Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Side 17
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR1986
17
Lesendur
Lesendur
Lesendur
„Hvað þarf maður að vera gamall til að mega koma á tónleika með þér“?
Kennari
óskast í hálft starf (síðdegis) við pöntunarþjónustu
Námsgagnastofnunar. Umsóknir, ertilgreini mennt-
un og fyrri störf, sendist Námsgagnastofnun, póst-
hólf 5192, 125 Reykjavík, fyrir 12. febrúar nk. merkt
„Pöntunarþjónustan".
Upplýsingar gefur Ragnar Gíslason deildarstjóri.
NÁMSGAGNASTOFNUN
STYRKIR TIL HÁSKÓLA-
NÁMS í PORTÚGAL
Portúgölsk stjórnvöld hafa tilkynnt að þau bjóði
fram í löndum sem aðild eiga að Evrópuráðinu fimm
styrki til háskólanáms í Portúgal háskólaárið
1986-87. Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver þess-
ara styrkja muni koma í hlut Íslendinga. Styrkir
þessir eru eingöngu ætlaðir til framhaldsnáms í
háskóla. - Umsóknareyðublöð fást í sendiráði Port-
úgala í Ösló, utanáskrift: Ambassade du Portugal,
Josefines Gate 37, Oslo-2, Norge, og þangað ber
að senda umsóknirfyrir 1. júní nk.
31. janúar 1986.
Menntamálaráðuneytið.
Þú ert minn maður Bubbi
Aðdáandi skrifar:
Elsku Bubbi! Þú varst frábær í
sjónvarpinu um daginn og vinur þinn
Megas var góður líka. Getið þið ekki
komið aftur og helst sem fyrst? Þá
yrði ég nú ánægð. Þú ert góður laga-
smiður Bubbi, betri en Herbert og
þeir allir, mér fyndist að þú ættir að
vera heimsfrægur og koma í sjón-
varpinu út um allan heim og vinur
þinn líka til að opyrja þig. Þá yrði
ég enn ánægðari. Fyrir þína hönd.
Ég hef alltaf hlustað mikið á þig og
er ákveðin í að gera það áfram meðan
ég lifi. Og ég vona að það verði lengi.
Þú h'ka og vinur þinn. Mig langar
að biðja þig að koma aftur því það
er ekkert í sjónvarpinu sem mér
finnst skemmtilegra.
Ég er orðin leið á Duran Duran og
öllu því, meira að segja svolítið leið
á Herbert. Þó hann sé betri en Duran
Duran.
Þú ert minn maður þó þú eigir
konu og sért ástfanginn upp fyrir
haus. Þá ert þú samt minn maður -
og hennar. Ég hef aldrei farið á
tónleika með þér, mér skilst að ég
sé ekki nógu gömul. Hvað þarf
maður að vera gamall til að mega
koma á tónleika með þér? Sumir
segja að þú syngir svo dónalega að
það sé ekkert hollt að hlusta á þig,
en bráðum verð ég fullorðin og þá
er það allt í lagi. Ég læt ekki alltaf
banna mér allt. Hvað finnst þér um
það? Á maður nokkuð að láta full-
orðna fólkið banna sér allt?
Þú þarft ekkert að skrifa í blaðið
og svara mér, ég veit hvort eð er
alveg að þú stendur með mér því þú
ert minn maður.
^UREYRIA/ga^ Gerist Áskriftarsíminn áskrifendur! á Akureyri er 25013 —
ATHUGIÐ! Tekið er á móti smáauglýsingum í síma 25013 og á afgreiðslunni, Skipagötu 13. Afgreiðsla okkar Skipagötu 13 er opin virka daga kl. 13—19 og laugardaga kl. 11 — 13. —
Blaðamaður|^^^£yfj|á Akureyri, Jón G. Hauksson, hefur aðsetur á sama stað. Vinnusími hans er 26613, heimasími 26385.
VIÐ FÆRUMIYKKUR |*Q
DAGLEGA
Afgreiðsla — auglýsingar Skipagötu 13 — Akureyri. Sími 25013.
BÍLATORG
NÓATÚN 2 - SÍMI621033
ÞRIR ALVÖRU-BILAR
BILATORG
Mercedes Benz 230 E árg. 1985, ekinn 9.000 km, blásans., velúr-
innrétting, litaó gler, sportfelgur, rafdrifnar rúður, snjódekk,
sumardekk, útvarp, segulband.
BÍLATORG
Mercedes Benz 190 E árg. 1983, ekinn 34.000 km, silfurgrár,
velúr-innrétting, sjálfskiptur, útvarp, segulband, snjódekk, sum-
ardekk.
bilatorg
BMW 628 CSi árg. 1982, ekinn 90.000 km, blásans., leður-
innrétting, sóllúga, litað gler, rafdrifnar rúöur, sportfelgur.
NÓATÚN 2 - SÍMI621033