Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Side 13
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR1986
13
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
.
Farþegar Samvinnu-
ferða- Landsýnar fá
arðinn endurgreiddan
allur
Hvað geturðu ímyndað þér að þessi
hlutur kosti, sagði maður er kom við
hjá okkur á neytendasíðunni á dög-
unum. Hann rétti fram smáhlut úr
þunnu blikki sem hann sagði að
væri varahlutur í bíl. Við giskuðum
á að þetta kostaði alltaf einar 15-20
kr.
Manninum þótti við nú heldur lág
í áætluninni, hann sagðist hafa gisk-
að á svona 30 kr.
Hið rétta verð reyndist hins vegar
518 kr.
Varahluturinn var eins konar
startarahlíf. Maðurinn sagðist vera
nýbúinn að kaupa annan varahlut
sem var mjög fyrirferðarlítill, start-
krans sem kostaði 8 þúsund kr.
Verðið fer svo sannarlega ekki eftir
fyrirferð hlutanna.
Nú hefur stjórn Samvinnuferða-
Landsýnar ákveðið að endurgreiða
farþegum hluta ferðakostnaðar og
er þetta annað árið í röð sem þetta
er gert. Þeir sem rétt eiga á endur-
greiðslu eru þeir farþegar sem tóku
þátt í hópferðum á vegum ferðaskrif-
stofunnar á síðasta ári og nemur
heildarupphæð endurgreiðslunnar
um 6 milljónum, fullorðnir fá 1200
krónur og börn 600 krónur.
f fréttatilkynningu sem Samvinnu-
ferðir-Landsýn sendu frá sér í tilefni
þessa segir m.a.: „Markmið Sam-
vinnuferða-Landsýnar er að tryggja
landsmönnum öllum sem ódýrastar
orlofsferðir til útlanda. Það er því í
fullu samræmi við félagslegar for-
sendur ferðaskrifstofunnar að þegar
vel gengur í rekstrinum, og hagnað-
ur verður af ákveðnum þáttum hans,
þá verði þeir sem mynduðu umfram-
tekjurnar - farþegarnir sjálfir - látnir
njóta góðs af.“
Helgi Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Samvinnuferða-Landsýnar,
sagðist undirstrika að hér væri ekki
um úthugsaða auglýsingabrellu að
ræða og sagðist telja að heiðarlegri
leið væri ekki hægt að fara, því þeir
farþegar sem rétt ættu á endur-
greiðslu gætu notað upphæðina til
að leggja sem greiðslu upp í ferðalög
sín í ár, en hinir geta fengið pening-
ana greidda út 1. september n.k.
Það eru þátttakendur í hópferðum
til Rimini, Grikklands, Rhodos,
sumarhúsa í Danmörku, Sæluhúsa í
Hollandi og Dubrovnik í Júgóslavíu
sem fá aukaafslátt á ferðum sínum í
ár sem nemur endurgreiðsluupp-
hæðinni. Helgi sagðist þó leggja
áherslu á að hér væri engan veginn
um árvissan atburð að ræða, enda
hefði árið 1985 verið metár í ferða-
málum íslendinga.
-S.Konn.
F.v. Tómas Tómasson, forstöðumaður kynningardeildar, Helgi Jóhannsson framkvæmdastjóri og Kjartan L. Pálsson
blaðafulltrúi. Mynd GVA
A BLAÐSOLUSTOÐUM
Upplifi fólk mikið
einsogmusik
Viötal við Steinunni Sigurðardóttur
rithöfund
Lífsreynsla:
Trompetinn þagnaður
í vélarrummu
Kristján Magnússon segir frá sjávarháska
Erguðtil?
Þrír Islendingar svara spurningunni
Ef það er eðlileg verðlagning að
svona lítill og nauðaómerkilegur
hlutur kosti 518 kr., hvað þá með
verð á öðrum og stærri hlutum.
DV-mynd KAE
Dýr
mundi
Hafliði