Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1986, Qupperneq 32
FRÉTTASKOTIO
Hafir þú ábendingu '
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gœtt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 1 986.
íslenskir
,, skákmenn
sænskir
meistarar?
Frá Gunnlaufji A. Jónssyni,
fréttamanni I)V íSviþjóð:
Deildakeppni í skák cr nýhafin
hér í Svíþjóð og keppnin í l.deild.
er merkileg fyrir þær sakir að í
liði Malmö SS tefia fjórir Islend-
ingar. Það eru þeir Júlíus Frið-
jónsson, Arnór Einarsson. Gunn-
ar Finnlaugsson og séra Torfi
Stefánsson. Alls eru átta sk:ik-
menn i sveit Malmö SS og því
helmingurinn íslendingar.
Nú er þremur umferðum af sjö
lokið og er sveit Malmö SS í öðru
sæti í suðurdeildinni. Staðan er
þannig að Lundsakademiska er í
fyrsta sæti með 5 stig og 15 vinn-
inga, Malmö SS er í þriðja sæti
með sama stigafjölda en 13 vinn-
inga og í þriðja sæti er sveit
Mannheim með 4 stig en 14 vinn-
inga. Þess má geta að íslending-
arnir fjórir hafa krækt í sjö og
hálfan vinning af þeim 13 sem
Malmö-sveitin hefur hlotið til
þessa. Júlíus Friðjónsson og
Torfi Stefánsson hafa náð hestum
árangri íslensku skákmannanna.
hlotið tvo og hálfan vinning af
þremur mögulegum. -SK
Óku stolnum bíl
til Þorlákshafnar
Lögreglan á Selfossi náði að
góma unga pilta sem stálu hil í
Reykjavík í nótt. Bíllinn fannst
í Þorlákshöfn laust fyrir kl. 6 i
morgun. Lögreglan í Reykjavík
hafði samband við lögregluna á
Selfossi og tilkynnti að piltar á
stoinum FIAT-bíl væru á leið
•4» austurfyrirfjall.
Lögreglan á Selfossi hugðist
stöðva bílinn við Hveradali. Pilt-
arnir óku bílnum aftur á móti
niður Grafninginn og til Þor-
lákshafnar þar sem Selfosslög-
reglan f'ann bílinn. -SOS
LOKI
Átti þessi brunakuldi ekki
einhvern þátt i þessum
sinubrunum?
„STEFNIA
EFSTA SÆTIÐ
segir Kristín Á. Ólafsdóttir, sem býður sig f ram í f orvali
Alþýðubandalagsins
„Ég hef gefið kost á mér til að
taka sæti á listanum eftir áskoranir
úr ýmsum áttum og er tilbúin að
taka fyrsta sætið ef niðurstöður
forvalsins fara á þann veg og á það
er auðvitað stefnt," sagði Kristín
Á. Ólafsdóttir, varaformaður Al-
þýðubandalagsins, í samtali við
DV.
Forv'alið á lista Alþýðubanda-
lagsins til borgarstjórnarkosninga
fer fram í lok janúar. Rann út frest-
ur til að skila framboðum á gaml-
ársdag en undanfarið hefur verið
um allmikla togstreitu að ræða um
sæti á listanum milli svokallaðra
„lýðræðisafla“ flokksins, sem
yngra fólkið kennir sig við, og
þeirra eldri. Finnst þeim fyrr-
nefndu flokkurinn eigi litla mögu-
leika í komandi kosningum nema
nýtt blóð skipi efstu sæti listans.
í framhaldi af því hefur Kristín
boðið sig fram, svo og Össur Skarp-
héðinsson, ritstjóri Þjóðviljans,
sem hyggur á 2. til 5. sæti, og Skúli
Thoroddsen lögfræðingur er einnig
rennir hýru auga á eitthvert af
efstu sætunum. - KÞ
Þær voru margar krónurnar sem fóru út í loftið í formi flugelda og blysa um áramótin eins
og tilheyrir á þessum tímamótum. Þetta fólk lét ekki sitt eftir liggja og skemmti sér konunglega
við brennuna á Kársnesi í Kópavogi á gamlárskvöld. DV-mynd KAE.
Þrotabú Hafskips:
Ekkert
annað
tilboð
borist
Enn hefur ekkert annað tilboð
borist i þrotabú Hafskips en til-
boðið frá Eimskip. Frestur til að
skila inn tilboðum rennur út 3.
janúar. Ef ekkert annað tilboð
berst verður gengið til samninga
við Eimskip.
Nú um áramótin rann út upp-
sagnarfrestur hjá um 60 starfs-
mönnum Hafskips. Um 30 starfs-
menn hafa þegar ráðið sig til
annarra starfa. Þá hafa einnig
fjölmargir verið látnir hætta
áður en uppsagnarfresturinn
rennur út vegna þess að þeirra
er ekki lengur þörf að mati
skiptaráðanda.
Eins og áður hefur komið fram
hefur verið ákveðið að láta upp-
boð fara fram á Skaftá, skipi
Hafskips, sem kyrrsett var i
Antwerpcn á dögunum. Ráðgert
er að uppboðið fari fram í mars
áþessuári. - APH
NT ævintýríð úti:
Tíminn
kemur
út á morgun
Á morgun kemur út nýtt dag-
blað í kjölfar þess að útgáfa NT
fór á hausinn. Þetta dagblað er
í raun gamalt blað i nýjum bún-
ingi og ber hið gamalkunna nafn
Timinn. Þar með er hið svokall-
aða NT-ævintýri úrsögunni.
Nýja blaðið er gefið út af Fram-
sóknarflokknum og framsóknar-
fólögunum í Reykjavík. Félögin
í Reykjavík bafa þegar valið sér
sína fulltrúa í útgáfustjórn hins
nýja blaðs. Þeir eru: Kristinn
Finnbogason, Alfreð Þorsteins-
son og Sigrún Magnúsdóttir. Á
næstu dögum mun framkvæmda-
stjórn Framsóknarflokksins
velja sér þrjá fulltrúa í stjórn.
Sömu ritstjórar munu starfa
áfram á hinu nýja dagblaði. Þá
er óvíst hversu mörgum verður
sagt upp i kjölfar þessara breyt-
inga. Þessi Tími sem kernur út á
morgun verður 16 síður. Miðað ’
við NT hefur blaðið því verið
skorið niður urn 8 síður. APH
Þrátt fyrir nýlega viðgerð:
Laugardalslaugamar illa
famar af alkalískemmdum
— níu milljón krónum varið til viðgerða á þessu ári
Stúkan við sundlaugarnar í
Laugardal er mjög illa farin af
alkalí- og frostskemmdum. Verður
varið níu milljónum til viðgerðar á
henni á þessu ári, að sögn Ómars
Einarssonar, framkvæmdastjóra
íþrótta- og tómstundaráðs Reykja-
víkurborgar.
Á fjárhagsáætlun borgarsjóðs
Reykjavíkur fyrir árið 1986 er gert
ráð fyrir að 13,5 milljónir fari í
endurbætur á sundstöðum borgar-
innar. Það eru því tveir þriðju
hlutar þess sem eingöngu fara í
endurbætur á Laugardalslaugun-
um.
Sagði Ómar að steypuskemmd-
irnar væru mjög miklar á stúk-
unni en einnig þyrfti að gera við
laugina sjálfa, laga flísar og annað
tilfallandi.
Fyrir fjórum til fimm árum fóru
og fram miklar viðgerðir á stúk-
unni. Sagði Ómar að þær endur-
bætur hefðu ekki dugað lengur en
þetta. Sundlaugarnar, eins og fleiri
mannvirki, sem byggð voru á svip-
uðum tíma, fyrir urn tuttugu árum,
hefðu orðið fyrir barðinu á alkalí-
skemmdum er erfitt reyndist að
bæta. - KÞ