Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1985, Qupperneq 30
30
DV. MÁNUDAGUR16. DESEMBER1985.
Aberdeen
hef ur nú
eins stigs
forystu
— í skosku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
Hearts, náðu aðeins jafntefli, 1-1,
á heimavelli gegn Celtic.
Aberdeen hefur nú eins stigs for-
skot, 23 stig, að loknum 18 leikjum
og hefur glæsilega markatölu, 37-17.
Hearts er í öðru sæti með 22 stig að
loknum 19 leikjum þannig að ef
Aberdeen vinnur þennan leik sem
liðið á inni nær liðið þriggja stiga
forskoti. Annars hefur skoska úrv-
alsdeildin sjaldan verið eins jöfn og
nú. I þriðja sæti er Rangers með 20
stig eftir 18 leiki, Celtic er í fjórða
sætinu með 20 stig einnig en hefur
aðeins leikið 16 leiki þannig að
möguleikar Celtic eru miklir. Einnig
möguleikar Dundee United sem er í
fimmta sæti með 19 stig að loknum
16 leikjum. Á botninum í Skotlandi
er Motherwell með 10 stig og næst
fyrir ofan er Clydebank með 12 stig.
Loks kemur St. Mirren með 16 stig
eins og Hibemian.
Glasgow Rangers og Dundee Un-
ited léku á laugardag í Glasgow og
varð jafntefli, 1-1. Þá sigraði Dundee
lið St. Mirren á heimavelli með
þremur mörkum gegn einu. Þá vann
Motherwell, neðsta liðið, Clydebank
í fallbaráttuslagnum með þremur
mörkum gegn engu. -SK.
Aberdeen náði eins stigs for-
skoti í skosku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu um helgina þegar
liðið vann stóran sigur á heima-
vellí sínum gegn Hibernian, 4-0.
Helstu andstæðingar Aberdeen,
Alex MacDonald, þjálfari Hearts
í Skotlandi.
lllíi®
• ..^4
Ekki óalgeng sjón á föstudagskvöldið. Margar spánskar hendur tilbúnar að verja skot íslendinga. Að
þessu sinni er það Sigurður Gunnarsson er bíður lægri hlut fyrir varnarmúr Spánverja. DV-mynd Bj.Bj.
„Vandamálin stór þegar Kristján
og Sigurður leika ekki með okkur”
— sagði Bogdan landsliðsþjálfari eftir 15-17 tap íslenska landsliðsins ífyrri leiknum við Spánverja
„Vandamálin eru stór þegar hvorki
Kristján Arason né Sigurður Sveins-
son leika með okkur. Eg hef sagt það
i tvö ár að þeir væru nauðsynlegir til
þess að iiðið gæti leikið af eðlilegri
getu og í leiknum í kvöld söknuðum
við Kristjáns mikið, hann er 6-7
marka raaður í leik og ef við hefðum
haft hann þá hefði aldrei verið spurn-
ing um úrslit. Leikmenn spánska
liðsins leika mjög sterka vörn og við
áttum í miklum erfiðleikum í sóknar-
leiknum," sagði Bogdan Kowalczyk,
landsliðsþjálfari Islendinga, eftir að
liðið hafði tapað fyrri leik sínum við
Spán í Laugardalshöllinni á föstu-
dagskvöldið, 17-15, eftir að Ísland
hafði haft forystuna i leikhléi, 8-6.
Páll Ólafsson skoraði fyrsta mark
leiksins og í næstu sókn Spánverj-
anna fengu þeir dæmda á sig töf.
Þeir jafna síðan úr hraðaupphlaupi.
Sigurður Gunnarsson náði forys-
tunni aftur en síðan fylgdi slæmur
kafli. Páll skaut í stöng úr víti og
spánska liðið skoraði þrívegis. Horf-
urnar bötnuðu síðan heldur fyrir hlé
er íslendingar skoruðu sex mörk,
helno , ;»inn úr vítum gegn tveimur
Spánarmörkum.
Fy ’.u mínútur seinni hálfleiks
hafa uft verið íslenska landsliðinu
höftfí. erkur og sá kafli var það á
íostu i igskvöldið. Allt fór í baklás í
sóknarleiknum sem var mjög bitlaus
á þessum tíma. Gestimir nýttu sér
það með því að skora fjögur fyrstu
mörk ’nálfleiksins en Páll náði að
minnka muninn í 9-10. Síðan var
jafnt, 11-11, og á öllum tölum til
14-14 er Spánverjar gerðu út um
leikinn. Skomðu þrjú mörk og mark
Atla Hilmarssonar á lokasekúndun-
um dugði því skammt.
Það er varla hægt að hrósa einum
einasta leikmanni íslenska liðsins,
allir geta mun meira en þeir sýndu.
Einar Þorvarðarson markvörður átti
þokkalegan leik og varði fjórtán
skot. Guðmundur Guðmundsson
fiskaði tvívegis víti en mátti sín þó
ekki mikils gegn sterkri Spánarvörn-
inni fremur en aðrir. Atli Hilmarsson
og Sigurður Gunnarsson ollu báðir
vonbrigðum, hvomgur fann svar við
hávörn Spánverja. Þorgils Óttar
fékk lítið að moða úr á línunni og
hann megnaði heldur ekki að opna
fyrir stórskyttunum. Steinar Birgis-
son var langt frá því að fylla skarð
Kristjáns Arasonar en það varð ljóst
fyrir leikinn að það yrði vandasamt
verk. Lítið kom út úr Bjarna í hægra
horninu.
Þrátt fyrir að íslendingar hefðu
aðeins fengið á sig sautján mörk var
það alltof mikið. Sóknarleikur Spán-
verjanna var hvorki góður né mikið
fyrir augað. Leikmaður númer sex,
Cecilio Alonso Suarez, átti bestan
leik þeirra og hann varð einnig
markahæstur leikmanna liðsins með
fimm mörk.
Atli varð markahæstur íslenska
liðsins með sex mörk, þar af eitt víti.
Sigurður skoraði ljögur, þrjú víti,
Páll tvö og þeir Guðmundur, Steinar
og Bjarni gerðu sitt markið hver.
fros
Hvers vegna fáum við ekki
að sitja við sama borð?
Opið bréf frá KR-stúlkum í körfu til stjórnar KKÍ
Hér fer á eftir opið bréf sem
körfuknattleikskonur úr KR
skrifa til stjórnar Körfuknatt-
leikssambands Islands:
Vegna fyrirhugaðrar þátttöku ís-
lands í Norðurlandameistaramóti
kvenna í körfuknattleik, sem haldið
verður í Uppsölum í Svíþjóð í apríl
á næsta ári, vill kvennakörfuknatt-
leiksdeild KR taka eftirfarandi fram:
Við erum í hæsta máta óánægðar
með þau vinnubrögð sem viðhöfð
hafa verið við undirbúning að þátt-
töku í nefndu móti og sjáum okkur
af þeim sökum ekki fært að vera
með. Þegar boð barst um þátttöku
ákvað stjórn KKl að taka því án
þess að tryggja fjármagn til verkefn-
isins eða leggja nokkrar línur um
fjármögnun. I stað þess að stjórnin
sem heild tæki á málinu var því alfar-
ið vísað til einu konunnar í stjórn
KKÍ eins og þetta væri hennar
einkamál. í erfiðri aðstöðu ákvað
hún að skipa þrjár leikkonur í lands-
liðsnefnd. Þær eru að vísu hver úr
sínu liði þannig að ákveðin breidd
er tryggð en liðin eru sex en ekki
þrjú. Þessi skipan gengur þvert á
alla hefð í landsliðsmálum körfu-
knattleiksíþróttarinnar á íslandi.
Hjá körlum er landsliðsnefnd aldrei
skipuð leikmönnum. Því fáum við
ekki að sitja við sama borð og þeir?
Það er skoðun okkar að nefnd sem
skipuð er á þennan hátt eigi erfitt
með að gæta hlutleysis þar sem
hætta er á að starf hennar markist
um of af persónulegum tengslum.
Af þeim ástæðum sem hér hafa
verið raktar lýsir kvennakörfuknatt-
leiksdeild KR því yfir að hún mun
ekki við þessar aðstæður taka þátt í
margnefndum undirbúningi.
Sigrún Cora Barker,
Guðrún Kr. Sigurgeirsdóttir,
Linda Jónsdóttir,
Sigríður Baldursdóttir,
Guðrún Gestsdóttir,
Margrét Árnadóttir,
Hrönn Sigurðardóttir,
Ásta Kr. Sveinsdóttir,
Kristjana Hrafnkelsdóttir,
Dýrleif Guðjónsdóttir,
Erna Jónsdóttir.