Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1986, Page 7
DV. MÁNUDAGUR17. FEBRÚAR1986. 7 Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Atvinnumál Gámaútflutningur ogferskflök meðflugi hækkafiskverð: Útflutningur fersks fisks í gám- um er orðinn verulegur þáttur í fiskútflutningi Islendinga. Fiskur- inn berst með þessu móti á markað- inn í ágætu standi og fyrir hann fæst yfirleitt gott verð. Mörg und- anfarin ár hefur oft verið rætt um það að skynsamlegt væri að flytja fiskinn ferskan á markað í gámum vöruflutningaskipa í stað þess að láta veiðiskipin sjálf sigla. Þetta væri líkt því og láta skurðgröfur aka með mold í stað vörubíla. Gámaflutningurinn byrjar þó ekki af krafti fyrr en fyrir rúmum tveim- ur árum og er raunar enn í þróun. í þessum málum sem og mörgum öðrum rekast á hagsmunir. Þeir útgerðarmenn, sem útflutninginn stunda, telja hann farsæla lausn. Fiskvinnslan í landi er ekki á sama máli. Aðstandendur hennar vilja fiskinn til vinnslu hérlendis. Brautryðjendur gámaútflutnings eru nokkrir. Einn þeirra er Helgi Zoega, sem lengi hefur verið um- boðsmaður fyrir íslenskan fisk í Englandi. Blaðamanni er það minnisstætt er hann hitti Helga í Fleetwood seint á síðasta áratug. Þá var það honum ofarlega í huga að flytja ferska fiskinn frá íslandi með flutningaskipum í stað veiði- skipa. Þá talaði Helgi fyrir daufum eyrum en breyting hefur nú orðið á. DV hitti Helga að máli fyrir skömmu en hann var þá enn á förum til Englands í fisksöluhug- leiðingum. Með Helga var Haf- steinn Ásgeirsson, útgerðarmaður í Þorlákshöfn. Hafsteinn gerir út Guðfinnu Steinsdóttur ÁR 10. Hafsteinn lét bát sinn sigla lengi vel en fyrir hálfu þriðja ári söðlaði hann um og hætti því. Þess í stað er aflinn allur sendur utan með gámum. Betri fiskur á markað Hafsteinn hefur ákveðnar skoð- anir á gámaflutningunum: „Við byrjuðum á þessu haustið 1983. Við vorum í siglingum á bátnum þegar fór að hausta en það var erfitt vegna brælu. Við klipptum því á túrinn, fórum í land og sendum FERSKFISKUR ER FULLUNNIN VARA aflann út. Útkoman úr því var sæmileg. Síðan hefur þetta þróast. Það er ekki efi að þessi gámaút- flutningur bjargaði mörgum í fyrra. Vertíðin var svo léleg, t.d. brást ýsuveiðin alveg,“ sagði Hafsteinn. Þeir Helgi og Hafsteinn voru sammála um það að jákvæð þróun hefði orðið í þessum útflutnings- máta. Nú gengju menn til dæmis mun betur en áður frá fiski um borð i fiskiskipunum sem veiddu fyrir gámaflutninginn. Þá væru sífellt fleiri gámar einangraðir. Þeir sögðu að nauðsynlegt væri að einangra alla gámana svo fiskur- inn héldist vel ísaður á áfangastað. „Ef vel tekst til er hægt að senda fisk beint úr sjó í gámana og á markaðinn," sagði Hafsteinn. „Fiskur getur þannig verið á sjötta degi er hann kemur á markaðinn. Á betra verður ekki kosið. Algengt er þó að gámafiskurinn sé um það bil níu daga gamall þegar hann kemur á markað. Sé hins vegar miðað við veiðitúra og siglingu veiðiskipsins sjálfs er fiskurinn orðinn ellefu til tólf daga gamall. Bátur eins og minn á að geta farið út, náð í fisk í einn gám og komið með hann að landi.“ „Þessi gámaútflutningur hefur byggt upp markaðinn og hækkað verð, raunar fyrir skipin sem sigla líka. Framboðið á markaðinn er mikið stöðugra. Menn eiga því erindi á markaðinn, vita að þeir geta fengið góða vöru. Ætli þessi markaður, sem við siglum á, þoli ekki um það bil tvö þúsund tonn á viku. Útflutningurinn að undan- förnu hefur numið um fimmtán hundruð til tvö þúsund tonnum á viku.“ Fiskvinnslan verður að þróa sig „Það er alltaf urgur í fiskvinnsl- unni vegna þessa útflutnings,“ sagði Hafsteinn. „En það er aðeins skammsýni. Ferskfiskmarkaðnum þarf að sinna eins og öðrum. Fersk- fiskur, sem fluttur er út, er fullunn- in vara. Ég vil þó ekki segja að það eigi Hafsteinn Ásgeirsson, útgerðarmaður í Þorlákshöfn, og Helgi Zoega, umboðsmaður fyrir ferskfisk. DV-mynd KAE F erskfiskur úr íslensku skipi boðinn upp i Grimsby. DV-mynd Jónas Haraldsson. að draga úr vinnslunni hér heima. Hún verður hins vegar að þróa sig til þess að skila hærra verði. Það eru ýmsir möguleikar í vinnslunni, en ekkert sem hefur ýtt á eftir og kallað á úrbætur. Gámaútflutning- urinn hefur nú upp á síðkastið orðið til þess að nú er hægt að fá ágætt verð fyrir fisk hér heima. Sem dæmi má taka samkeppnina um ýsuna. Það er slagur um hana hjá fisksölum. Nú er greitt fyrir hana tvöfalt verð miðað við verð- lagsákvörðun. Þá má nefna út- flutning á ferskum flökum með flugi. Sá útflutningur skilar mun betra verði en fæst hér heima, auk þess sem greiðsla fæst strax í stað þess að bíða þurfi mánuðum saman eftir uppgjöri." „Frystingin er að mörgu leyti orðin gamaldags,“ sagði Hafsteinn. „Þetta er bara geymsluaðferð. Flutningatæknin og ferðatíðnin er allt önnur en þegar verið var að byggja upp frystihúsin svo forða mætti fiskinum frá skemmdum. Það er engin spurning um það að markaðurinn vill fá ferskan fisk og borga meira fyrir hann. Það kemur ekki til mála áð reka fryst- inguna sem atvinnubótavinnu þannig að gefa þurfi frystihúsunum fiskinn. Stóru fyrirtækin þröskuldar Það er ómögulegt annað en þessu verði breytt. Það má hugsa sér það að fólkið og húsin verði nýtt til að flaka og hreinsa en sleppa frysting- unni - þessu rándýra rafmagni. Það er enginn hörgull á kaupendum á ferskum fiski. Auðvitað eru ákveðnar tegundir, sem ekki verð- ur komist hjá að frysta, hluti af þorskinum, lakari karfinn sem fer á Rússland, steinbítur og fleira. Ameríkumarkaðurinn verður stór áfram en þar er einnig mikill mark- aður fyrir fersk flök. Þröskuldur- inn er hins vegar þessi stóru fyrir- tæki sem þar hafa verið byggð. Við sem róum lítum á þessi apparöt í Ameriku sem fyrirtæki sem þarf að skaffa nógu mikið af ódýrum fiski. Við viljum aftur á móti fá borgað fyrir hann. Vandinn er sá að enginn hefur verið að spá í þetta nema við smá- karlarnir. Hinir stóru hugsa ekki um annað en að ryðja þessu til Ameríku. Þeir hrópa úlfur, úlfur og segja að við stefnum öllu í voða með því að selja fiskinn annað en til Bandaríkjanna. Þetta er tog- streita og pot. En það er til mikið af rándýrum mörkuðum um alla Evrópu, allt meginlandið meira og minna. Og þá má ekki gleyma Japan. Það er talsvert af mörkuðum sem við get- um ekki nýtt nema frysta beint úr sjó. Þar má nefna karfamarkaðinn í Japan. Þeir vilja karfann rauðan og þannig næst hann ekki nema frystur beint úr sjó. Þar koma til frystitogararnir. Það segirsig sjálft að það eru allt önnur gæði ef varan er fryst þannig," sagði Hafsteinn. -JH OSRAM fæst á bensínstöðvum 1007. MIIRI LYSING OSRAM HALOGEN perur lýsa 100/- meira en venjulegar perur og endast tvöfalt lengur. Hinn velupplýsti maður A 1111 er með peruna í lagi w n r\ IVI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.