Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Page 24
24 Nýjar bækur Nýjar bækur DV. MÁNUDAGUR16. DESEMBER1985. Nýjar bækur Nýjar bækur ÞÓRUNN ELFA MAGNUSDOTTIR: Á LEIKVELLI LÍFSINS Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur gefið út bókina Á leikvelli lífsins eftir Þórunni Elfu Magnúsdóttur, en þar birtast fimmtán sögur hennar er samdar hafa verið á löngu áraskeiði og getur þetta talist eins konar sýnis- bók af smásögum hinnar kunnu skáldkonu. Á bókarkápu segir svo um Þórunni Elfu og þessa nýju bók hennar: „Sögupersónur hennar bera svip af óbreyttu hversdags- fólki, og spenna frásagnar- innar ræðst mun fremur af örlögum en viðburðum. Skáldkonan er nærfærin og skilningsrík. Hún finnur sárt til með þeim er standa höllum fæti eða þola andstreymi. Þó einkennast sögurnar ekki af boðskap heldur skýrum og sönnum þjóðlífsmyndum. Á leikvelli lífsins hefur að geyma fimmtán sögur. Þær staðfesta enn á ný sérstöðu þessarar hreinskilnu skáld- konu sem gerir sér far um að kanna hjartalag og sálarlíf og kryfja orsakir og afleiðingar um leið og hún ástundar að skemmta lesendum með markvísri frásögn er þjónar listrænum tilgangi.“ Á leikvelli lífsins er 204 bls. að stærð. Bókin er sett, prentuð og bundin í Prentsmiðju Hafnarfjarðar. Kápu teiknaði Sigurður Örn Bry- njólfsson. upps- r a Gluten BlueStar umbúðunum. Gluten Blue Star er náttúrulegt, óblelkjað hveiti. Heímabaksturinn fær þess vegna fallegan, gullinn blæ. blandað er amerísku mjöli. Hátt hlutfall sterkju (gfuten) tryggir frábæra r'ruictou upfjsMimrnar Blue Star færðu einnig bækiing með uppskríftum að gírnilegum kökum Giuten Blue Star. Danskt hveiti blandað amerís SIGMUND Út er komin sjöunda bókin í gam- anmyndaflokki Sigmund og nær hún yfir árið 1985, bókin heitir „SIG- MUND í STÓLALEIK", en nafnið er dregið af þeim stólaleik sem ráð- herrar okkar hafa verið í á árinu. I formála með bókinni segir Indriði G. Þorsteinsson meðal annars: Enn eru kröfu- og karptímar, stólatímar og kjöttímar. Og enn er tími Sig- mund. Hann er kominn á sjöundu stund eða sjöundu bók, en sjöundi himinn er talinn merkilegur. Við eigum þess enn kost að vera í sjöunda himni með Sigmund meðan þessari bók er flett. Hér leiðir teiknarinn fram á sjónarsviðið eigin útgáfur af mörgum helstu kempum þjóðfélags- ins, hvort heldur þeir eru að banna kjötinnflutning til varnarliðsins samkvæmt lögum til að verjast gin- og klaufaveiki eða eru í leit að stóln- um eina, sem staðið hefur yfir í tvö ár eða lengur. Sigmund í stólaleik er prentuð í Prenthúsinu sf., en Bókfell hf. sá um bókband. Útgefandi er Prenthúsið sf. ORÐ SKULU STANDA -SAGA MANNS SEM VAR DÆMALAUS Iðunn hefur gefið út að nýju bók Jóns Helgasonar, Orð skulu standa, en fjórtán ár eru nú liðin frá frumútgáfu hennar. Útgefandi kynn- ir bókin með svofelldum orðum: „Þetta er saga vegfræðings sem fæddist fyrir sunnan og dó fyrir norðan. I bernsku kenndi gömul kona honum ellefta boðorðið: Orð skulu standa. Hann gat aldrei kvænst vegna þess að hann "hafði heitið sjálfum sér því að eiga stúlku, sem hann sá í svip á kirkjustétt í Noregi, eða enga ella. Hann var vegfræðingur i tvennum skilningi: Hann vegaði heiðar og sveitir og hann var sjaldgæfur vegfræðingur í lífi sínu og hugsunarhætti. Spakvitur Islendingur kallaði hann mestan jafnaðarmann á Islandi. Það var hann aðeins af eðlisávísun því að stjórnmálum hafði hann aldrei gefið gaum. Stærðfræði var yndi hans og eftirlæti, og einu sinni auðnaðist honum að bjarga heilli skipshöfn úr hafvillu með glöggskyggni sinni.“ Orð skulu standa er þriðja ritverk Jóns Helgasonar sem Iðunn gefur út að nýju í vandaðri samstæðri útgáfu. Áður eru komin út l'yrkj- aránið og íslenskt mannlíf I-IV. Bókin er að öllu leyti unnin í Prent- smiðjunni Odda hf. en Auglýsinga- stofan Octavo hannaði kápu. Bras og þras á Bunulæk Verðlaunasaga eftir Ingunni Steinsdóttur með myndum eftir Ing- var Guðnason. Bókin er fyrir yngstu lesendurna, letur er skýrt og línur stuttar. 76bls. Flautan og vindurinn Unglingasaga eftir Steinunni Jó- hannesdóttur með myndum eftir Valgarð Gunnarsson. Sagan hlaut viðurkenningu í samkeppni Náms- gagnastofnunar. 93 bls.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.