Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Page 14
14 DV. MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR1986 Frjálst,óháö dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaðurog útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: FIÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aöstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLT111, SiMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF., ÞVERHOLT111 Prentun: ÁRVAKU R H F. -Áskriftan/erð á mánuði 450 kr. Verð í lausasölu virka daga 45 kr. - Helgarblað 50 kr. Afstaða almennings Almenningur hefur eindregna afstöðu í kjötmálinu svokallaða. Þetta sýnir skoðanakönnun DV. Meirihlut- inn er sérstaklega afgerandi. Yfir 70 prósent af öllu úrtakinu í könnuninni lýsa andstöðu við kjötinnflutn- ing varnarliðsins, eða yfir 90 af hundraði af þeim, sem tóku afstöðu. Hvað þýðir þetta? Þetta er sigur fyrir Albert Guðmundsson ráðherra. Hann hefur mánuðum saman farið hinum hörðustu orðum um þá skipan mála, að varnarliðið fái að flytja inn hrátt kjöt, meðan íslendingum er það óheimilt. Albert hefur talað um, að staðan væri eins og væri ísland fylki í Bandaríkjunum. Geir Hallgrímsson, fyrr- verandi ráðherra, beitti sér einkum gegn Albert í þessu máli. Albert var fjármálaráðherra og Geir utanríkisráð- herra, eins og kunnugt er, ög reyndi hvor að eyðileggja fyrir hinum í málinu. Albert vildi stöðva innflutning varnarliðsmanna á kjöti með skipum. Geir lét þá flytja kjöt inn með flugvélum. Niðurstaða fékkst, eftir að sérfræðingar höfðu fjallað um málið, að því er virðist á vegum ríkisstjórnarinnar. Hinir sérfróðu ályktuðu, að þessi kjötinnflutningur væri heimill samkvæmt varn- arsamningi, þótt hann gengi gegn banni við innflutningi á hráu kjöti. Þetta hefur enda gengið svo til, frá því að hingað kom varnarlið. Hafi Albert samþykkt, að nefndir sérfræðingar s*kyldu fjalla um málið á vegum ríkisstjórnarinnar, ættu skærur innan stjórnar nú að taka enda. Hitt er annað mál, að niðurstöður skoðanakönnunarinnar gætu mætavel valdið því, að málið þróaðist áfram. Hvað er almenningur að segja? Fyrst og fremst, að rangt sé, að ekki sitji allir við sama borð. Hið rétta væri auðvitað, að innflutningur á landbúnaðarvörum yrði frjáls að ákveðnum heilbrigðisskilyrðum uppfyllt- um. Rangt er, að við höldum uppi óarðbærum land- búnaðargreinum með niðurgreiðslum og útflutnings- uppbótum, greiddum af skattborgurunum. Peningum skattgreiðenda væri betur varið til annars, sem skilaði þjóðarbúinu arði. Þannig gæti þetta kjötmál vakið umræður um breytingar, sem yrðu til bóta. Þetta yrði til þess, að allir sætu við sama borð. Verð búvara mundi væntanlega lækka. Við fengjum þá auk- inn aðgang að því, sem sumir viðmælendur í skoðana- könnuninni kölluðu gómsætar nautasteikur og kjúkl- inga. Meðan ekki verður af þessu, telur almenningur, að varnarliðið megi ekki flytja inn kjöt frekar en aðrir hér á landi. Menn benda á offramleiðsluna í landbúnaði og hafa áhuga á, að varnarliðsmenn bæti þar úr skák með því að vera látnir eta íslenzkt kjöt. Fólk er þannig að leita að einhverri aðferð, sem dugi betur en sú óráðs- ía, sem nú er. Hitt mega menn vita, að ólíklegt er, að vamarliðsmenn sætti sig við ýmsar tegundir íslenzks kjöts. Þeir eru betra vanir. í ummælum fólks í skoðanakönnuninni bar mest á skoðunum á þann veg, að eitt skyldi yfir alla ganga, sem væru hér á landi, og offramleiðsla væri á búvörum. Einhverjir nefndu, að Bandaríkin notfærðu sér gömul lög til að hindra, að íslenzk skipafélög flyttu vörur til vamarliðsins. Sumir nefndu sýkingarhættu. í raun eru þetta virðingarverðar skoðanir. Það sem leggja ber þó mesta áherzlu á, em þær framfarir, sem af því yrðu, að búvöruinnflutningur yrði frjáls. Líklega er þetta líka það, sem Albert Guðmundsson helzt kysi. Haukur Helgason. „Hins vegar er ljóst að enn er risaverkefni að vinna og þess vegna ekki veijandi að draga úr framlög- um í málaflokkinn." Sextánföldun f rá 1980 Kjallarinn SVAVAR GESTSSON FORMAÐUR ALÞÝÐUBANDALAGSINS Stjómmál fjalla um forgangsröð verkefna. í síðustu ríkisstjóm vom þrír málaflokkar félagsmála settir efstir á blað: 1. Verkamannabústaðir 2. Málefni aldraðra 3. Málefhi fatlaðra. Þessir málaflokkar vógu allir mjög þungt og til þeirra var varið umtalsverðum fjármunum. Eftir að núverandi ríkisstjóm tók við hefur verið þrengt að þessum málaflokk- um með minnkandi framlögum til framkvæmda en ríkisstjóminni hefúr ekki tekist að stöðva þær framkvæmdir sem þegar em hafn- ar. Þess vegna hefur orðið veruleg aukning í málaflokkum fatlaðra á síðustu árum en greinilegt er að sú aukning verður hægari á næstu árum. Stafar það af tvennu: í fyrsta lagi því að víða hafa erfiðustu hnútamir þegar verið leystir og í öðm lagi því að verulega hefur verið skorið niður fé til Fram- kvæmdasjóðs fatlaðra. Aukningin frá því lögin voru sett Frá þvi að lögin um málefhi fatl- aðra vom sett í tíð síðustu ríkis- stjómar og lögin um málefni þroskaheftra hefur aukning fram- laga í málaflokkinn verið sem hér segir á föstu verðlagi ársins 1985: Ár Upphæð Vísitala 1980 1.241 100 1981 14.234 1154 1982 27.718 2236 1983 41.836 3371 1984 103.134 8310 1985 153.890 12400 1986 199.868 16105 Niðurstaða: Hér er um að ræða sextánföldun rekstrarframlaga á sjö árum en fyrir 1986 er stuðst við fjárlagatöluna og áætluð hækkun milli ára er 28%. Verkefnin Hér verða birt til fróðleiks þau verkefni sem unnið var að á vegum Framkvæmdasjóðs fatlaðra á síð- asta ári. Þessi upptalning sýnir að víða er unnið að mikilvægum verkum og að lögin um málefni fatlaðra vom réttlætanleg. Á þinginu í j haust kom fram áhugi á því úr röðum framsóknarmanna að fella þessi sérlög niður um málefhi fatl- aðra. Nauðsynlegt er að vara við þeim kenningum; til þess er greinin skrifuð, og verkefni síðasta árs og aukning liðinna ára sýnir að rétt- lætanlegt var að setja sérlög um málefni fatlaðra. Hins vegar er ljóst að enn er risaverkefni að vinna og þess vegna ekki verjandi að draga úr framlögum í mála- flokkinn. Svavar Gestsson Listi yfir úthlutanir úr Framkvæmdasjóði fatlaðra fyrir árið 1985. 1. Reykjavíkursvæði. Þús. kr. Heimili Qölfatlaðra, Hrísateig..........................4.000 Styrktarfélag vangefinna, 2 sambýli, Víðihlíð...................................2.000 Styrktarfélag vangefinna, verndaður vinnustaður, Brautarholti 6...................500 Endurhæfingarstöð blindra og sjónskertra................1.000 Gigtarfélagið, Ármúla ....................................500 Sjálfsbjörg landssamband, Reykjavík.....................2.000 öryrkjabandalagið.......................................7.500 Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.........................300 Endurhæfingarstöð heymarskertra...........................500 Meðferðarheimilið, Trönuhólum.............................150 Öskjuhlíðarskóli..................................... 11.500 Safamýrarskóli..........................................2.000 2. Reykjanessvæði. Sambýli, Hafnarfirði.................................. 3.500 Skammtímavistun, Kópavogi.................................500 Leikfangasafh.............................................250 Kópavogshæli............................................2.750 Reykjalundur............................................3.600 Skálatún..................................................500 Tjaldanes.................................................500 Þroskahjálp, Suðumesjum...................................500 Vemdaður vinnustaður, Örvi..............................1.000 Skóladagheimili, Lindarflöt 1.000 3. Vesturlandssvæði. Sambýli, Akranesi.......................................1.500 Þjónustumiðstöð, Borgamesi..............................2.000 Vemdaður vinnustaður, Akranesi .........................1.500 4. Vestfjarðasvæði. Bræðratunga, ísafirði...................................4.000 Sjálfsbjörg, ísafirði 350 Gmnnskóli, sérdeild, ísafirði.............................200 5. Norðurlandssvæði vestra. Sambýli, Siglufirði ....................................2.700 Þjónustumiðstöð, Sauðárkróki..............................500 Sjúkraþjálfun, Blönduósi, endurhæfing.....................500 Skólaheimili, Egilsá......................................200 6. Norðurlandssvæði eystra. Hrísalundur, vemd. vinnustaður, Akureyri................1.000 Vistheimilið Sólborg, lyfta...............................800 Sjálfsbjörg, endurhæfingarstöð, Akureyri..................900 Sumardvalarheimilið Botn..................................300 Sjálfsbjörg, Húsavík......................................150 Síðuskóli, Akureyri.....................................1.000 Sambýli, Húsavík..........................................400 7. Austurlandssvæði. Vonarland, Egilsst., viðbygging...........................600 Sambýli, Egilsst........................................2.000 Vemdaður vinnustaður, Egilsstöðum.........................500 Sjálfebjörg, Neskaupst....................................200 Vonarland, lóð............................................400 Leikfangasafn..............................................50 8. Suðurlandssvæði. Sambýli, Árvegi, Selfossi breyting á húsn.................315 Þjónustumiðstöð, Lambhaga...............................1.000 Sambýli, Selfossi, nýtt verkefni........................1.000 Leikfangasafn, Selfossi....................................50 Leikfangasafn, Vestmannaeyjum..............................50 Vemdaður vinnust., Selfossi ............................ 500 Sumarbúðir, Úlfljótsvatni.................................500 Sérkennslud., Selfossi....................................500 Sólheimar, Grímsnesi....................................1.000 Vegna 19. gr. laga um málefni fatlaðra...................1.000 Svæðisstjómir............................................1.000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.