Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1985, Síða 10
10
DV. MÁNUDAGUR 30. DESEMBER1985.
Utlönd
UUönd
Utlönd
Utlönd
Neytendafrömuðurinn Nader
færir út kvíamar
Neytendafrömuðurinn banda-
ríski, Ralph Nader, braust fram í
sviðsljósið fyrir tuttugu órum með
bók um hættulega hönnunargalla
í bifreiðum og hefur síðan meira
en nokkur annar haft sig í frammi
til þess að herða kröfur banda-
rískra neytenda og lög um öryggi
framleiðsluvamings og um hrein-
læti í umhverfísmálum.
Síðari árin hefur þessi 51 órs
gamli lögfræðingur teygt neyt-
endakrossför sína víða um lönd til
þess að stappa stáli í neytendur svo
að þeir knýi á um lagabreytingar
og aukin framleiðslugæði. Vett-
vangur Naders er því ekki lengur
einskorðaður við Bandaríkin.
Nader hefur þessi tuttugu ár haft
um sig mikið lið róðgjafa og að-
stoðarmanna.
Neytendabarátta víða um
heim
„Um þessar mundir vinnum við
í samstarfi við samtök í Bretlandi
að því að auka upplýsingaskyldu
þess opinbera þar og hnekkja
leyndarskyldulögunum," sagði
Nader nýlega í viðtali við Gene
Gibbons, fréttamann Reutérs.
Nader, sem hefur verið skelfir stór-
fyrirtækja og stórpólitíkusa eins
og Nixons fyrir 20 árum og Reagans
á þessum áratug, átti drjúgan þótt
í því að opna almenningi aðgang
að skýrslum þess opinbera og fá
lögum breytt í þá átt. Blaðamenn,
félagsfræðigrúskarar og aðrir sem
reyna að draga leyndarmál út úr
bákni þess opinbera njóta góðs af
því í dag.
Auk þess að láta að sér kveða
heima í Bandaríkjunum og í Bret-
landi hafa neytendasamtök víðar
notið góðs af ráðleggingum Nad-
ers, svo sem eins og í Ástralíu,
Brasilíu, Ítalíu, Japan og á Nýja-
Sjálandi. Nú síðast heimsótti hann
Kína og særði þá kínverska bíla-
framleiðendur mjög til þess að setja
öryggisbelti í bíla sína.
Byrjaði á bílunum og er aftur
kominn að bílunum
Dar með má segja að Nader sé
kominn hringinn. Það var einmitt
gagnrýni hans á bandaríska bíla-
iðnaðinn fyrir tuttugu árum sem
aflaði honum frægðar með útkomu
bókarinnar „Hættulegir á hvaða
hraða sem er“. Sú bók dró á eftir
sér mikinn dilk, eins og nýjan laga-
bálk með ákvæðum um öryggisat-
riði í bílunfsem framleiðendum var
skylt að gæta. Nader varð þjóð-
hetja af framtakinu og hefur síðan
verið áberandi á félagssviðinu en
að honum hafa safnast sjálfboða-
liðar úr ýmsum óttum sem allir eru
haldnir sama eldmóðinum til að
bæta bandarískt þjóðlíf.
Þessir „Nader’s Raiders“, eins og
þeir hafa verið kallaðir, hafa látið
að sér kveða í stjórnmálalífinu, í
umhverfisvemd, í umræðu um holl-
ustu ýmissa efna sem notuð eru við
matvælaframleiðslu eða lyfjafram-
leiðslu, öryggi á vinnustöðum og
ótal mörgu öðru.
Gátu af sér 20 lagabálka
Oft hefur þeim verið legið á hálsi
fyrir að fara offari. Afskipti þeirra
Ralph Nader, hinn frægi neytendafrömuður, hefur fært athafna-
semi sína til annarra landa og þjarmar um þessar mundir að kín-
verskum bílaframleiðendum.
til aukins öryggis og meiri vöru-
gæða eru sögð oft hafa leitt af sér
mikinn kostnaðarauka fyrir neyt-
endur og skattgreiðendur almennt.
En enginn lætur hvarfla að sér að
draga í efa að starf þeirra hafi sagt
til sín. Um það bera vitni 20 laga-
bálkar og þrjár ríkisstofnanir sem
urðu til fyrir atbeina þeirra. Þessar
stofnanir eru Umhverfismálaráð,
Umferðarmálaráð og Vinnustaða-
öryggiseftirlitið.
Áhrif Naders á innanlandsvett-
vangi urðu mest á síðasta áratug
en virðast hafa farið dvínandi síðan
Reagan-stjórnin tók við 1981. Það
er alkunna að hún hefur meira
dregið taum atvinnulífsins og
vinnuveitenda en til dæmis um-
hverfisverndarsjónarmiða. En þeir
sem gleggst þekkja til Naders og
starfsaðferða hans segja að áhrif
hans séu enn furðu víðtæk en
vinnubrögðin hafi örlítið breyst og
meira beri orðið á starfi neytenda-
samtaka sem spruttu upp í slóð
krossferðar hans. Þótt hann geri
minna orðið að því að hóa saman
blaðamönnum á fund út af ákveðnu
baráttumáli eða kalla yfir ákveð-
inn þingmann flóð kjósendabréfa
þó eru áhrif hans áþreifanleg með
öðrum hætti.
Neytendaeftirlit sem tekur til
milliríkjaverslunar
Skrifstofur Naders og félaga eru
í Washington, aðeins 20 mínútna
gang frá Hvíta húsinu. Nader-
hópur, sem kallar sig „Almenna
borgara", gefur út mánaðarrit sem
ber æ meiri merki þess að sjónar-
svið Naders hefur færst út fyrir
landsteinana. Hann segir enda að
neytendavandamál erlendis skipti
orðið æ meira móli í heilbrigðis-
og öryggismálum heima í Banda-
ríkjunum. T.d. geti skordýraeitur,
sem bannað er að nota í Bandaríkj-
unum, verið selt úr landi og notað
á kaffi- eða bananaekrum annars
staðar og afurðirnar síðan fluttar
inn aftur á neytendamarkað í
Bandaríkjunum. - Nader hefur
haft hönd í bagga með að setja á
laggimar „leyniþjónustu" neyt-
enda sem rekur vöruflutninga yfir
landamæri og jafnvel inn í ein-
ræðisríki.
Eins og meinlætamaður
Spartanskir lifnaðarhættir Nad-
ers, sem líkja mó helst við munka-
líf, hafa ekkert breyst - þrótt fyrir
alla frægðina - frá því að hann var
óþekktur maður og bílaframleið-
endur urðu uppvísir að því að
reyna að sverta álit hans þegar
hann herjaði á galla framleiðslu
þeirra. Hann segist verja obbanum
af útgáfutekjum sínum aftur til
baráttunnar fyrir hugðarefnunum.
Nader segist jafnákafur í barát-
tunni og þegar hann var tóningur,
„enda gott að láta gott af sér leiða,
en neytendamál eru grundvallar-
mól sem taka til alls fólks, hvar sem
það býr eða starfar".
Afganska innrásin sex ára:
Eru Sovétmenn að lina tökin?
Um þessar mundir em liðin sex
ár frá innrás Sovétmanna í Afgan-
istan. Réðst Rauði herinn inn
þriðja dag jóla, 27. desember 1979.
í sex ár hefur afganska þjóðin háð
grimmilega baróttu fyrir frelsi
sínu. Á innrásardaginn sendu Sov-
étmenn tugþúsundir hermanna
sinna vel vopnum búna til ná-
grannaríkisins. Um þessar mundir
er talið að hermenn Rauða hersins
séu að minnsta kosti 115 þúsund í
Afganistan.
Það vom flestir er bjuggust við
auðveldum sigri Rauða hersins og
að öll andspyma yrði fljótlega
kæfð. Sú hefur ekki orðið raunin.
í hetjulegri baráttu hefur afg-
önskum skæruliðum tekist að veita
öflugt viðnám og í þeirri baráttu
hafa frelsissveitimar unnið marga
stóra sigra. í tímans rás hefur
styrkur þeirra frekar aukist en
minnkað.
En fómirnar hafa verið gífurleg-
ar.
í frelsisbaráttu afgönsku þjóðar-
innar hafa hundruð þúsunda fallið
og milljónir hafa orðið landflótta.
Flestir flóttamannanna gista nú
yfirfullar og ófullkomnar flótta-
mannabúðir í nógrannaríkinu
Pakistan þar sem þeir em að mestu
óhultir fyrir árásum Rauða hersins
og leppa þeirra í höfuðborginni
Kabúl.
Sovétmenn fordæmdir
Á innrásarafmælinu flykktust
afganskir flóttamenn um allan
heim út á götur, funduðu fyrir
framan sovésk sendiráð og for-
dæmdu hersetu Rauða hersins.
Á sama tíma vom einnig gefnar
út yfirlýsingar í höfuðborgum víðs
* * J
Afganskir skæruliðar snæða árbít í Pansjírdal í skugga eyðilagðrar sovéskrar herþyrlu .
vegar um heim þar sem íhlutun
Sovétmanna er fordæmd.
„Þjáningum afgönsku þjóðarinn-
ar linnir ekki fyrr en Sovétmenn
fara á brott,“ sagði Sir Geoffrey
Howe, utanríkisráðherra Breta.
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, sagði að þjóðir heims
gætu ekki lengur vikist undan því
að koma afgönsku þjóðinni til
hjálpar og knýja Sovétmenn á
brott. Ráðamenn í austri og vestri
hafa látið lík orð falla.
Ráðamenn í Kreml hafa fram að
þessu verið allt annað en viðkvæm-
ir fyrir gagnrýni og fordæmingu
umheimsins.
í þeirra augum er stríðið í Afgan-
istan þeirra einkastríð og í augum
hins illa upplýsta Sovétborgara er
stríðið í Afganistan barátta gegn
útsendumm Bandaríkjamanna og
Kínverja er grafa vilja undan afg-
önsku byltingunni og em taldir
bein ógnun við Sovétríkin sjálf.
Er breytinga að vænta?
Vestrænir stjórnarerindrekar í
Kabúl telja að eftir sex ára borg-
arastyrjöld í Afganistan sé nú loks
að vænta einhverrar breytingar á
stjómarstefnu kommúnistastjóm-
arinnar.
Byltingarráð Babraks Karmal
tilkynnti um meiri háttar breyting-
ar á ríkisstjóminni þann 26. des-
ember síðastliðinn.
Það sem er hvað merkilegast við
breytingarnar er að nú hefur
stjórnin í fyrsta sinn tilnefnt full-
trúa í stjómina sem ekki em með-
limir í kommúnistaflokknum.
f fréttatilkynningu útvarpsins í
Kabúl segir að 14 nýir fulltrúar
hafi verið skipaðir til ábyrgðar-
starfa innan ríkisstjómarinnar og
meirihluti þeirra sé ekki í flokkn-
um.
Erlendir stjórnarerindrekar telja
að tilnefning nýliðanna sé viðleitni
í þá átt að öðlast aukinn stuðning
hins almenna íbúa landsins við
ríkisstjórnina sem fram að þessu
hefur verið mjög takmarkaður.
Karmal vill þjóðareiningu
Erlendir stjómarerindrekar í
Kabúl lýstu ofboðslegum öryggisr-
áðstöfunum hers og lögreglu í höf-
uðborginni á afmæli innrásarinn-
ar. Hvarvetna mótti sjá vopnaða
flokka sovéskra hermanna og
afganska stjómarhermenn á varð-
bergi auk þess sem áhersla var lögð
á að gæta vel heimila háttsettra
embættismanna. Að undanförnu
hefur skæruliðum orðið vel ágengt
í að hrella háttsetta stjórnarherra
með sprengjuárásum í miðri Kabúl
og hafa þær valdið miklum ugg.
Á sama tíma og varðgæslan er
aukin í höfuðborginni reyna
stjórnarliðar að afla sér aukinna
vinsælda og stuðnings almennings
með yfirlýsingum um samvinnu og
samstöðu allrar þjóðarinnar þar
sem tónn sátta og fyrirgefningar
er í fyrirrúmi.
Karmal byltingarleiðtogi og
'leppur Kremlarherra í sex ár kall-
aði í síðasta mónuði á þjóðarsam-
stöðu til lausnar vanda afgönsku
þjóðarinnar. í síðustu viku til-
kynnti ríkisstjómin svo um skipun
nefhdar er sjá ætti um málefni
flóttamanna er sneru aftur til Afg-
anistan frá Pakistan. Meginmark-
mið nefndarinnar er að sjá því fólki
fyrir fæði, húsnæði og hugsanlega
atvinnu.
Fréttaskýrendur em almennt
sammála inn að þrátt fyrir aukinn
sáttavilja afgönsku ríkisstjómar-
innar setjist skæruliðar ekki að
samningsborðinu fyrr en síðasti
sovéski hermaðurinn er á bak og
burt frá heimalandi þeirra. Allt
hjal Karmals og annarra jámanna
Sovéta í Kabúl um þjóðareiningu
sé því til lítils.