Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Síða 6
6 DV. MÁNUDAGUR17. FEBRUAR1986. Viðskipti Viðskipti Viðskipti Vióskipti Peningamarkaðurinn Færeyska skipið Svanur fer héðan i dag, troðfullt af frystum fiski, til Bandaríkjanna. „Visst áhyggjuefni ef erlend skipafélög, kannski styrkt af erlendum yfirvöldum, koma hingað í skipaflutninga," sagði Ómar Jóhanns- son hjá Skipadeild Sambandsins. DV-mynd PK Samkeppni í Ameríkusiglingum f rá Færeyingum: Stoppa á íslandi eins og víkingar til foma Innlán með sérkjörum Alþýöubankinn: Stjörnureikningar eni fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn- stæður með 6 mánaða fyrirvara, 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningam- ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum. Þriggja stjömu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lifeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn- vextir eru 29% og ársávöxtun 29%. Sérbók. Við fýrsta innlegg eru nafnvextir 27% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mánuði án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 33,5% á fyrsta ári. Búnaöarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 36% nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og 42,8% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Iönaöarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5% vöxtum. Hærri ávöxtunin gildirhvem mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hveiju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 36% nafnvöxtum og 39,2% ársávöxtun eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. 100 ára afmælisreikningur er verðtryggð- ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25% og breytast ekki á meðan reikningurinn verð- urí gildi. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 22%, eftir 2 mánuði 25%, 3 mánuði 27%, 4 mánuði 29%, 5 mánuði 31%, og eftir 6 mánuði 37%. Frá 11.02. 1986 verða vextireftir 12 mánuði 38% og eftir 18 mánuði 39%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6 mánaða verðtryggð- um reikningum gildir hún vun hávaxtareikn- inginn. 18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán- aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt- um sé hún betri. Samanburður er gerður mánaðariega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. I>á ársfjórðunga sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari- sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heili- ársfjórðung. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með 34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp- vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn- an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem eru 50 þúsund að nafnverði. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, Qög- urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur, vextir og vaxtavextir greiðast með höfuöstóí við innlausn. Með vaxtamiöum, til mest 14 ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert. Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð- stól. Gengistryggð skírteini eru til flmm ára. f>au eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til- tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%. Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í einu lagi við innlausn. Almenn veröbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfín eru ýmist verðtryggð eða óverð- tryggð og með mismunandi naftivöxtum. Þau eru seld með affollum og ársávöxtun er al- mennt 12-18% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings, annars mest 139-174 þúsund. 2-4 manna fjöl- skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund. Lánstími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvó árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns- rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35 ár. Biðtími eftir lánum er. mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í einu lagi yfír þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oflar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextimir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig 22%. Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22% nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6 mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur. Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6 mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím- ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45% á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því 0,125%. Vísitölur Lánskjaravísitala í febrúar 1986 er 1396 stig en var 1364 stig í janúar. Miðað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 1. ársfjórðungi 1986 er 250 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3699. stig á grunni 100 frá 1975. Færeyska skipafélagið Föroyar hef- ur ákveðið að láta skipin sín, Svan og Ólaf Gregersen, leggja lykkju á leið sína frá Noregi til Bandaríkj- anna, stoppa á höfnunum frá Vest- mannaeyjum til Faxaflóa, taka þar frystan fisk og flytja til Bandaríkj- anna. Skipafélaginu Föroyar finnst þetta fullkomlega eðlilegt, m.a. vegna þess að „Færeyingar og ís- lendingar áttu samvinnu um flutn- inga yfir Atlantshafið til forna. Gömlu víkingarnir nýttu sér þessa siglingaleið og stoppað var á íslandi á leiðinni," samkvæmt blaðafulltrúa skipafélagsins, Áma Gregersen. Umboðsmaður skipafélagsins hér er Þorvaldur Jónsson skipamiðlari. Sagði hann að þeir væru hvort eð er að sigla þessa leið og hugsanlega gæti þetta komið sér vel fyrir suma Framkvæmdastjóm Landssam- bands iðnaðarmanna telur ekki sæmandi að afturkalla eða draga úr loforðum sínum um hlutafjár- framlag til Þróunarfélags íslands hf. vegna ágreinings um menn í. stöðu framkvæmdastjóra. Þetta er svar við tilmælum Félags íslenskra iðnrekenda. Tilmælin voru um að stofnanir og sjóðir iðnaðarins tækju aðild sína að Þróunarfélaginu til endur- skoðunar eftir pólitíska íhlutun við Stofnað hefur verið nýtt hlutafélag til að yfirtaka rekstur Jarðborana ríkisins og Gufubors ríkisins og Reykjavíkurborgar. Hlutafélagið heitir Jarðboranir hf. og er í eigu Reykjavíkurborgar og ríkisins að jöfnum hlut. Málum var þannig háttað fyrir stofhun hlutafélagsins að Jarðboranir ríkisins sáu um rekstur á Gufubor ríkisins og Reykjavíkurborgar sem átti borinn Dofra sem nú verður í eigu nýja félagsins, Jarðborana hf. „sem t.d. vildu flytja fisk í næstu viku, fengju enga ferð með öðrum skipafélögum og gætu því nýtt sér þjónustu Færeyinganna". Um undir- boð verður ekki að ræða sagði Þor- valdur. Skipið Svanur kom hingað fyrir stuttu með smokkfisk og fiski- kassa frá Noregi og fer í dag með frystan fisk héðan „og er með fullt skip af fiski,“ sagði Þorvaldur. „Það er auðvitað visst áhyggjuefni ef erlend skipafélög fara að koma í skipaflutninga hingað, kannski styrkt af erlendum yfirvöldum. Ég get ekki séð að þessi skip haldi þeirri rútu sem þeir hafa ætlað sér - að koma hingað einu sinni í hálfum mánuði. Skipafélagið færeyska var búið að bjóða okkur að nýta tómu plássin í þessum skipum svo ekki veit ég um hvernig gengur hjá þeim ráðningu framkvæmdastjóra fé- lagsins. „Um ráðningu fram- kvæmdastjóra er ljóst að meirihluti löglegrar stjómar þess stóð að henni, hvað sem kann að vera hæft í ásökunum um utanaðkom- andi þrýsting," segir framkvæmda- stjóm Landssambandsins. Jafnframt segir hún i ályktun um málið að Þróunarfélagið hf. þurfi að geta starfað án óeðlilegra af- skipta ríkisvaldsins. Reykjavíkurborg þarf að leggja í hlutafélagið heilmikinn kostnað því veltufjármagn hlutafélagsins er 136 milljónir sem borgin greiðir til helminga á við ríkið. Saman- lagður stofnkostnaður er 177,2 milljónir. Karl Ragnars verkfræðingur hef- ur verið ráðinn forstjóri hins ný- stofnaða hlutafélags en stjórnar- formaður er Jónas Elíasson pró- fessor. -KB að fylla plássið. En við verðum að standa í þessari samkeppni eins og öðrum hingað til,“ sagði Ómar Jó- hannsson hjá Skipadeild Sambands- ins. -KB Seldi velíHull Frá Emil Thorarensen, fréttaritara DV á Eskifirði: Óskar Halldórsson RE-157, sem gerður hefur verið út frá Eskifirði um nokkurt skeið, seldi 71 tonn í Hull sl. miðvikudag. Verð var nokk- uð gott eða 52 krónur að meðaltali. Uppistaðan var þorskur og ýsa. Verð á gasolíu er lágt erlendis um þessar mundir eins og kunnugt er. Á miðvikudag var verð á gasolíulítran- um í Bretlandi 7,27 kr. Til saman- burðar er verðið til fiskiskipanna hér heima 11,90 krónur. Selfoss: Skóbúðin stækkuð Frá Regínu Thorarensen, fréttarit- ara DV á Selfossi: Eigendur Skóbúðar Selfoss hyggj- ast stækka hana um næstu mánaða- mót, þ.e. mánaðamótin febrúar-mars. Eins og fram hefur komið urðu eig- endaskipti á versluninni í október sl. Hefur rekstur hennar gengið mjög vel. En nú er lægð í sölunni, eins og alltaf á þessum tíma. Ætla hinir fyr- irhyggjusömu eigendur að nota „dauða tímann“ til að stækka versl- unina, eins og áður sagði. KEAmeð glansgalla Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni DV á Akureyri: „Þetta er ekki alls kostar rétt hjá saumakonunum. Við erum með glansíþróttagalla og höfum selt mik- ið af þeim,“ sagði Alfreð Almarsson, verslunarstjóri vöruhúss KEA á Akureyri, og gerði athugasemd við ummæli saumakvennanna hjá fata- deild Sambandsins í DV fyrir stuttu. Þær sögðu: „Lítum á glansíþrótta- gallana. Það er spurt mikið um þá í verslun kaupfélagsins. Þar eru þeir ekki til þó nóg sé af þeim hér á lag- ernum. Það hlýtur að vera eitthvað að.“ Alfreð sagði að KEA hefði selt mikið af glansíþróttagölium frá Heklu sl. sumar og eins fyrir jól. VEXTIH BANKA 0G SPARISJÖÐA (%) 11.-20.021986 innlAn með sérkjörum sjAsérusta lii! tiillílililiiifi innlAn överðtryggð SPARISJÖÐSBÆKUR Úbundin innstada 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsógn 25.0 26.6 25.0 25.0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25.0 6 mán. uppsogn 31.0 33.4 30.0 28.0 26.5 30.0 29.0 31.0 28.0 12mán. uppsógn 32.0 34.6 32.0 31.0 33.3 SPARNAÐUR - LÁNSRÉTTUR Sp«r.A 3-5 mán. 25,0 23,0 23.0 23.0 23.0 25,0 25,0 INNLANSSKlRTEINI Sp. 6 mán. og m. 29.0 26,0 28.0 29.0 28.0 Til 6 mánafta 28.0 30,0 28.0 28.0 tékkareikningar Avlsanaraiknmgar 17.0 17,0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0 Hlauparaikningar 10.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0 innlAn verðtryggð SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 2.0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0 6mán. uppsógn 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0 innlAn gengistryggð gjaldeyrisreikningar Bandarikjadollarar 8.0 8.0 7.6 7.0 7.5 7.5 7.5 7.5 8.0 Starlingspund 11.5 11.5 12.0 11.0 11.5 11.0 11.0 11.5 11,5 Vestur-þýsk mórk 5.0 4.5 4.0 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5 Danskar krónur 10.0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0 útlAn úverðtryggð ALMENNIR VlXLAR (Imvaxtir) 30.0 30.0 30,0 30,0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 VIÐSKIPTAVlXLAR (fonrextir) 34,02) k0> 34.0 kga 32.5 kga kge kga 34.0 ALMENN SKULDABRÉF 32.03) 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 VIÐSKIPTASKULDABRÉF 35.02) k* 35,0 kga 33.5 i<(» kgt kge 35.0 HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 útlAn verðtryggð SKULDABRÉF Aó 21 /2 árí 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4,0 Langrían21/2ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 ÚTLAN TIL FRAMLEBSLU sjAnœanmAlsi) l)Lán tU innanlandsframleiðslu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutningB, í SDR 10%, í Bandaríkjadollurum 9,75%, í sterlingspundum 14,25%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%. 2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í Hafnarfirði, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj. 3) Vaxtaáiag á skuldabréf tii uppgjörs vanskiialána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í AJþýðubankanum og Verslunarbankanum. Iðnaðarmenn um Þróunarfélagið: „Brotthlaup er ekki sæmandi” Borínn Dofri í hendur nýrra eigenda

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.