Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1986, Qupperneq 34
DV. MIÐVIKUDAGUR 5. FEBROAR1986 34 Fjármálasukkið hjá Kaupfélagi Svalbarðseyrar: Bændur börðu í borðið: Hingað og ekki lengra „Blessaður vertu, þetta verður Beverly Hills Akureyringa eftir smátíma, eftirsóttur staður,“ sagði verkafólkið í kjötvinnslu Kaupfélags Svalbarðseyrar við DV. Sagt í gríni, en alvaran blasti við. Hlutir hafa gerst með ólíkindum í „Beverly Hills". Þetta er málið Svalbarðseyrarmálið snýst um gjaldþrot Kaupfélags Svalbarðs- eyrar, KSÞ, um uppsagnir 70 manns, um það hvort heilt þorp verður sett á nauðungaruppboð, um innbrot í kjötgeymslu, um milljóna úttekt kaupfélagsstjórans og fyrrum gjald- kera til að byggja sér einbýlishús. Það snýst líka um það hvort Sam- vinnubankinn, Sambandið, Áburð- arverksmiðjan og bændur séu að tapa milljónum í fyrirsjáanlegu gjaldþroti kaupfélagsins. Kannski snýst það ekki hvað síst um þá gjá sem myndast getur á milli bænda, eigenda kaupfélaganna, og yfirmanna kaupfélaganna. Um það hvort bændur eigi kaupfélagið eða kaupfélagið bænduma. Land og synir Fyrst við emm að tala um „Beverly Hills“ má geta þess að kaupfélagið á Svalbarðseyri hefur komið við sögu í kvikmyndum. Upptökur í kvik- myndinni Landi og sonum fóru þar meðal annars fram. Þetta er „kaup- félagið" sem Sigurður Sigurjónsson leikari þurfti að eiga við. Það sem stingur fyrst í augun varðandi mál Kaupfélags Svalbarðs- eyrar er að kaupfélagsstjórinn og fyrrum gjaldkerinn skyldu lána sér milljónir króna úr kaupfélaginu á sama tíma og það var í bullandi greiðsluerfiðleikum. Síðastliðið haust nam skuld þeirra beggja um 8 milljónum króna. Kaup- félagsstjórinn skuldaði á sjöttu millj- ón og gjaldkerinn á þriðju. Lánin tóku þeir ekki nema að hluta með vitneskju stjómar kaupfélagsins. Þriðji maðurinn bætist í milljónahópinn Reyndar hafa fleiri fengið lán hjá kaupfélaginu til að standa straum af húsbyggingum. Þriðji starfsmað- urinn, yfirverkstjóri í kartöfluverk- smiðjunni, skuldar vel á aðra milljón króna. Skuldir þessara þriggja starfs- manna námu því í haust á tíundu milljón króna. Dágóð upphæð. Meira að segja kaupfélagsstjórinn tók sér ekki húsnæðismálalán til að byggja. Þessar óvenjulegu lántökur hjá kaupfélaginu, sem var á meðan að greiða þetta 50 til 70 prósent í vexti af lánum sínum vegna mikilla van- skila, komu upp á yfirborðið síðasta sumar. Bændur vissu að kaupfélagsstjór- inn og fyrrum gjaldkerinn skulduðu eitthvað. Þeir stóðu í þeirri trú að skuldin skipti nokkrum tugum þús- unda, í mesta lagi fáeinum hundruð- um þúsunda. En 8 milljón króna skuld óraði þá ekki fyrir. Bændur börðu í borðið - hingað og ekki lengra Haldinn var aukafulltrúafundur 16. ágúst í haust. Á þeim fundi lagði kaupfélagsstjórinn fi-am uppsögn sína. Það var vegna þiýstings. Gjaldkerinn hætti í vor sem gjald- keri. Hann vinnur ennþá hjá kaup- félaginu. Sá sem tók við af honum hætti eftir sumarið og sá þriðji tók við. Á aukafulltrúafundinum varð úr að formanni stjómar ásamt kjömum endurskoðanda var falið að taka við rekstri kaupfélagsins. Þeir áttu að annast daglegan rekstur þar til nýr kaupfélagsstjóri fyndist. Mikið var leitað. Óskað var að- stoðar samvinnuhreyfingarinnar við að útvega mann. En allt kom fyrir ekki, samvinnuhreyfingin sá sér ekki fært að senda mann á Svalbarðseyri og taka við stjórninni, koma reglu á hlutina. Kaupfélagsstjórinn endurráðinn Það varð því úr að kaupfélagsstjór- inn var endurráðinn af stjóminni til að annast daglegan rekstur. En nú í sameiningu við formann stjómar- innar. Mörgum bændum, sem standa að kaupfélaginu, blöskraði síðasta árs- skýrsla. Ekki aðallega vegna tapsins -Fréttaljós- JÓNG. HAUKSSON og stöðunnar sem þar var sýnd, miklu heldur vegna húsamála kaup- félagsstjórans og fyrrum gjaldker- ans. I inngangsorðum kaupfélagsstjór- ans í ársskýrslunni segir að skuldir bænda gagnvart kaupfélaginu séu liðlega 20 milljónir króna, skráðar sem „skuldir viðskiptamanna" í efnahagsreikningi, eignamegin. Lánin skráð sem skuld bænda Þegar betur var að gáð var stór hluti lántöku kaupfélagsstjórans og gjaldkerans þar innifalinn. Einnig ráku menn augun í fasteignina Smáratún 9, einbýlishús kaupfélags- stjórans. Hún er ekki lengur á fast- eignaskrá félagsins. Kjallaraíbúðin þar, 77 fermetrar, var á fasteignaskrá metin í upphafi árs 1984 á 2 milljónir króna en í lok árs á 1960 þúsund. Hvað var eigin- lega að gerast? Svarið fékkst. „Kaupin" á kjallara- íbúðinni voru hugsuð til að létta á skuldum * kaupfélagsstjórans við kaupfélagið. En það ótrúlega var að stjóm kaupfélagsins samþykkti síðla árs 1984 að kaupa íbúðina. Keypt án þess að kaupa Enginn kaupsamningur var gerð- ur, hvað þá undirritun, afsal eða þinglýsing. Svo fór að seint á síðasta ári, ’85, óskaði kaupfélagsstjórinn eftir því að þetta gengi allt til baka. Húsamól hans vom þó orðin heitt mól á meðal bænda. Kaupverð íbúðarinnar er ekki síð- ur athyglisvert, 77 fermetra kjallara- íbúð, hálfkláruð, á Svalbarðseyri, metin á 2 milljónir króna. Verðið var hugsað þannig að kaup- félagið greiddi 1350 þúsund vegna íbúðarkaupanna, upphæðin gengi upp í hluta skuldar hans, en 650 þúsund væri greiðsla til kaupfélags- stjórans vegna yfirvinnu og sumarfrís, sem hann taldi sig eiga inni. Samt skráð á 2 milljónir í fas- teignaskrá. Stjómin vissi ekki nema að hluta um lántökur kaupfélagsstjórans og gjaldkerans. Búið var neftúlega að færa 1200 þúsund krónur inn á sér- stakan biðreikning hjó kaupfélags- stjóranum, en 1100 hjá gjaldkeran- um. Þetta vom hálfgerðir „leyni- reikningar", færðir þar sem lítið fór fyrir þeim. Og um þessar íjárhæðir vissi stjómin ekki. En alls nam skuld þeirra beggja sem sé um 8 milljónum króna í haust. Kaupfélagsstjórinn hefur greitt 4 milljónir upp í skuld sína. Kaup- félagið keypti af honum skuldabréf með veði í einbýlishúsi hans. Sumarfrí og yfirvinna Kaupfélagsstjórinn hefur gefið þá skýringu við DV að hann hafi ekki fengið greidda yfirvinnu og tekið sér mjög sjaldan sumarfrí í öll þau ár sem hann hefur unnið hjá kaupfélag- inu. Úttektin væri því hugsuð sem greiðsla upp í yfirvinnuna og unnið sumarfrí. Missti tökin vegna góömennsku Það er samdóma ólit þeirra fjöl- mörgu sem DV hefur rætt við vegna Svalbarðseyrarmólsins að kaupfé- lagsstjórinn hafi misst tökin á stjóm- inni vegna góðmennsku. Hann reif kaupfélagið upp á sínum tíma. Hefur viljað allt fyrir alla gera. Notið vinsælda vegna þess að hann hefur viljað leysa mál allra. Ef eitt- hvað er, hefur hann ekki verið nógu harður og ákveðinn til að reka kaup- félagið á erfiðum tíma þess. Gjaldkerinn lenti í erfiðleikum með húsbyggingu sína vegna verð- tryggðra lána. Kaupfélagsstjórinn var hjálpsamur sem fyrr og þannig var lánið til gjaldkerans tilkomið. Það sama er að segja um þriðja starfsmanninn sem fékk á aðra millj- ón króna lán.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.