Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Page 11
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR1986 11 Viðtalið Var í vatnsveitu- nef nd á Akureyri Kristín Ólafsdóttir, kvennaskóla- stúlka, söngkona og leikkona, er nú orðin ein aðalstjaman í Alþýðu- bandalaginu. Fyrir nokkrum máiiuð- um var hún kosin varaformaður flokksins og nú um síðustu helgi lenti hún í öðru sæti í forvali flokks- ins fyrir borgarstjórnarkosningamar í vor. „Ég er búin að vera í þessum flokki síðan 1974, hef reyndar alltaf fylgt honum og starfað heilmikið innan hans. Ég var stödd á Akureyri þegar ég gekk formlega í flokkinn og hóf mín pólitísku störf þar. I sveitar- stjórnarkosningunum á Akureyri 1978 var ég í 3. sæti á lista Alþýðu- bandalagsins, endaði sem 1. vara- maður, sat stundum sveitarstjórnar- fundi og starfaði t.d. í vatnsveitu- nefnd. Það var partur af jafnréttis- baráttunni að setja mig í þá nefnd. Nú, frá Akureyri kom ég 79 og það sumar var ég húsmóðir á Þjóðviljan- um og vann við það að þrífa skítinn undan blaðamönnum. Um haustið fór ég til Danmerkur og nam þar leikhúsfræði í 2 ár, eða til ársins 1981. Þá kom ég heim og hef verið tengd pólitíkinni síðan, en fyrst og fremst hef ég starfað við útbreiðslustjórn á Þjóðviljanum,“ sagði Kristín. Kristín er 37 ára og hefur tekið sér ýmislegt fyrir hendur um ævina. Hún lauk gagnfræðaprófi í Kvennaskól- anum 1966 „þegar hann var karl- mannslaus og bar nafn með rentu“, eins og hún segir sjálf. Árið 1969 útskrifaðist hún úr Leiklistarskólan- um í Iðnó og hefur alltaf verið tengd leikhúsinu, ef ekki í framkvæmd þá huga. „Maður var bíðandi við símann eftir hlutverki. Það var og er ennþá hlutsjdpti ungra leikara, sérstaklega kvenna. Leikhúsið gekk alltaf fyrir hjá mér. Ég byrjaði ’73 í öldunga- deildinni, var búin að vera þar í hálft ár, þá var hringt og ég fékk hlutverk. Ég hætti í skólanum. Á sama tíma fór ég að vinna hjá úvarpinu sem þula. Maður þurfti alltaf að vinna annað með leikhúsinu." „Söngleikurinn Óli, sem við nýút- skrifaðir leikarar og hljómlistar- menn, 68 kynslóðin, settum upp 70, er mest spennandi stykki sem ég hef tekið þátt í. Sá söngleikur var mótað- ur af uppreisnarhugmyndum ’68 kynslóðarinnar og í þeim anda lifi ég enn á vissan hátt. Þó hefur maður lært af reynslunni, hlutirnir ganga ekki eins fljótt upp og maður hélt um tvítugt." Kristín sagðist hlakka mjög til kosningabaráttunnar í vor og segist vera sannfærð um að hægt væri að breyta myndinni sem birtist í skoð- anakönnun DV varðandi fylgi Sjálf- stæðisflokksins og Davíðs borgar- stjóra. „Það kemur til með að kosta mjög mikla vinnu að afhjúpa verk Davíðs í borgarstjóm. Verkin hafa horfið í skuggann af þessum hressa og bratta borgarstjóra sem virðist allt vita og kunna að stjóma. Hann er einnig snjall við að koma sér á framfæri." Kristín á 18 ára strák og 4 ára stelpu. Hún býr með Óskari Guð- mundssyni, ritstjórnarfulltrúa á Þjóðviljanum. „Óskar er líka á kafi í pólitíkinni. Það er mjög gott að hafa einhvem til að rífast við um pólitík heima. Við erum alls ekki allaf sammála, en erum góð saman. Ég hef slípað af honum homin og hann hefur ögrandi áhrif á mig.“ Kristín segist hæstánægð með úr- slitin í forvalinu. „Það var gott fyrir flokkinn að ég lenti í öðm sæti, það hefði skilið eftir sig stórt sár hefði églentí l.sæti.“ -Hvers vegna kom verkalýðsarmur- inn, sem mælti með Guðmundi Þ. Jónssyni, svona illa út í forvalinu? „Þegar hart er barist um sömu sætin hljóta einhveijir að falla. Menn úr verkalýðsforystunni klofn- uðu í afstöðu sinni til 3. sætisins. Sumir studdu Guðmund Þ., aðrir Tryggva Þór. Auk þess gerir almenn- ingur í flokknum þá sjálfsögðu kröfu að fulltrúar flokksins líti á sig fyrst og fremst sem verkalýðssinna, hvort sem þeir sitja á skrifstofum verka- lýðsfélaga eða ekki.“ Kvennaskólastúlkan Kristín Ólafsdóttir er orðin ein aðalstjarnan í Alþýðu- bandalaginu. DV-mynd PK NÝ SKÍDALYFTA í NOTKUN Á DALVÍK Frá Ólafi B. Thoroddsen, fréttaritara DV á Dalvík: Ný skíðalyfta var nýlega vígð á Dalvík. Stutt athöfn var við vígsluna þar sem Brynjólfur Sveinsson, for- maður Skíðafélags Dalvikur, opnaði lyftuna formlega með ræðu. Stefán Jón Bjarnason, bæjarstjóri á Dalvík, afhenti skíðafélaginu lyftuna til eignar og umsjónar. Fór hann fyrstur í lyftuna, en bæjarstjórnarfulltrúar á eftir. Bauð skíðafélagið síðan öllum viðstöddum að nota lyftur félagsins endurgjaldslaust á vígsludaginn. Einnig var boðið upp á veitingar. Um 200 manns voru viðstaddir opn- unina og kunnu menn vel að meta það sem í boði var. Lengi hefur verið í bígerð að koma þessari lyftu upp. Skriður komst á málið fyrir u.þ.b. tveim árum. Þá var rætt við bæjarstjómina sem tók vel í málið og leitaði tilboða. Tekið var tilboði frá Leitnerverksmiðjunum á ítalíu. Hafist var handa við verkið í mai sl. og undirstöður steyptar í sumar. Lyftan átti að koma í nóv- ember, en tafðist í flutningum. Hún kom ekki fyrr en rétt fyrir jólin. Var unnið hörðum höndum við uppsetn- inguna um jól og áramót og lauk verkinu þann 21.janúar sl. Öll vinna var unnin í sjálfboða- vinnu af skiðafélagsmönnum og fóru 2-3000 vinnustundir í verkið. Nýja lyftan er eins og áður sagði af Leitn- ergerð, 720 metra löng, 155 metra hæðarmunur milli enda. Hún getur flutt 350 manns á klukkustund. Hægt er að auka afköstin upp í 500 manns á klukkustund með því að bæta við diskum. Nú eru tvær diskalyftur í fjallinu. Em þær samanlagt um 1200 metra langar. Hæðarmunur milli neðsta og efsta hluta þeirra er um 300 metrar. Með þessari nýju lyftu, sem kemur í stað gamallar, stórbatnar aðstaða til skíðaiðkunar á Dalvík. Hægt er að velja brekkur jafnt við hæfi byrj- enda og keppnismanna. Áætlaður kostnaður við uppsetningu lyftunnar er 3,5 milljónir. Dalvíkurbær greiðir 40% af honum, íþróttasjóður ríkisins 40% og Skíðafélag Dalvíkur 20%. Hluti af vígslugestum við neðri enda lyftunnar. Dalvík i * jM-*jM-*>M-*>M-********** Stefán Jón Bjarnason, bæjarstjóri á Dalvík, afhendir Brynjólfi Sveinssyni, formanni Skíðafélags Dalvíkur, lyftuna til eignar og afnota. NYTT * i i * * * -¥• * ¥ * M-MJMJMJMJMjr-J*-*-1 umboð á íslandi, Skeifunni 8 Sími 68-88-50 KÚPLINGAR ^arahj-utaver&lum^ DISKAR, PRESSUR 0G LEGUR í ameriska jeppa og fólksbifreiðar frá hinum viðurkennda framleiðanda- úrvalsvara á góðu verði RILMULT mJ SÍÐUMÚLA3 Jj w* 1 VtSA LhhJ Sendum um allt land. DALVIK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.