið um drykkjumenn.“ Sem vænta má vilja Norðmenn- irnir gera hér á bragarbót. En þeir finna einnig að illa nýttum, dauð- um tímum og of stífum vöktum á tímum þegar minnst er um að vera. Þá vilja þeir breyta fjármálastjórn ogdreifaábyrgðáhenni. . HERB Ríkissaksóknari: NBTAR .ALBERTUM RANNSÓKN Ríkissaksóknari, Þórður Björns- son, hefur hafnað beiðni Alberts Guðmundssonar um að láta fara fram opinbera rannsókn á tengslum Al- berts við Hafskipsmálið. Saksóknari telur að ekki séu þau skilyrði fyrir hendi sem réttlætl gætu slíka rannsókn. Bendir hann á að það geti aldrei verið tilganguropinberrar rannsóknar að „hreinsa eða hvítþvo menn af ásökun eða orðrómi um refsiverða háttsemi". Telursaksókn- ari að þáttur Alberts í málinu verði ekki aðgreindur frá þætti samstjórn- ‘armanna Aiberts í félaginu eða bankanum. Frekari rannsóknir af hálfu saksóknara verði að bíða nið- urstaðna skiptaréttar og væntan- legrar rannsóknarnefndar. Albert Guðmundsson sagðist í gærkvöldi ekkert hafa um málið að segjaaðsvostöddu. . SMJ. LOKI „Æði að vera komin heim,“ sagði Hólmfríður Karlsdóttir, ungfrú heimur, þegar hún kom til landsins frá Lundúnum síðdegis i gær. Fyrsta verk hennar var að koma á barnaheimilið á Vífilsstöðum þar sem fögnuðurinn náði hámarki meðal barnanna sem voru búin að biða hennar svo lengi. GK/DV-mynd KAE LfKLEGT AÐ ARNARFLUG STEFNIFLUGLEIÐUM Allt stefiiir nú í að Amarflug og Flugleiðir heyi grimman málarekst- ur fyrir dómstólum. Líklegt er að Amarflug muni á næstunni höfða mál gegn Flugleiðum vegna kröfu um endurgreiðslu tryggingagjalda að fjárhæð um 20 milljónir króna. Amarflugsmenn telja að á tímabil- inu frá 1. febrúar 1979 til 30. nóvemb- er 1982, þegar Flugleiðir áttu meiri- hluta í Amarflugi, hafi Flugleiðir snuðað Arnarflug um 485 þúsund Bandaríkjadali, eða um 20 milljónir króna, vegna flugvélatrygginga sem Flugleiðir keyptu fyrir flugvélar Amarflugs. Flugleiðir létu Arnarflug greiða 952 þúsund Bandaríkjadali fyrir tryggingarnar. Flugleiðir greiddu tryggingafélaginu hins vegar aðeins 467 þúsund Bandaríkjadali, sam- kvæmt gögnum sem Amarflugsmenn fengu síðar í hendumar. Þennan mismun vilja Amarflugsmenn fá endurgreiddan. Fulltrúar félaganna hafa haldið marga fundi um þetta deilumál án þess að samkomulag hafi náðst. Báðir aðilar hafa verið harðir á sínu. Sjá Amarflugsmenn ekki annað ráð en að stefna Flugleiðum. - KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.