Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Blaðsíða 4
4 DV. MÁNUDAGUR16. DESEMBER1985. VÖRUSKORTUR VEGNA OKURLÁNAMÁLSINS Margir verslunareigendur hafa ekki haft peninga til að leysa út vörur úr tolli „Ástandið er nú vægast sagt uggvænlegt. Fólk hefur haldið að sér höndum og er ekki byrjað að versla til jólanna. Það þýðir að verslunareigendur hafa ekki pen- inga á milli handanna til að leysa vörur sínar út úr tolli. Okurlána- máiið hefur haft sitt að segja í þessu sambandi. Nær ógjörningur er að fá lánaða peninga hjá ein- staklingum til að leysa út vörur. Það er greinilegt að menn eru ekki tilbúnir að lána peninga á meðan okurlánamálið er enn í rannsókn hjá RLR,“ sagði einn verslunareig- andi i samtali við DV í gær. Vöruskortur er nú hjá verslunum og þá sérstaklega fata- og tísku- verslunum. Mikið af nýju jólavör- unum, er ekki komið í margar búðir. Það sýnir best ástandið að miklu minna er um auglýsingar í blöðum heldur en undanfarin ár. Þær auglýsingar sem ber mest á eru auglýsingar frá bókaútgefend- um. Verslunareigendur eru í við- bragðsstöðu. Ljóst er að hreyfingin á vörum hefst ekki fyrr en á mið- vikudaginn kemur þegar nýtt greiðslukortatímabil hefst. Þá fer fólk að versla og verða verslunar- eigendur og heildsölur þá að hafa snar handtök. Það verður örugg- lega mikið af vörum leyst úr tolli á fimmtudag og föstudag. - sos Seðla- bank- inn lekur — unnið að viðgerð Þegar slagveðrið gekk yfir landið á dögunum kom í ljós að nýbygging Seðlabankans lekur. Nú er unnið að því að komast fyrir lekann. Lekinn kom með súlum og skágluggum. Tveir menn frá v-þýska fyrirtækinu Glos, sem sáu um uppsetningu í Seðlabankahúsinu, eru komnir til landsins til að kanna gallann og sjá um að það sem úr lagi fór verði lag- fært. Hér á myndinni má sjá vinnu- palla sem hafa verið settir upp við Seðlabankahúsið. - sos DV-mynd GVA Stjórnarf rumvarp um íslenskar áhaf nir á erlendum leiguskipum: Gætibjargað Hafskipsáhöfnunum Hugsanlegt er að flestir skipsmenn, sem störfuðu hjá Hafskip, fái atvinnu aftur innan skamms. Á Alþingi ligg- ur nú fyrir stjórnarfrumvarp sem gerir ráð fyrir því að allar áhafnir erlendra leiguskipa verði íslenskar. Frumvarpið fjallar um skráningu skipa. Þar er ákvæði um að erlend leiguskip skuli vera skráð hér á landi og uppfylli ákvæði um íslensk lög og reglur um eftirlit. Einnig er ákvæði um að áhafnir þessara skipa skuli vera íslenskar. Samkvæmt heimildum DV hefur verið rætt um það í þingflokki Sjálfstæðisflokksins að afgreiðslu þessa frumvarps verði flýtt - m.a. til þess að tryggja áhöfn- um skipa Hafskips áframhaldandi atvinnu. Þessa stundina er Eimskip með á leigu nokkur skip sem hafa erlendar skipshafnir. Stjórn Starfsmannafélags Hafskips hefur skorað á þingmenn að skipa rannsóknamefnd til að kanna hvort sala eigna Hafskips til Eimskips sé hagkvæmasta leiðin fyrir Útvegs- bankann og ríkissjóð. Þá fer starfs- mannafélagið fram á að ekki verði gengið frá samningum um sölu á eigum Hafskips fyrr en þessi nefnd hefur skilað niðurstöðum. - APH Tíðindalítil helgi hjá lögreglunni Nálægð jólanna virðist vera farin að setja svip sinn á skemmtanalíf manna. Víðast á landinu var þetta ákaflega róleg helgi og lítið að gera hjá lögreglunni. Þó var töluverð ölvun víðast hvar en að öðru leyti ákaflega friðsamt yfir mönnum. Ekki ber mikið á ölvunarakstri þrátt fyrir að jólaglögg sé nú vinsæll siður á vinnustöðum. . SMJ I dag mælir Dagfari í dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari Kennarar splundra BSRB Þá eru kennarar loksins búnir að gera það löglega upp við sig að þeir skuli ganga úr BSRB. Forsvarsmenn kennara segja þetta styrk fyrir kennarasam- tökin en Kristján Thorlacius er ekki á sama máli, enda ekki nema von þar sem BSRB hefur nú skroppið ansi mikið saman eftir að samtök á fjórða þúsund manns hafa ákveðið að gefa bandalaginu langt nef. En kenn- arar hafa ekki verkfallsrétt eftir að þeir standa á eigin fótum. Eflaust stendur þó ekki á því að þeir fái þennan eftirsótta rétt því kennarar eru að undirbúa haiða sókn í launamálum gegn linkulegu rikisvaldi þar sem er.ginn virðist hafa bein í nef- imt. K,n kennarar hafa nú þegar komið ár sinni vel fyrir borð á mörgum sviðum. Til dæmis eiga þeir fleiri frídaga en aðrar stétt- ir þessa mánuði sem þeir hafa eirthverja vinnuskyldu. Gang ofan í gang eru börn látin vera heima heilan eða hálfan dag svo kennarar geti haldið fundi eins og það er kallað. Mætti ætla að kennarar í sama skóla forðuð- ust að ræða starfið nema á skipulögðum fundum þegar börnin væru víðs fjarri. Sverrir menntamála mun sjálfsagt lýsa yfir stuðningi við kjarabaráttu kennara því það er Þorsteinn sem verður að borga. Sverrir hefur raunar haft hægt um sig síðan hann tók við menntamálunrtn. Hins vegar sýndi hann mik ! klókindi þegar hann efndi til ráðstefnunnar um íslenska tungu. Þar mættu hundruð manna og kvenna til að lofsyngja tunguna og brýna hvert annað í að standa vörð um hana. Gleymd var óánægja kennara, gleymt var að ekki hefur enn tekist að framkvæma öll ákvæði grunnskólalaganna og gleymdir voru gífurlegir erflðleikar sumra sérskólanna. Menntamálaráðherra var hyllt- ur fyrir ráðstefnuframtak sitt af sama trúarhita og lúterskir íslendingar hylla páfa gefist þeim kostur á að lúta hans heil- agleika í audiens í Róm. Sumir urðu meira að segja svo uppnumdir að þeir héldu að einhver stefnubreyting hefði orðið í menntamálunum og nú ætti að fara að taka til hendi svo um munaði. Þannig buðu nem- endur Hótel- og veitingaskóla Islands ráðherra til kvöldverðar svo þeir mættu kynna honum hina bágu aðstöðu sem skólinn býr við. En þeir vildu líka sýna að þeir kynnu eitthvað fyrir sér í faginu, útbjuggu því sexrétta veislu sem Sverrir mætti í, að vísu klukkutíma of seint. Var nú tekið til við átið og sást að ráðherra líkaði vel það sem á borð var borið. Sátu menn lengi að snæðingi og ræddu landsins gagn og nauðsynjar. Að lokum var þó staðið upp frá borðum og ráðherra leiddur um húsa- kynni skólans. Bent var á að þrengslin væru gífurleg og því þyrftu nemendur að geyma yfir- hafnir sínar á klósettinu. Fleira var tínt til ef það mætti vekja áhuga ráðherra á að ýta á eftir fyrirhugaðri nýbyggingu sem á að rísa í Kópavoginum. En brátt kom í ljós að nemendur höfðu ekki haldið rétt á spilunum. Þegar ráðherrann sá allan þennan glæsilega veislumat á borðum og fann hvað bragðið var unaðslegt þótti honum ótrú- legt að vinnuaðstaða í skólan- um væri jafnslæm og menn vildu vera láta. Mettur og glað- ur skoðaði hann regnfrakka nemenda á klósettum án þess að sjá að nokkuð væri athuga- vert við málið. Og nú naga til- vonandi kokkar og þjónar sig í handarbökin yfir þeirri heimsku sinni að hafa ekki látið ráðherra fá viðbrenndan og óætan mat í boðinu og lýsa því jafnframt yfir að ekki væri hægt að gera betur nema í öðru og stærra húsnæði. Þá hefði hann spýtt út úr sér kolsvartri stei- kinni, frussað út kekkjóttri sósunni, staðið upp og hrópað af myndugleik: Hingað og ekki lengra. Nú byggjum við nýjan skóla. En ekkert af þessu skeði og kunnugir segja að allar fram- kvæmdir í skólamálum verði að biða þar til þjóðarbókhlaðan klárist. Þar eigi nefnilega að varðveita tunguna. Dagfari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.